16.03.1938
Efri deild: 24. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu

*Brynjólfur Bjarnason:

Hv. 1. þm. Reykv. sagði áðan í ræðu sinni um Sjálfstfl., að hann væri yfirleitt á móti því að taka af mönnum verkfallsréttinn. Hann benti á vinnulöggjafarfrv. Sjálfstfl. máli sínu til sönnunar. Hann sagði, að það þyrfti mikil brjóstheilindi til að halda því fram fyrir þeim mönnum, er fylgzt hefðu vel með því frv., því að þetta frv. gengi út frá svipuðum verkfallsrétti. En ég get aftur á móti sagt, að mér finnst, að það þurfi mikil brjóstheilindi til að halda því fram, að þetta frv. takmarki ekki verkfallsréttinn. Allt slíkt tal fellur um sjálft sig fyrir þeim, er hefir lesið og kynnt sér vandlega þetta frv., enda viðurkenndi hv. þm. það, að í þessu frv. fælist skerðing á verkfallsréttinum. Hann viðurkennir, að í því felist afnám verkfallsréttarins undir vissum kringumstæðum, þar sem um bindandi úrskurð væri að ræða. Þetta vita allir, og þessar röksemdir hv. þm. falla því um sjálfa sig. Þá sagði hann, að á Rússlandi væru menn þvíngaðrir til að vinna ótakmarkaðan tíma. En þar er 7 stunda vinnudagur, og sumstaðar ekki nema 6. Aðrar upplýsingar hans hafa álíka mikið sannleiksgildi. Hann neitaði því, sem ég sagði um hæstarétt. En hvort hann hneykslast á því eða ekki, skiptir litlu máli. Það, sem er aðalatriðið, er það, að ekki þýðir nokkurn skapaðan hlut að mótmæla þeirri staðreynd, að mikill meiri hluti verkalýðsins lítur á hæstarétt sem stéttardómstól. Það er ekki aðeins vegna úrskurðar hans í Dettifossdeilunni, heldur líka vegna flestra þeirra deilumála, sem hann hefir dæmt, þar sem verkalýðssamtökin eru annar aðilinn. Hér er að ræða um hæstarétt frá því sjónarmiði, hvort rétt sé að fallast á, að hann sé hlutlaus dómstóll.

Þá kem ég að ræðu hv. fjmrh. Hann sagði í ræðu sinni, að það væri ekki rétt, að fulltrúar sjómanna gætu ekki unað við bindandi gerðardóm, fulltrúar verkalýðsins hlytu að geta gengið að löglegum gerðardómi eða samningum, því að fulltrúar verkalýðsins hefðu gert þetta í öðrum löndum. Stundum skamma andstæðingarnir okkur fyrir það, að við viljum fara eftir erlendum fyrirmyndum, en stundum heimta þeir, að við öpum allt vélrænt eftir öðrum þjóðum, jafnvel þó um gerólíkar kringumstæður sé að ræða. Í fyrsta lagi var í mörgum tilfellum, sem hér hefir verið talað um, um fyrirmæli um gerðardóm að ræða, sem fyrirfram hafði verið fengin trygging fyrir, að ekki myndi ganga gegn hagsmunum verkalýðsins. Í öðru lagi . hafa kommúnistar aldrei gefið samþykki sitt fyrir löglegum gerðardómi. Slíkt tilfelli er ekki til, nema það kom einu sinni fyrir fyrir 18 árum í Noregi, og þá var þessi afstaða þingmanna Kommúnista fordæmd af flokknum. Þetta er sannleikur. Auk þess má benda hæstv. fjmrh. á það, að ef deilan hefði komið fram á öðrum vettvangi, gat verið nokkuð öðru máli að gegna. Mönnum er ekki alveg sama, hverskonar verk það eru, hvaða gerðardómur er skipaður, undir hvaða kringumstæðum hann starfar, í hvaða tilgangi hann er settur og hverjar verða afleiðingar hans. Hér á Alþ. hefir nú Alþfl., jafnframt því, sem hann ákveður að rísa gegn frv. Framsfl. um bindandi gerðardóm, lagt fram frv. um að lögbjóða aðra lausn á málinu, sem hefir allt annan tilgang og aðrar afleiðingar. Ég get lýst því yfir, að ég gæti gengið inn á löglega lausn, líka í þessu máli, sem væri réttlát, en ekki hróplegt ranglæti og kúgun, eins og felst í till.

