14.03.1938
Neðri deild: 21. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

*Bjarni Bjarnason:

Ég hefi ekki getað borið mig saman við meðflm. mína um brtt. hv. landbn. og nál. Ég er þakklátur n. fyrir það, hve fljótt hún hefir afgr. málið frá sér. Sumar brtt. hennar tel ég til bóta, en aðrar til hins lakara og mun ég að þessu sinni aðeins gera þær að umtalsefni.

Ég get fyllilega tekið undir það, sem hv. þm. Dal. sagði um 5. brtt., sem er við á. gr. frv., og ég get meira að segja undirstrikað allt, sem hann sagði um þetta atriði. Það er aldrei nema rétt, að 18 ára stúlka er venjulega þroskaðri en 16 ára stúlka, en það er ýmislegt samt, sem mælir gegn því, að lágmarksaldur stúlkna, sem inngöngu eiga að fá í húsmæðraskólana, skuli miðaður við 18 ár. Það er t. d. alkunna, að foreldrar leggja oft mikið kapp á að koma börnum sínum strax úr barnaskólanum til framhaldsnáms, bæði í unglingaskólana og aðra hliðstæða skóla, þykir illt að þurfa að láta þau bíða lengi, enda þótt það sé betra fyrir unglinga. sem ekki eiga að njóta nema unglingafræðslu, að bíða dálítið með skólanám sitt eftir ferminguna. En það atriði út af fyrir sig taka aðstendendur unglinganna að jafnaði ekki alvarlega. Það skal líka fyllilega játað, að dragist það mjög lengi frá fermingu. að unglingarnir eigi kost á að komast til framhaldsnáms, þá getur það í mörgum tilfellum orðið til þess, að unglingar tapi af náminu; rás viðburðanna getur á ýmsan hátt gripið þar inn í. og þá sérstaklega hvað snertir stúlkurnar, því að eins og alkunnugt er, þá giftast þær oft ungar, og geta þá jafnvel verið komnar í hjónabandið, þegar þær hafa náð þeim aldri, sem þær þurfa — að hafa til þess að geta orðið aðnjótandi húsmæðrafræðslu, sé hann settur mjög hár.

Það út af fyrir sig, að aldurstakmarkið þurfi að vera svona hátt eins og það er sett í brtt., vegna þess að stúlkur séu almennt ekki orðnar nægilega þroskaðar til þess að geta haft full not námsins fyrr, er vitanlega ekki rétt. Hitt er sanni nær, og það er reynslan margbúin að staðfesta, að stúlkur á aldrinum 16–18 ára eru mjög góðar til náms, og myndu því yfirleitt fyllilega geta hagnýtt sér þá kennslu, sem gert er ráð fyrir að verði að fá við húsmæðraskólana. Af því, sem ég nú hefi talið fram. verð ég að mæla mjög eindregið á móti brtt. þessari.

Þá kem ég að 7. brtt. Hún er við 7. gr. frv. Það, sem ég tel athugavert við hana, er það, að þar er sagt, að kennslan skuli vera bæði bókleg og munnleg. Að kveða svona fast að orði, sem hér er gert. tel ég varhugavert, því að oft er kennslukröftum svo háttað við húsmæðraskólana, að það gæti orðið erfitt að fullnægja þessu ákvæði. Að sjálfsögðu mun þetta ekki koma til þar, sem húsmæðraskólarnir verða í sambandi við aðra skóla, eins og t. d. alþýðuskólana, en þar, sem þeir eru eða verða sjálfstæðir út af fyrir sig, getur þetta komið fyrir. Mér virðist því, að varhugavert sé að kveða svo fast að orði um þetta. Í frv. er sleginn varnagli fyrir þessu, þar sem sagt er, að námsgreinarnar skuli vera eftir því, sem við verði komið. Verði brtt. þessi því samþ. nú, mun ég flytja brtt. við 3. umr. um að færa þetta á sama veg sem það er nú í frv.

Þá leggur n. til, að fellt verði niður ýmislegt, sem henni hefir þótt of mikið nýmæli, eins og t. d. hjálp í viðlögum; sem helzt þyrfti að kenna í hverjum einasta skóla. Hvernig á því stendur, að hv. n. vill fella þetta niður, fæ ég ekki skilið, því að hvað er á móti því, að fólk kunni yfirleitt tök á því, hvað gera skal, þar til náð verður í lækni, ef slys ber að höndum. Þá er og nauðsynlegt fyrir alla að kunna að búa um sár, stöðva blóðrás o. fl. Og hvar á slík kennsla betur heima en einmitt í húsmæðraskólunum?

Þá leggur n. og til, að felld verði niður kennsla í barnasálarfræði og meðferð ungbarna. Verði brtt. þessi samþ., þá tel ég það miður farið, því að því verður ekki með rökum neitað, að ennþá er meðferð ungbarna almennt ekki sem skyldi hjá okkur. Margar mæður eru ennþá allmjög vankunnandi í meðferð barna sinna, og enn er það svo hjá okkur, að flestir deyja hlutfallslega á fyrsta aldursskeiði, sem á rót sína að rekja til þess, að meðferð ungbarnanna er ekki eins góð og gera verður kröfu til.

