04.04.1938
Efri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (446)
18. mál, lax- og silungsveiði
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hv. 1. þm. N.M. virðist ekki hafa tekið eftir því, að ég gaf fullkomna skýringu. Við þál. út af fyrir sig er ekkert að athuga, ef á að leggja í starfið langvarandi vinnu. En það er ekki hægt að búast við árangri nema með miklu starfi, þar sem lögin eru svo vel undirbúin eins og þessi lög eru frá Alþingi. Ég tók það fram, og ég held, að ef hv. þm. hefði heyrt það, þá hefði hann getað sparað sér þessa ræðu, að þeim, sem hefðu ætlað að koma með tili. um, að bændur fengju innleystan veiðiréttinn, hefði verið bent á þegar búið var að samþ. till., að hún kæmi alls ekki í bága við það. Og ég sá það ósköp vel, þegar ég greiddi atkv. með henni. En þegar á það var bent síðar, þá kom fleygurinn, sem átti að drepa það, þegar það var orðið séð, að samþykkt till. kom ekkert í bága, þó að þeir, sem báru hana fram, ætluðust til þess. Viðvíkjandi þessum fleyg, sem ég vonaði, að kæmi alls ekki fram, var ég á báðum áttum, hvort gerlegra var að feila fleyginn og þar með væri felldur kauparétturinn til fulls, eða láta hann fara í gegn, og þess vegna greiddi ég ekki atkv. um málið, en sá eftir því á eftir, eins og atkv. féllu. Ef ég hefði fellt fleyginn hér í d., hefði frv. komizt í gegn. Nd. valdi þá leið að samþ. frv. Þeir, sem mestan áhuga höfðu fyrir þessu máli, samþ. fleyginn, en gerðu grein fyrir sínu atkv. og vonuðu, að hann kæmi ekki til framkvæmda. En þeir samþ. þennan óskapnað aðeins til þess, að þeir gætu gengið þannig frá því að bændur hefðu sinn kauprétt. Það er eðlilegt, að hv. þm. gangi framan að málstaðnum, og séu annaðhvort á móti því, að bændur fái kaupréttinn, eða með því, en séu ekki með fleyga, sem orsakaði þau vinnubrögð á Alþingi í fyrra, sem voru til fullkominnar minnkunar.