11.04.1938
Neðri deild: 46. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (495)

58. mál, mat á matjessíld og skozkverkaðri síld

*Ísleifur Högnason:

Ég þykist vita, að þeim hv. þm., sem síðast talaði, muni vera kunnugt um dæmi það, er ég nefndi áðan, að íslenzkir síldarbraskarar seldu til Danmerkur birgðir af útvatnaðri saltsíld, sem síðan var seld sem matjessíld á þýzkum markaði. Hafi gróðinn numið 40 þús. kr., sem mun láta nærri, þá hefðu þeir haft efir 38 þús. kr. í hreinan ágóða, enda þótt þeir hefðu greitt þessar 2000 kr. í sekt, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég tel þetta því ekkert hégómamál, eins og hv. þm. Ísaf. virðist gera. Mun ég því bera fram brtt. um að hafa þetta sektarákvæði hærra.