04.04.1938
Efri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (449)

18. mál, lax- og silungsveiði

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég sá á blaði hjá mér, að ég hefi ekki svarað að fullu viðvíkjandi framkvæmd þessarar þáltill. Ég vil a. m. k. áður en hv. 1. þm. Reykv. greiðir atkv. með vantraustinu annað kvöld taka það fram, að ég skrifaði út af þessari till. til veiðimálan., undir eins að loknu þingi, og lagði fyrir hana að endurskoða lögin. Fékk svo bréf um, að það myndi kosta mikið fé að endurskoða löggjöfina og rannsókn á ánum. Ég lét mér það ekki í augum vaxa og skrifaði aftur og sagði, að sjálfsagt væri að standa straum af þeim kostnaði, því að þetta væri samþykkt, sem yrði að framkvæmast. Ég ætlaði að skjóta þessu til hv. þm., áður en hann greiðir atkv. um vantraustið út af þessu. (MJ: Vantraustið er ekki út af þessu framkvæmdaleysi, heldur ráðleysinu með svo einfalt mál).