12.04.1938
Sameinað þing: 20. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

1. mál, fjárlög 1939

*Pálmi Hannesson:

Það er óneitanlega nokkuð annað en ég hefði getað búizt við að heyra mest af þeim umr., sem hér hafa farið fram um fjárlögin. Það er ekki verið að tala um greiðslur til verklegra framkvæmda og neins annars yfirleitt, heldur launamálin. Bjarni Jónsson frá Vogi talaði einhvern tíma um, að þm. fengju sér prik sem þeir riðu aftur og fram um þingið. Tvennskonar slík prik verð ég var við í þessum umr. Annað prikið er það að ef á að taka upp einhverja fjárveitingu í þágu atvinnuveganna, til verklegra framkvæmda, þá er það sjálfsagt og er hafið yfir alla ,krítik“. Hitt prikið er, að ef eitthvað er með launamál að gera, þá þykir það mesti óþarfi, og hver maður vill keppast við annan um að skera niður. Þetta hefir viðgengizt um langan tíma, og ég skil sannast að segja ekki í, að hv. þm. A.-Húnv. skuli ekki sjálfur finna, að það er farið að slá í þessar gömlu lummur, sem hann ber fram nú. Í raun og veru er að ræða um tvennskonar laun laun samkvæmt launalögum og þau, sem eru fyrir utan launalög við fyrirtæki, sem rekin eru af ríkinu. Ég hefi starfað undanfarið í n., sem unnið hefir að því fyrir fjmrh. að finna samræmi á milli þeirra, sem starfa undir launalögum og hinna, sem starfa við ríkisfyrirtæki. Ég skal tilnefna sem dæmi um greiðslur það, sem mér er nærtækast, laun við þá stofnun, sem ég veiti forstöðu. Hvað haldið þið, að kennarar menntaskólans fái í laun? Hvað er heimtað af þeim til að geta tekið embættið að sér? Að þeir hafi innt af höndum háskólapróf, og í langflestum tilfellum erlendis, 5–6 ára háskólanám erlendis auk námsins hér heima. Hvað er þeim svo boðið upp á? 306 kr. á mánuði í byrjunarlaun. Og nú skyldi maður halda, að þessir menn ættu fyrir sér glæsilega hækkun. Já, hún kemur. Eftir 16 ára þjónustu eru þeir komnir upp í 387,50 kr., það er hámarkið eftir 16 ára þjónustu, en þeir fá að vísu, svo ég dragi ekkert undan, þá nafnbót að heita yfirkennari. En því fylgir ekki launahækkun. Ég hefi tekið þetta dæmi, af því að það liggur mér næst, en ekki af því, að af nógu sé ekki að taka. Þvert á móti. yfirleitt hafa þeir, sem vinna að kennslumálum, sjálfsagt svipaða sögu að segja. Ég er sannfærður um það, að allir þeir, sem mál mitt heyra, eru undrandi yfir því, hvað þessi laun eru lág. En svona hefir málið verið flutt úti um landið um áratugi, að þeir sem væru á launalögum, séu á þeirri grænu grein og fljóti í peningum, sem kallað er. Ef þau laun eru vorin saman við einstaklings fyrirtæki og fyrirtæki, sem rekin eru af bæjar- og sveitarfélögum, þá er auðséð, að ríkið borgar verr heldur en bæði einstaklingar og opinber fyrirtæki. En eins og tekið hefir verið fram hér í umr., þá verður ríkið, þegar það rekur einhverjar stofnanir að greiða laun nokkuð í samræmi við það, sem gerist hjá öðrum hliðstæðum stofnunum, því að ef ríkisstofnanirnar eiga að vera samkeppnisfærar við aðrar stofnanir, verður að tryggja þeim góða starfskrafta, og þá verður að borga laun, sem eru nokkurn veginn sambærileg við það, sem annarsstaðar gerist. —

Maður skyldi nú ætla, þar sem mismunurinn er svo mikill á launagreiðslum utan launalaga og samkvæmt launalögum, að hér kæmi fram vilji hjá hv. þm. A.-Húnv. til þess að hækka þá, sem taka laun samkvæmt launalögum, en lækka ekki hina. En ég efast um það. Ég held, að viljinn sé frekar sá, að lækka alla niður í það lægsta, sem ríkið greiðir. En ef hv. þm. vill gefa aðrar upplýsingar, þá skal ég fúslega falla frá þessari skoðun, og það með sérstakri ánægju.

Þetta er gamalt gjamm, sem flutt hefir verið á kosningafundum um land allt um langan aldur. Og ætli það sé ekki einmitt þetta, sem dregur menn til þess að sækjast svo mjög eftir embættum bjá ríkinu, eins og hv. þm. A.-Húnv. lét sér svo tíðrætt um. Eftirspurnin er mikil, af því að menn trúa því, sem frambjóðendur hafa sagt á nærri því hverjum einasta framboðsfundi í mörg ár, í nærri því hverju einasta kjördæmi, fyrir nærri því allar Alþingiskosningar, að launin samkvæmt launalögunum séu svo afskaplega há, — að maður nú ekki tali um hjá ríkisstofnunum. En þetta hefir aðeins verið flutt til þess að kitla eyru kjósendanna; það fullyrði ég. En það er oft svo, að menn verða að taka afleiðingunum af óheiðarlegri „agitation“, og það hafa jafnan margir hv. þm. orðið að gera. Þeir hafa orðið að standa við ofurlítið brot af því, sem þeir hafa sagt við kjósendur sína eða hvíslað að þeim fyrir utan fundarhúsveggina. —

Á hitt er svo aldrei minnzt, hvort embættismannastéttin inni af hendi starf, sem einhverja þýðingu hafi. En ætli það sé nú samt ekki svo, að ríkið eigi talsvert mikið undir því, að embættin séu vel rækt. Um það er sjaldan talað hér á Alþ., en meir um hitt, sem að launum um lýtur. Þá er sjálfsagt að vera með þessar gömlu lummur, þó þær séu dregnar upp úr rúmshornunum, myglaðar og fúlar. —

Hv. þm. A.-Húnv. væri nær að fara heim í sitt kjördæmi og segja sannleikann um launamálin. Hann gæti til dæmis byrjað á því, að launastétt landsins sé fyrirboðið að gera verkföll, eins og aðrar stéttir þjóðfélagsins, og hann gæti bætt því við, hvernig hennar starf er metið.

Ég geri ekki ráð fyrir, að launastéttina langi til þess að gera verkfall, en hún ætlast til réttlætis af þeim, sem um hennar mál eiga að fjalla. Og ég vil bæta því við, að eftir þeim athugunum, sem ég hefi gert á þessum málum, þá er ríkið versti atvinnurekandinn hér á landi. — sá, sem borgar lægstu launin.

Ég skal svo að lokum enda með því, að ég get ekki varizt þeirri hugsun, að það sé lítilsigld fjármálapólitík að vera sí og æ að narta í þá, sem starfa fyrir hið opinbera, en virða hitt að engu, sem þeir gera þjóðarbúinu til þrifnaðar.