Framsfl. Hæstv. fjmrh. sagði, að mínar till. kæmu ekki til mála. Sú till., sem ég drap á sem lausn á þessu máli, myndi ekki koma til mála vegna þess, að hún þvingaði annan aðiljann. Með öðrum orðum, það má ekki þvinga útgerðarmenn til þess að láta togarana fara út upp á þau kjör, sem sjómenn gætu sætt sig við, og meira að segja útgerðarmenn sjálfir gætu sætt sig við, ef stj. vildi uppfylla kröfur þeirra. Það er öllum ljóst, að það var þetta, sem hæstv. fjmrh. sagði. Hann gat ekki mótmælt því, að dellan, sem nú stendur yfir, væri pólitísk, enda er hún það af hálfu útgerðarmanna. Hæstv. Fjmrh. gat ekki heldur mótmælt því, að stórútgerðarmennirnir, sem mestu ráða í samtökum útgerðarmanna, eiga sjálfir skipin, sem þeir nota sem pólitískt vopn. Þetta er viðurkennt af hæstv. ráðh. Og þrátt fyrir þetta má ekki þvinga útgerðarmenn til þess að láta togarana fara út. Samt sem áður verður að lofa þeim að nota umráðaréttinn yfir eignum þjóðarinnar til þess að kúga þjóðina, og stofna þjóðarbúskapnum í voða. Þetta á ekki gera. En aftur á móti má kúga sjómenn til þess að vinna fyrir kaup, sem þeir hvorki geta né vilja vinna fyrir. Þetta er undarleg afstaða hjá hæstv. fjmrh. og óverjandi. Sannleikurinn er líka sá, að með aðferð Framsfl. er ekki um það að ræða, að báðum aðiljum sé gert jafn hátt undir höfði. Útgerðarmenn fá sitt fram og ná sínum tilgangi, eins og ég hefi áður sýnt fram á. Við kommúnistar viljum fara allt aðra leið í þessu máli. Við viljum, að ríkisstj., Alþ. og bankarnir noti sitt vald til þess að láta starfrækja þau fyrirtæki, sem þjóðin á. Við viljum láta gera meira. Við teljum nauðsynlegt, að jafnframt verði skuldamál útgerðarinnar tekin til meðferðar. Við teljum nauðsynlegt, að jafnframt verði gjaldþrota fyrirtæki gerð upp og bundinn endir á tapreksturinn. Við teljum og nauðsynlegt, að með íhlutun þess opinbera verði rekstrinum, jafnframt þessum ráðstöfunum, komið á heilbrigðan grundvöll, þannig að hann komi til með að geta borið sig. Þetta er hin eina raunverulega lausn þessa máls. Allt annað er engin lausn. Það, sem um væri að ræða, ef þetta frv. yrði samþ., væri aðeins nokkurra vikna gálgafrestur. Við kommúnistar munum að öllum líkindum, áður en þessum umr. lýkur, bera fram okkar till. í þessu máli, sem ganga í þá átt, sem ég hefi lýst. Hæstv. fjmrh. sagði, að ef þessi leið væri farin, sem ég benti á, þá væri óvandur eftirleikurinn fyrir fulltrúa útgerðarmanna, ef þeir fengju völdin. Skárri er það nú þjóðmálaspekin hjá hæstv. ráðh. Fyrst og fremst væri nú ekki verið að gera neitt ljótt, þó að þessi leið væri farin, heldur væri um að ræða ráðstafanir til varnar gegn þjóðhættulegri starfsemi, ráðstafanir, sem hverri ríkisstj. bæri skylda til að gera, ef hún hugsaði um hag alþjóðar. En eftir kenningu hæstv. fjmrh. mætti t. d. ekki leggja réttlátan skatt á auðmenn. Það mætti ekki gera upp gjaldþrota fyrirtæki o.s.frv., til þess að þeir hugsuðu ekki til hefnda, þegar þeir fengju völdin. Þetta er eina rökrétta ályktunin, sem hægt er að draga af þessari kenningu hæstv. ráðh. Þetta er nákvæmlega sama stjórnmálastefnan og bardagaaðferðin eins og hjá Bretum, þegir þeir bönnuðu vopnaflutning til Spánar í því augnamiði, að fasistar ekki flyttu þangað vopn. En eins og kunnugt er, gerðu fasistar það samt. Þeir fluttu bæði vopn og hermenn til Spánar, og þess