21.03.1938
Efri deild: 30. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

44. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég álít, að til þess að undanþiggja þessar stofnanir fasteignaskatti til ríkisins samkv. fasteignaskattslögunum þurfi sérstakt lagafrv. Það þarf að gera breyt. við þau lög. Það er a. m. k. óviðkunnanlegt að setja ákvæði um það efni inn í þetta frv. Ég skal sjá um það, að n. taki til athugunar það, sem hv. 1. þm. N.-M. sagði. En ég get ekki sagt, hvort n. finnur ástæðu til þess að bera fram nýtt lagafrv. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, álít ég, að eigi að ganga áfram. hvað sem þessu líður, þar sem aldrei verður eðlilegt að setja þetta ákvæði inn í það.