17.03.1938
Neðri deild: 26. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (363)

68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég þykist sjá fram á, að það sé ætlunin að knýja þetta mál gegnum þingið þegar á þessari nóttu og hafa að engu tilmæli mín, sem ég bar fram við 1. umr. þessa máls í hv. deiId, að það yrði a. m. k. gefinn það mikill tími til athugunar á því, að það yrði ekki barið í gegn í nótt. Að einhver viðleitni yrði sýnd til þess að ganga til móts við þær óskir, sem komu fram frá sjómönnum á fundi þeirra í kvöld, þar sem m. a. var bent á möguleika til lausnar, ef hægt væri að tryggja a. m. k. 60 daga úthald á saltfisks veiðar, og þar sem kosin var 5 manna nefnd til þess ásamt með stjórninni að leita eftir samkomulagi við útgerðarmenn. Ég sé fram á það, segi ég, að ætlað er að hafa þetta að engu, en knýja málið fram í nótt. Ég tel það aðferð, sem alls ekki sæmi Alþingi, sízt eftir þær yfirlýsingar, sem bornar eru fram af formælendum og stuðningsmönnum þessa frv., — að sjálfsagt sé að láta samningsrétt aðilja njóta sin, en gripa því aðeins til slíkra ráðstafana, að önnur sund virðist lokuð.

1) EmJ: Þó að rökstudda dagskráin verði samþykkt, þá er enn opin leið með frv-. Alþfl. í Ed. og því segi ég já.

2) HG: Með tilvísun til grg. hv. 7. landsk. segi ég já.

Úr því að ég tók hér til máls, vil ég víkja að nokkrum ummælum, sem fallið hafa í umr. Hv. 5. þm. Reykv. sagði, að í þessu máli stæðu verkalýðsflokkarnir saman. Ég býst við, að hann hafi átt við með því, að Alþfl. og Kommfl. í öllu falli væru sammála um meðferð þessa máls. Ég vildi í þessu sambandi aðeins mega benda á það, án þess að fara út í umr. um þetta, að hv. 1. landsk., samflokksmaður hv. 5. þm. Reykv., lýsti yfir í hv. Ed. í gærkveldi, að hann gæti ekki fallizt á lausnina, sem Alþfl. hefir borið fram í málinu, þ. e. a. s. að lögfesta ákveðinn hluta af till. sáttasemjara til þess að koma skipunum út á saltfisksveiðar. — Að því er snertir ummæli hv. 3. þm. Reykv. um sama efni, verð ég að segja það, að þá leið, sem hann benti á, að afgr. málið með rökst. dagskrá, með hliðsjón af frv., sem liggur fyrir Ed., tel ég varla færa. Því að ég tel ekki, eins og ástandið er, að hefði verið kleift að biða eftir, að heildarrannsókn fari fram á hag útgerðarinnar, áður en þetta mál hefði verið leyst, eins og mér virtist liggja í dagskrártill., sem hér var borin fram. Ég greiddi ekki atkv. á móti henni, með tilliti til þess, að ef hún verður samþ. og frv. vísað frá, þá er hin leiðin opin, sem bent er á í frv. Alþfl. í Ed.

