14.03.1938
Neðri deild: 21. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (615)
25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
*Ásgeir Ásgeirsson:
Ég vil skjóta því til landbn., hvort hún telji ekki rétt að taka aftur tvær af brtt. sínum á þskj. 80. Sú fyrri af till. þeim, sem ég hefi í huga, er 5. brtt., við 5. gr. frv., að í stað 16 ára aldurslágmarks komi 18 ára. Það getur verið rétt hjá hv. n., að æskilegt væri, að sem flestar stúlkur sæktu skólana eftir 18 ára aldur, en þó væri nauðsynlegt að hafa undanþágu frá þessu. (BÁ: Það er nefnt í frv.).
En ég teldi þó betra að hafa markið 17 ára, með undanþáguheimild.
Þá er 10. brtt., við 10. gr. frv., að skóli skuli ekki eiga kröfu á styrk, ef nemendatala fer niður úr 10 á árinu. Það gæti komið illa niður á skóla, að vera sviptur styrk ákveðið ár, þó að nemendatalan færi niður úr 10 það árið, enda þótt hún væri ef til vill miklu hærri árin á undan og eftir. Þessu vildi ég láta breyta þannig, að miðað væri við meðaltal nokkurra ára, t. d. þriggja, þannig að meðaltalið mætti ekki fara niður úr 10. Slík regla gildir um héraðsskólana. En fari nemendatala niður úr 10 þrjú ár í röð, þá er ástæða til að athuga, hvort breyta skuli fyrirkomulagi skólans eða leggja hann jafnvel niður. Vænti ég a. m. k., að hv. n. fresti þessum tveim till. til 3. umr.
Þá er till. n. um húsmæðrakennsluskóla. Ég álít varhugavert að setja upp slíkan skóla hér á landi á næstunni þar sem hann myndi varla hafa nóg verkefni. Hér er gert ráð fyrir 6 húsmæðraskólum í sveitum og svo nokkrum í kaupstöðum. Gerum ráð fyrir, að hér yrði um að ræða 10–12 skóla, hvern með 3 kennslukonum. Flestar mundu þær verða ungar, og er þá auðséð, að viðkoma kennslukvenna gæti ekki orðið svo mikil, að þörf væri á sérstökum skóla hér á landi til að útskrifa þær. Tel ég réttara að styrkja heldur húsmæðrakennara til að sækja húsmæðraskóla á Norðurlöndum, sem eru svo góðir, að hérlendur skóli gæti ekki keppt við þá. Þetta gæti aldrei orðið nema húsmæðrakennsluskóli af lægri gráðu, því að margar af þeim konum, sem þá sæktu, yrðu síðar að auka við menntun sína erlendis. Ég teldi gagnlegra að hafa deild við húsmæðraskólana, sem gæti séð fyrir einskonar meira prófi. Hér vantar ekki aðeins kennslukonur, heldur einnig ráðskonur við heimavistarskóla, spítala o. s. frv. Eigi á annað borð að hafa í frv. heimild um meira húsmæðrapróf, þá ætti að hafa fleiri sjónarmið en að undirbúa húsmæðrakennara. Þetta vil ég benda hv. n. á fyrir 3. umr.
Þá vil ég taka undir við þá, sem kunna því illa, að ekki séu samtímis sett l. um húsmæðrafræðslu í sveitum og kaupstöðum. Bæði sveitir og kaupstaðir hafa hér sama rétt. Þetta frv. er svo úr garði gert, að eðlilegt væri að bæta inn í það nýjum kafla um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum. Maður býst við, að II. kafli sé um þetta efni, þegar litið er á frv., þar sem I. kafli er um húsmæðrafræðslu í sveitum. En svo er þó ekki.
Þó að löggjöf um þetta tvennt hlyti að vera með nokkuð ólíkum hætti, ætti hún þó að vera öll í einu frv. Eftir samtali við einn hv. nm., býst ég við að koma fram með brtt. um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum fyrir 3. umr. Það verður líka að nokkru leyti ólíkt um það, hvernig þeir verða kostaðir, þar sem héraðsskólarnir hafa ekkert hérað eða umdæmi bak við sig, heldur eru þeir meir stofnaðir af samböndum og félögum og ýmsum aðiljum, sem svo eiga að skipa skólana. En aftur á móti má búast við því í kaupstöðunum, að bæjarfélögin sjálf gangist fyrir stofnun skóla og beri kostnað af þeim með líkum hætti og af gagnfræðaskólunum í kaupstöðunum. Þessir tveir kaflar, um húsmæðrafræðslu í sveitum og húsmæðrafræðslu í kaupstöðum, yrðu þess vegna með nokkuð álíka mun og eru á l. um héraðsskóla í sveitum og l. um gagnfræðaskóla í kaupstöðum. Ég vil vonast til þess, að það komi annar kafli í þetta sama frv., eða það komi bráðlega sérstök löggjöf um kaupstaðaskóla. Það má færa þá röksemd fyrir því að hafa þetta í tveimur frv., að það eru líkur til, og ekki óeðlilegt, að sveitaskólarnir verði á sama hátt og bændaskólarnir undir landbúnaðarráðuneytinu, en kaupstaðaskólarnir undir kennslumálaráðuneytinu, eins og flestir aðrir skólar landsins.
Ég hefi svo ekki fleira fram að taka við n., en legg sérstaka áherzlu á, að þeim grundvelli, sem lagður er að húsmæðrakennaraskóla með 2. kafla frv., verði breytt, svo hann fullnægi hinni raunverulegu þjóðarþörf og kaupstaðirnir verði ekki afskiptir í þessu máli.