12.04.1938
Sameinað þing: 20. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

1. mál, fjárlög 1939

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það voru örfá orð, sem ég þyrfti að svara, sumpart út af því, sem kom hér fram við umr. þessa máls í gær. Eitt af því, sem kom fram í þeim umr., var, að fjvn. hefði verið kölluð saman nokkru fyrir þing. Ástæðan til þess, að ég var því fylgjandi, var sú, að á undanförnum árum hefir fjvn. eytt mjög miklum tíma til þess að endurskoða rekstur ríkisstofnananna og kynna sér nokkuð bæði almenn atriði og líka einstök atriði í sambandi við þær, þó sérstaklega launagreiðslur. Þetta hefir tekið mikinn tíma af störfum fjvn., og fyrir þær sakir hafa nál. komið seinna frá fjvn. á undanförnum árum en æskilegt hefði verið. Ég var því fylgjandi, fyrst og fremst til að ráða bót á þessu, að fjvn. kæmi saman fyrr en venja hefir verið til þess að athuga, hvort hægt væri að koma við sparnaði á rekstri ríkisins, meira en verið hefir áður. Ennfremur var til þess ætlazt, og hefir reyndar farið svo, að n. hefir lagt mikla vinnu í að athuga launagreiðslur. Að því er ég bezt veit, eru nú meiri líkur til þess en áður, hvað Iaunal. snertir, að endanlega gæti orðið gengið frá því máli, áður en mjög langt líður. Hitt vissi ég fyrir fram, að einstökum breytingum á hinum beina rekstri ríkisins væri ekki hægt að koma við í sparnaðarátt. Það er ekki unnt að lækka verulega kostnaðinn við ríkisreksturinn, nema ef annað hvort væri unnt að fækka starfsmönnum, eða ef fært þætti, að lækka laun þeirra manna, er vinna við ríkisstofnanir, eins og hv. þm. A.-Húnv. tók fram í gær. Starfsmönnum við ríkisstofnanir mætti ekki fækka mikið frá því, sem nú er. Þó kynni að vera hægt að spara einn og einn mann við einhverja stofnun, en slíkt getur ekki munað stórum upphæðum. Eina verulega útgjaldalækkunin yrði lækkun launanna. Nú hefir verið dálítið gert að því að lækka launin, bæði með því að breyta dýrtíðaruppbótinni, og sömuleiðis hefir nokkuð verið reynt að færa niður önnur laun, og nokkur sparnaður hefir orðið að þessu, enda þótt það muni ekki gífurlegum upphæðum. Það er miklum erfiðleikum bundið að lækka laun starfsmanna við ríkisstofnanir frá því, sem nú er. Í fyrsta lagi má telja það, að hjá ýmsum öðrum stéttum þjóðfélagsins hafa verið framkvæmdar launahækkanir vegna vaxandi dýrtíðar. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr, þá verða þeir að viðurkenna, að starfsmenn ríkisins eru sízt betur launaðir en aðrir, sem vinna við sambærileg fyrirtæki eða hafa sambærilega aðstöðu. Það hefir mikið verið um það talað, að einstakir menn í þjónustu ríkisins eða ríkisstofnana hefðu há laun. En séu þau borin saman við laun starfsmanna hjá einstaklingsfyrirtækjum, sést það, að starfsmenn ríkisfyrirtækjanna hafa sízt óeðlilega há laun. Laun þessara manna hafa líka verið lækkuð nokkuð undanfarið.

