19.04.1938
Efri deild: 49. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

93. mál, rannsókn banameina

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Þetta frv. er komið frá Nd. og hefir legið fyrir allshn. þessarar d.

Efni þessa frv. er í aðalatriðunum það, að opna fyrir. að líkskurður geti farið fram á öllum sjúkrahúsum, þó að ríkið reki þau ekki. N. hefir aflað sér upplýsinga hjá ýmsum læknum um þetta atriði, og þær upplýsingar hnigu í þá átt, að sjálfsagt væri að gera þetta, því eins og allir vita, eru ýmis sjúkrahús rekin af öðrum en ríkinu, en nauðsylegt er, að líkskurður geti farið fram víðar en á ríkisspítölunum.

N. er öll sammála um að mæla með, að frv. verði samþ.