Þá leggur n. til, að í staðinn fyrir orðin „hirðing húsdýra“ verði sett: alifuglarækt. — Hv. n. hefir þótt óviðkunnanlegt að láta standa þarna „hirðing húsdýra“. En ég fyrir mitt leyti sé ekkert á móti því að láta þessi orð standa í frv. Erlendis er það t. d. algengt, að kennt sé í húsmæðraskólunum að hirða ýms húsdýr, og því tel ég ekki, að það væri nein sérstök goðgá, þó að það væri líka kennt hér. Eða hvað er kannske á móti því, þó að stúlkur kunni að mjólka kýr og hirða um hin algengustu húsdýr? Það getur oft komið sér vel fyrir húsmæður að kunna að grípa til slíkrar kunnáttu. Ég tel því sjálfsagt, að við hvern húsmæðraskóla væri t. d. 1 refapar, minkar og jafnvel kanínur, svo hægt væri að veita stúlkunum tilsögn í hirðingu þessara dýra (BÁ: Væri ekki réttast að hafa húsmæðraskólana bara sem sérstaka deild við bændaskólana?). Mér er alveg sama hvað hv. frsm. grípur fram í fyrir mér; ég sný ekki til baka með það, sem ég hefi sagt, tek ekkert af því aftur. Annars vil ég segja þessum hv. þm., sem greip fram í fyrir mér, ef hann skyldi ekki vita það, að sú barátta er þegar hafin. ekki aðeins meðal erlendra kvenna, heldur og meðal íslenzkra kvenna líka, að keppa að því að þurfa ekki að sækja allt vit í manninn sinn. Sérþekking konunnar á þessu sviði getur líka oft verið mjög nauðsynleg fyrir heimilin, því að það er nú einu sinni svona, að bóndinn þarf oft að fara að heiman, og verður oft að dvelja lengri og skemmri tíma utan heimilis sins, auk þess, sem margur bóndinn er beinlínis óhneigður fyrir að hirða dýr. Í slíkum tilfellum er því mjög gott, að húsmóðirin beri skyn á hirðingu húsdýranna.

Þá er lagt til, að 9. gr. frv. falli niður. Um þá till. skal ég ekki vera fjölorður, því að vel má vera, að það, sem í greininni stendur, megi taka fram í reglugerð.

Hvað snertir 10. brtt., þá vil ég fyrst segja það, að ég er að öllu leyti sammála því, sem hv. þm. Dal. sagði um hana. Ég tel alls ekki rétt að taka það ákveðið fram í lögum, að skóli skuli ekki hafa rétt til þess að fá styrk, ef hann hefir t. d. ekki í eitt skipti fulla tölu nemenda. Hitt væri miklu frekar athugandi, hvort ekki væri rétt, að setja ákvæði í lögin um það, að sá skóli skyldi beinlinis lagður niður, sem ekki væri sóttur ár eftir ár nema aðeins af mjög fáum.

Ég verð algerlega að mæla gegn 11. brtt., heimildinni til þess að taka skólagjald. Höfuðrök hv. frsm. landbn. fyrir því að hafa ákvæði í lögunum um heimild til þess að taka skólagjald, frekar við húsmæðraskóla en bændaskóla, voru þau, að nemendur bændaskólanna ynnu svo mikið að nýtilegum störfum við skólana. Ég fæ nú ekki séð, að á þessu þurfi að vera svo mikill munur, því að vitanlega getur komið til mála að láta stúlkurnar vinna ýmislegt við húsmæðraskólana, sem yrði eign þeirra, eins og t. d. teppi, gluggatjöld o. fl. Þá ber og þess að gæta, að stúlkur hafa alltaf miklu lægra kaup en piltar, og eiga því yfirleitt miklu erfiðara með að kosta sig á skólana en þeir. Þessi mikli aðstöðumunur, sem er á milli pilta og stúlkna að kosta sig til náms, er löngu viðurkenndur t. d. við alþýðuskólana, þar sem stúlkurnar eru jafnan látnar greiða 1/3 minna fyrir sig en piltarnir, og er þetta gert alveg án tillits til þess, hvort fæðiskostnaður stúlknanna sé í raun og veru 1/3 lægri en piltanna. — Af því, sem ég nú hefi tekið fram, vil ég alveg sérstaklega leggja áherzlu á, að þessi brtt. verði felld.

Ég er ánægður með undirtektir hv. 7. landsk. undir frv., að hann skuli ætla að fylgja því, enda þótt hann óski, að það verði gert víðtækara. Afstöðu hans sem fulltrúa fyrir bæjarfélag get ég vel skilið. Ég vil segja þessum hv. þm., að það, sem fyrir mér vakir, er að koma fyrst skipun á húsmæðrafræðslu sveitanna, því að þá er vist, að húsmæðrafræðsla bæjanna og kauptúnanna kemur á eftir, alveg eins og skriðurinn með alþýðuskólana hafði það í för með sér, að farið var að koma upp gagnfræðaskólum í kaupstöðunum.

Við II. kafla frv., húsmæðrakennaraskóla, hefir n. ekki gert aðra breyt. en þá, að í upphafi 14. gr. komi: „Heimilt er að stofna“, í stað þess sem frv. segir: Stofna skal húsmæðrakennaraskóla“. Ég get eftir ástæðum fellt mig við þessa brtt., því að í báðum tilfellunum er stofnun skólans bundin því skilyrði, að hann skuli stofna þegar fé sé veitt til hans í fjárlögum.

Ég hefi þá látið í ljós álit mitt á þessum umræddu till., og eftir því, sem ég bezt veit, einnig álit sumra meðflm. minna líka.