Ég hefi í sambandi við þetta sífellda tal um háu launin við ríkisstofnanirnar kynnt mér, hvaða laun væru greidd forstjórum eða framkvæmdarstjórum hér í Rvík hjá fyrirtækjum, sem geta talizt að einhverju leyti sambærileg við þau fyrirtæki, sem rekin eru af ríkinu. Hér er ekki um önnur einstaklingsfyrirtæki að ræða, en þau stærstu, því að önnur fyrirtæki er ekki hægt að bera saman við stofnanir ríkisins. Ég hefi fengið upplýsingar um þessi efni hjá 16 fyrirtækjum. Þó skal þess getið, að ég hefi ekki talið bankana þar með, því að þeir hafa nokkra sérstöðu. En væru þeir teknir með til samanburðar, myndu þeir áreiðanlega hækka þær launatölur, sem teknar eru til samanburðar. Við þessi 16 fyrirtæki starfa 23 menn, sem eru taldir forstjórar eða framkvæmdarstjórar. Meðallaun þeirra eru 16 þús. kr. á ári. En sá forstöðumaður fyrir ríkisfyrirtæki, sem hefir hæst laun, hefir 10 þús. kr. árslaun, þó að forsrh. hafi risnupeninga að auki. Hjá þessum sömu 16 fyrirtækjum starfa 7 menn, sem ýmist eru kallaðir skrifstofustjórar, fulltrúar eða aðalbókarar, sem hafa að meðaltali tæp 11 þús. kr. í árslaun, eða töluvert hærri laun en ríkið telur rétt að greiða ráðh. sínum. Ég hefi aðeins tekið 16 stærstu fyrirtækin hér í Reykjavík, en bankarnir eru ekki teknir með til samanburðar, því að launin þar eru ekki ákveðin af ríkisstj. og ekki af Alþ. heldur, nema óbeint, því að þau eru ákveðin af bankaráðsmönnum, sem Alþ. kýs. Laun bankastjóranna við Landsbankann eru 21600 kr. hvers um sig, og þrír aðrir bankastarfsmenn hafa yfir 10 þús. kr. árslaun hver. En ef farið er neðar í launastiganum. kemur það líka í ljós að starfsmenn við einkafyrirtæki hafa yfirleitt hærri laun en greidd eru við sambærilegar stofnanir, sem ríkið rekur. Launagreiðslur hjá ríkinu sæta meiri gagnrýni heldur en nokkrar aðrar launagreiðslur. Þetta verður til þess, að þótt þar sé ekki um óhæfilega háar launagreiðslur að ræða, skapar það talsvert aðhald, sem er heilbrigt og veldur því, að launagreiðslum hjá ríkinu er betur í hóf stillt heldur en launagreiðslum hjá öðrum stórum fyrirtækjum, sem engu eftirliti eru háð. Nú er enginn vafi á því, að ómögulegt er annað en að taka eftir því, að þeir, sem vinna hjá ríkinu, bera laun sín saman við laun þeirra starfsmanna, sem gegna álíka vandasömum störfum. Það mun verða ákaflega erfitt fyrir ríkið að færa niður laun starfsmanna sinna, nema að gera einhverjar ráðstafanir til þess að færa niður öll hærri laun í landinu. Það hefir verið gert töluvert að því með því að hækka tekjuskattinn, en aldrei verður unnt að ná sama marki með því móti, sem með því að ákveða sjálfar launagreiðslurnar. Ég geri ekki ráð fyrir, að það myndi verða á valdi nokkurrar stj. að spara verulega að þessu leyti. Ég vildi gefa þessar upplýsingar hér, sem benda ákveðið í þá átt, að launagreiðslur eru sízt hærri hjá ríkinu en hjá öðrum sambærilegum stofnunum hér á landi. Það er mjög eftirtektarvert, að það skuli vera til bókhaldarar og fulltrúar hjá Eimskipafélagi Íslands, sem er opinber stofnun, er geta komizt hærra í launastiganum heldur en þeir forstjórar verzlunarfyrirtækja ríkisins, sem hæst eru launaðir. Fulltrúar og bókhaldarar við einkafyrirtæki munn áreiðanlega vera betur launaðir en starfsbræður þeirra hjá ríkisfyrirtækjum. Ég vil benda þeim mönnum, sem telja sig hafa áhuga fyrir sparnaði, á það, að ef þeir vilja láta lækka þessi laun hjá ríkisstofnunum, er alls ekki hægt að koma því í framkvæmd, nema því aðeins að unnt væri að taka þetta mál fyrir á breiðari grundvelli og lækka launagreiðslur hjá þeim fyrirtækjum, sem helzt eru sambærileg við ríkisstofnanirnar. Ég vil sérstaklega benda á þetta í sambandi við þær umr., sem fram fóru hér í gær. Hv. þm. A.-Húnv. vék að því í ræðu sinni í gær, að það væri dálítið erfitt fyrir þá stjórnarandstæðinga að vinna í fjvn. af fullkominni alúð, því að það væri sáralítið farið eftir því, sem fjvn. legði til, og störf hennar væru að litlu höfð. Það má áreiðanlega finna dæmi þess, að ekki hafi verið farið eftir till. fjvn. En eitt skal ég fullyrða, að fjvn. hefir aldrei á síðustu árum haft minni ástæðu til þess að kvarta yfir því, að tili. hennar hafi ekki verið fylgt, heldur en fjvn. undanfarinna þinga. Ég efast ekki um, að allir þeir, sem kunnugir eru þingstörfum, muni taka undir þetta. Sannleikurinn er sá, að í öllum höfuðatriðum hefir verið farið eftir till. fjvn. ÁgreiningstilI., sem komið hafa fram, hefir Alþ. einnig tekið til greina.

Af minni hálfu hefi ég viljað gefa fjvn. aðgang að öllum gögnum og sem fullkomnastan tíma til þess að athuga ríkisreksturinn. Allt þetta var gert til þess, að eðlileg og heilbrigð gagnrýni gæti átt sér stað. Ég vildi ekki, að stjórnarandstæðingar hefðu erfiða aðstöðu til að glöggva sig á þessu, og hefi ég því lagt mig fram til þess, að þeir fengju tíma og aðstöðu til að rannsaka allan rekstur ríkisins sem bezt. Ef menn gera slíkt af einlægni og vilja gjarnan benda á það, sem aflaga fer, hlýtur það að verða til bóta, enda ekki nema gott, að allur kostnaður við rekstur ríkisins komi skýrt í ljós. Öll gagnrýni er alveg tvímælalaust mjög mikið aðhald.

Hitt er annað mál, að mér hefir ekki líkað ýmislegt af því, sem fundið hefir verið til foráttu, hvað snertir launakjör starfsmanna ríkisins í samanburði við starfsmenn einkafyrirtækja, en út í það verður ekki farið hér. Ég mun ekki fara nánar út í þetta, nema því aðeins að sérstakt tilefni gefist til. En ég taldi rétt, að þessi umr. fjárlaga færi ekki svo fram, að ég gerði ekki almennar aths.