04.04.1938
Efri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (444)
18. mál, lax- og silungsveiði
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég þarf ekki að taka mikið fram út af þessu máli. Fyrst farið er að rekja þetta mál hér og umbylta því, er bezt að segja frá öllu eins og það er, bæði þál. og brtt., sem var smeygt inn í frv. Þetta var gert til þess að koma málinu fyrir kattarnef. Þetta ákvæði, að kaupréttur bænda yrði framlengdur um næstu ár, er til að eyðileggja málið. Það er ekki til neins annað en að viðurkenna sannleikann. Fyrst var samþ. þál. um endurskoðun löggjafarinnar um þetta efni, án þess að talið væri líklegt, að bráð endurskoðun væri nauðsynleg. Þessi 1. hafa verið meira til meðferðar en nokkur önnur löggjöf hér á Alþ. Laxveiðilöggjöf vor Íslendinga er að ýmsu leyti til fyrirmyndar fyrir þær þjóðir, sem eiga laxveiðiár, um það, hvernig veiða megi. Aðeins mætti segja. að það er ekki nógu skýrt tekið fram, hvaða veiðitæki megi nota. Og yfirleitt, þar sem veiði er stunduð hér í ám, fer það mjög í vöxt, að notaðar séu góðar veiðiaðferðir. En eftirlitið með því, hvernig menn veiða, getur sennilega aldrei orðið nægilega fullkomið. T. d. þeir menn, sem þykjast vera að veiða á flugur og önnur lögleg veiðitæki geta skotizt í það, þegar eftirlitsmaðurinn er ekki nærri, að veiða á ólöglegan hátt. Eins og ég gat um áðan, þá eru stórkostlegar framfarir á þessu sviði, t. d. að bændur austanfjalls eru að koma í veg fyrir netaveiði nema e. t. v. í tveimur stærstu ánum 2–3 næstu árin og árnar eingöngu notaðar til stangarveiði, og verði stofnað um það félag, sem þeir hafa fullkomlega heimild til og ráða því algerlega, hvaða veiðitæki eru notuð. Svo laxveiðilöggjöfin út af fyrir sig er vel gerð löggjöf. Hitt er annað mál, að um laxinn hafa alltaf verið miklar deilur. Það er talið, að til flestra fossa, þar sem laxinn er, megi telja sveitakrít og þrætur í nágrenni veiðiánna um allt land, því laxinn er mjög dýr og eftirsóttur fiskur. Sama er það hér á Alþingi, þegar talað er um þessa hagsmuni, þá koma allskonar fleygar, og það er meir þráttað um þetta mál en nokkurt annað. Þannig var það á síðasta þingi. Fyrst var samin þáltill., ekki af því, að það væri talin þörf að endurskoða þessa mjög svo vel gerðu löggjöf. Það má náttúrlega gera, en það tekur mikinn tíma, ef það ætti að verða til bóta. Það þarf langan tíma til að endurskoða löggjöf, sem búið er að gera með þriggja ára vinnu. En látum það nú vera, að þessi þáltill. var samþ., og ég neita því ekki, að þessi endurskoðun verður að framkvæmast, fyrst þáltill. var samþ. En þegar búið er að samþ. þessa þáltill., var bent á það, að þessi till. færi alls ekki í bága við það að framlengja lögin. Þá var búinn til nýr fleygur og settur í sjálfa lagagreinina. Og það er þessi fleygur, er varð þess valdandi, að sumir hv. þm. greiddu ekki atkv., vegna þess að þeir töldu málið komið þá í hið mesta óefni. Meðal þeirra var ég — því miður — því annars hefði kannske verið hægt að fella fleyginn. En þegar málið kom í Nd. með þessum breyt., sem allir líta á sem fleyg og til minnkunar að hafa verið afgr. frá Alþingi, þar sem ráðh. er gefið fullt vald til að kollvarpa miklu af þeirri löggjöf, sem búið er að undirbúa hér með mikilli vinnu af Alþingi og mþn., þá var þetta afgr. í Nd., vegna þess, að ekki var tími til að fella fleyginn burt. Því menn vildu heldur samþ. þennan óskapnað, sem héðan kom, er átti að verða til þess að málið yrði fellt hér, þó að allir sjái, að það nái ekki nokkurri átt að samþ. svona grein, og aðeins í því trausti greiddu menn henni atkv., að hún kæmi aldrei til framkvæmda, til þess að fá því framgengt, að kaupréttur bænda yrði framlengdur; því annars hefði hann fallið niður, og þar með skapazt millitímabil, sem er mjög óþolandi fyrir bændur, sem eru að búa sig undir að stofna veiðifélög. Frv. var beinlínis samþ. í Nd. af mörgum þm. með því fororði, að þeir samþ. frv. aðeins vegna þessa kaupréttar og í trausti þess, að óskapnaðurinn kæmist aldrei til framkvæmda. Það var sú leið, sem þeir völdu.
Hinu var búizt við af mörgum, sem vildu koma till. fyrir kattarnef, að hún myndi verða felld í Nd., og þar með væri kaupréttur fallinn og frv. En þeir í Nd. völdu þessa hyggilegu leið til að koma málinu fram.
Ég þarf ekki að tala oftar í þessu máli til þess að skýra þetta frekar. Því það vita allir hv. þm., að það er ekki hugsanlegt, að lög, sem þannig eru til orðin, verði tekin hátíðlega. Ég er sannarlega hissa á því, að nú skuli á ný verið að rifja upp þessa leiðinlegu sögu, sem er Alþ. ekki til sóma, og sízt af öllu þeim, sem beittu sér fyrir því að koma þessum fleyg inn í málið. Þáltill. mun ég að sjálfsögðu láta framfylgja; það er ekki nema eðlilegur hlutur. En ég vænti þess, að það verði skilið, að ég hefi ekki neitt flýtt mér að því að undirbúa þá framkvæmd, sem hefir verið samþ. í raun og veru á móti meiri hl. þingsins, sem kom greinilega fram við afgreiðslu þess máls á þingi.