Hæstv. fjmrh. kvað sig undra það mjög, að AIþfl. léti þetta varða samvinnuslitum. Þetta væri, sagði hann, sama aðferð eins og alþýðuflokkar nærliggjandi landa þrásinnis hefðu notað. Hann drap t. d. á Danmörku og Noreg í því sambandi. Eg hefi áður gert grein fyrir lausn deilunnar í Noregi og hirði ekki að endurtaka það. Lausn deilunnar í Danmörku 1933, sem ákveðin var af þinginu þar, að till. Stauning forsrh., var á þá leið, að lögfest var till. sáttasemjara óbreytt. Samningar skyldu gilda áfram, en útgerðarmenn höfðu krafizt 20% lækkunar. Þetta náði til mikils meginhluta allra samninga, og örlítill hluti deiluatriða var leystur með gerðardómi, sem þá var staðfestur af þinginu. Ég fæ ekki séð, að hæstv. fjmrh. þurfi að undrast, þó að Alþfl. verði að láta þetta mál valda samvinnuslitum. Hann hefði mátt vita það um nokkra hríð, og því fer fjarri, að það komi flatt upp á hann. Mér skildist á orðum hans, að hann teldi, að stæði upp á Alþfl., að hann hefði ekki bent á neina lausn í þessu máli. En hæstv. ráðh. ræddi ekki um frv. í Ed. Og ég vil þá endurtaka það, sem ég sagði við hæstv. forsrh., að Alþfl. hefir bent á lausn í þessu máli. og er reiðubúinn til að bjóða Framsfl. samkomulag um hana. Ummæli hæstv. fjmrh. í þessu efni staðfesta þann grun, sem uppi hefir verið í Alþfl., að meginástæðan til þess, að Framsfl. telur ekki fært að samþ. frv. Alþfl., sé sú, að í því væri lögfest nokkur hækkun á kaupi sjómanna, og að Framsfl. vilji ekki eða nokkur hluti hans — mæli ég það ekki sérstaklega til hæstv. ráðh. —, vilji ekki með nokkru móti ganga inn á lausn á málinu, sem slær föstu, að kaup skuli nokkuð hækka, hafandi þó í huga, að alveg nýlega er búið að hækka verð á mjólk í Reykjavík, eins og öllum er kunnugt um. Þrátt fyrir það, að þetta frv. Alþfl hefir legið frammi í Ed. og verið rætt þar. forðast báðir hæstv. ráðh. Framsfl. að minnast á það sem mögulega lausn, — ekki einu sinni, hvaða ágallar kunni á því að vera. Ég verð að segja, þó að mér þyki það leitt, að ég fæ þetta varla skilið á annan veg en þann, að Framsfl. eða þeir menn, sem þessu ráða, óski ekki eftir því, að samstarf um ríkisstj. haldist milli Alþfl. og Framsfl. Því að ef óskir væru uppi um það, þá fæ ég ekki annað séð. en að þeir geti fallizt á frv. okkar í Ed. Ég drap á það í fyrri ræðu minni, og hirði ekki að endurtaka það, að samstarf milli flokkanna er vitanlega algerlega óhugsandi, nema því aðeins a. m. k., að þau tillit séu tekin gagnkvæmt, að flokkarnir hlaupi ekki til þess að leysa stór og þýðingarmikil mál með andstöðuflokki. Þetta er í annað skipti í stórmáli, sem Framsfl. gerir þetta. Þegar í viðbót er litið til þess, hversu frv. okkar um lausn málsins er tekið, fæ ég ekki séð, að sá vilji sé fyrir hendi hjá Framsfl. til að halda áfram samstarfi, sem ég verð að telja nauðsynlegan, ef samstarf á að eiga sér stað. Ég harma það, að svo er nú ástatt, en ég get ekki lokað augum fyrir staðreyndum. Ég harma það vegna þess, að ég tel, að þau ár, sem samstarfið hefir staðið, hafi lánazt, þrátt fyrir óvenjulega utanaðkomandi örðugleika, eins og fullkominn aflabrest og lokun markaða, að halda öllum atvinnuvegum landsmanna furðanlega vel gangandi, og að kaupgeta í landinu sé a. m. k. eins mikil og áður, og jafnvel nokkru meiri.

Hv. þm. G.-K. kvaðst hafa verið mótfallinn þeirri till., sem samflokksmaður hans bar fram í Ed., að fella úr frv. ákvæðið um að takmarka svið dómsins við það, að ekki mætti lækka kaupið frá því, sem er. Færði hann til þær ástæður. auk sinnar alkunnu umhyggju fyrir hag s,jómanna, að hann hafi óttazt, að ef þetta stæði í frv., þá mundu sjómenn ekki hlíta úrskurði dómsins, því að réttum hætti, skildist mér, gæti dómurinn varla óttast slíkt ákvæði, að lögin dæmdu svo hátt kaup sem lágmarksákvæði. Ég spyr nú hv. þm., ef hann heldur þetta: Hefir hann þá engan ótta af því, að enn geti farið svo, að ekki sé víst, að þetta leysi deiluna? Það hefir ekkert orð komið frá honum, sem ég hefi heyrt, sem trygging geti verið fyrir því, að útgerðarmenn vilji sætta sig við gerðardóminn og falla frá þeim skilyrðum, sem þeir settu um fríðindi frá Alþingi og hlutaðeigandi bæjarstj.

Eg hirði ekki að lengja umr. um þetta mál, örlög þess eru þegar séð. Ég harma það, að svo óeðlileg og óverðskulduð lausn hefir orðið slíku máli sem þessu.