16.03.1938
Efri deild: 25. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu
Magnús Jónsson:
Ég skal verða við tilmælum hæstv. forseta um að hefja ekki umr. almennt um málið. En ég gat þess við fyrstu umr., að enda þótt ég lýsti yfir því fyrir hönd Sjálfstfl., að hann myndi fylgja frv., þá eru einstök atriði í því, sem ég persónulega er ekki alveg samþykkur. Ég skal ekki tefja umr. með því að rekja þau upp. En ég vildi biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir einni brtt. frá mér við frv. Það er við 5. gr., að 2 síðustu málsl. falli niður. Það stendur þar þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Dómurinn skal afla sér upplýsinga hjá sáttasemjara ríkisins í vinnudeilum um kröfur og tilboð deilu aðilja. Hvorugum aðilja má dómurinn dæma frekari rétt en hann hefir gert kröfur til fyrir sáttasemjara, þó þannig, að skipverjar sæti ekki lakari kjörum en samkvæmt samningi þeim, er gilti til ársloka 1937“.
Ástæðan fyrir minni brtt. er sú, að fyrri málsliður er um atriði, sem þóttu mikils virði, þegar lögin um sáttasemjara voru sett, 1925. Þar er beinlínis ákveðið svo í 7. gr. laganna, að það megi ekki, eins og þar stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Bannað er að gefa út vottorð um eða leiða vitni um, hvað hvor aðili hefir borið fram eða lagt til meðan á samningum stendur undir forystu sáttasemjara, nema því aðeins, að samþykki beggja aðilja komi til“.
Það er enginn vafi, að þetta ákvæði er sett þarna til þess, að menn væru óhultari, þegar þeir bæru fram kröfur sínar fyrir sáttasemjara. Og það er illa farið, ef menn, af ótta við það, að till. þeirra yrðu bornar út, væru þögulli um það, hvað væri í raun og veru þeirri vilji. Hér í þessu frv. er farið fram á að breyta þessu svo gersamlega að það er beinlinis gert að skyldu að leita umsagna um það, hvað fram hefir farið fyrir sáttasemjara. Ég held, að þetta myndi spilla mjög fyrir sáttasemjara í framtíðinni. Hitt atriðið er aftur á móti annars eðlis. Mér finnst ofurskiljanlegt, um leið og málið er lagt í gerð, að setja gerðardómi ákveðnar reglur um það, hvernig hann skuli dæma í einu ákveðnu tilliti, t. d. að fyrir rétti megi ekki dæma nema það, sem kröfuhafi hefir komið fram með. Ég held, að þessi ákvæði muni torvelda sáttasemjara starfið.