vegna hefir nú blóðug styrjöld staðið þar í 2 ár. Það er víst, að þegar afturhaldið fær völdin, þá framkvæmir það hagsmuni sinnar stéttar gegn hagsmunum alþýðunnar, alveg eins og kraftar þess leyfa. Þessi kenning hæstv. ráðh. er því sú barnalegasta pólitík, sem hugsazt getur, að framkvæma vilja afturhaldsins til þess að kaupa sér frið. Það er allt önnur pólitík, sem leiðir til sigurs. Það, sem gildir, er að láta afturhaldið ekki fá völdin. En ráðið til þess að hjálpa afturhaldinu til valda, það er undirlægjupólitíkin, sem leiðir til klofnings í alþýðusamtökunum og hrindir alþýðunni frá þeim flokkum, sem hún telur málsvara sína. Það er þessi pólitík, sem leiðir til þess, að afturhaldið tekur völdin. Aftur á móti er ráðið til að hindra, að afturhaldið taki völdin, sú pólitík, sem samræmist hagsmunum fólksins. Það er sú pólitík, sem sameinar alþýðuna. Þegar á allt er litið, virðist mér þeir viðburðir, sem hér hafa gerzt, ekki verða skildir á annan veg en þann, að þeir menn hafi orðið ofan á í Framsfl., sem vilja enga lausn þessa máls, sem alþýðan getur sætt sig við. Ég held, að mennirnir, sem hafa samið þessa hernaðaráætlun, séu þeir menn í Framsfl., sem fyrir hvern mun vilja slíta samvinnu verkamanna og bænda og nálgast íhaldið. Nú er ekki annað sýnna en að þessum tilgangi sé náð. Þeir menn, sem hafa samið þessa hernaðaráætlun, sjá nú árangur verka sinna. En þrátt fyrir að svona er nú komið, þá geri ég ráð fyrir, að það séu margir framsóknarmenn, sem alls ekki hafa gert sér það ljóst, hvað hefir verið að gerast. Þeir hafa verið leiddir út í pólitík, sem hefir verið þeim sjálfum á móti skapi. Það mun nú ekki vanta, að það verði risið upp o þessu verði mótmælt og það talin fjarstæða. Ég þekki slík mót- mæli og stóryrði, en það afsannar ekki mitt mál. Ég tek ekki slík mótmæli alvarlega. Ég lít á þau sem staðfestingu á því, sem ég er hér að halda fram. Ég hefi ekki tækifæri til að taka hér aftur til máls. Þess vegna vil ég taka það fram, að ef umr. verða um þetta atriði, þá tel ég þarflaust að svara slíkum mótmælum, sem fram kunna að koma. Hæstv. forsrh. var í dag spurður að því, hvaða tryggingu hann hefði fyrir því að deilan leystist með þeirri leið, sem stungið hefir verið upp á af honum. Hann svaraði þessu engu öðru en því, að hann gæti ekki trúað öðru en að menn hlýddu landslögum. Þetta var hið eina svar, sem hæstv. forsrh. hafði. Það var trú. Það má segja um þetta, að „mikil er trú þín kona“. Og þetta er sagt á sama tíma og hin pólitíska saga í heiminum er að mestu leyti saga um lögbrot og samningsrof. En nú er það svo, að það þarf engin formleg lögbrot til þess að láta togarana sitja í höfn, þrátt fyrir að þetta frv. yrði að l. Það stendur sem sé hvergi í frv., að togararnir skuli fara á veiðar. Það stendur ekkert annað en það, að þau ráðningarkjör skuli gilda, sem gerðardómurinn úrskurðar. Togaraeigendur geta látið togarana liggja í höfn þrátt fyrir þetta. En hvað segja svo sjómenn? Eru nokkrar líkur til, að þeir láti kúga sig til þess að fara út? Hv. 3. landsk. benti á, að svo væri ekki. Hann benti á, að sjómenn hafa ekki enn sagt sitt síðasta orð um málið.

Ég mun ekki hafa þessi orð fleiri, en ég geri ráð fyrir, að við kommúnistar munum, áður en umr. lýkur, leggja fram till., sem eru í samræmi við þær skoðanir á þessu máli, sem ég hefi hér túlkað.