14.03.1938
Neðri deild: 21. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (617)

25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

*Bjarni Bjarnason:

Ég get verið mjög stuttorður. Það er í sjálfu sér ekki svo mikill ágreiningur um þetta mál. En þau atriði, sem ég minntíst á áðan í sambandi við 7. gr., eru enn algerlega óhrakin. Það kom fram hjá hv. frsm. og mér nokkur sjónarmiðamunur, og þá sennilega frá n. hendi, þar sem hann talaði fyrir hana.

Ég vil aðeins geta um það, að hann minntist á það í skopskyni, að það myndi hafa verið aðallega í Árnessýslu, að konur ynnu út á við, eins og t. d. að hirðingu húsdýra. Ég vil spyrja að því, hvort það sé ekki óbreytt enn, að það sé heldur þægilegra fyrir íslenzka sveitakonu að kunna að mjólka kýr. Ég skal viðurkenna, að það mundi vera mjög óþægilegt fyrir konu í Árnessýslu, að kunna ekki að mjólka kýr, og kunna ekki góð skil á því, hvaða munur er á vel eða illa hirtri kú. (BÁ: Mjaltir eru aldrei nefndar hirðing). Það er mjög hætt við því, að þá konu, sem ekki kann að mjólka, vanti fleira, sem þarf til þess að vita, hvað tilheyrir í þessu efni. En sú kona, sem kann að mjólka, hefir miklu meiri líkur til þess að vita meira um það, hvaða góð hirðing er. Það er mikill munur að ganga að þessu verki, eftir því, hvernig hirðing gripanna er. Ég hélt, að það væri ekki svo lítið atriði, að hjónin, annaðhvort bæði eða sitt á hvað, hefðu vit á hlutunum. Konan tekur á móti mjólkinni úr fjósinu. Eins og hana varði þá ekki um, hvernig hirðing kúnna er í sambandi við það? Mér er það kunnugt um þessa hluti, að ég veit, að það er höfuðaðatriði, að húsfreyjan kunni góð skil á mjólk og meðferð hennar. Þykir mér einkennilegt að heyra slíku neitað af mönnum, sem þurfa að uppfylla lagaákvæði um þetta atriði. Hefði verið ánægjulegra, að bændur hér hefðu sjálfir séð um, að meðferð mjólkurinnar væri slík, að ekki þyrfti að setja þar um lagaákvæði. Ég skil það, að það er mikið atriði, að húsmæðraskólar haldi sér fyrst og fremst við það raunverulega og þar á meðal það, að konurnar hafi vit á hverskonar hirðingu húsdýra. Ég held ennfremur, að við karlmennirnir mættum sjá sóma okkar í því að kunna eitthvað til innanhúsverka og ættum ekki að ala upp þann anda, að það sé skilyrðislaust hlutverk konunnar að kunna til innanhússtarfa og karlmanna að kunna utanhússtörfin, en ekki gagnkvæmt, heldur mættum við vera hverjum þeim þakklátir, sem sér sóma sinn í því að geta gegnt innanhússtörfum þegar þörf krefur. Ég vona. að almenningsálitið verði svo sterkt, að þeim manni verði illvært, sem ekki getur gripið til húsverka, og sömuleiðis með konurnar, að þær gætu gripið til starfa karlmannanna. Þetta er mér áhugamál og vildi því láta það koma fram í lögunum. Ef mönnum finnst þetta gamaldags skoðun, þá vil ég segja það sem álit mitt, að ég tel að ástæða sé til að vekja hana upp á ný, svo þetta sé alltaf ný skoðun.

Þá eru örfá orð um ungbörnin. Hv. frsm. n. virtist ekki skilja, að hægt væri að kenna að gagni í því efni, nema alltaf væru fyrir hendi börn til að hirða. Auðvitað er öll kennsla betri og raunverulegri, ef mögulegt er að handleika og gagnrýna hvern hlut, lifandi eða dauðan, sem kennslan snýst um, en í mörgum námsgreinum verðum vér að láta oss nægja þá fræðilegu kennslu, og skil ég ekki annað en að hægt væri að leiðbeina ungum stúlkum um marga hluti, bæði er snerta lifnaðarhætti hennar meðan hún gengur með barnið, og eftir að það er fætt, svo og meðferð barnsins, næringu þess og móðurinnar. Vil ég benda hv. frsm. á, hvort hann heldur, að það hafi enga þýðingu t. d., hvort móðirin mjólkar barninu sínu nóg. Að vísu hefi ég heyrt tvennar skoðanir lækna um það, hvort móðurmjólkin sé barninu hollust eða ekki, en ég trúi því, að náttúran hafi séð svo um, að sú fæða sé barninu bezt. Nú mjólka margar konur ekki nóg handa börnunum, og þá er ekki þýðingarlaust fyrir þær að vita, hvernig þær eiga að nærast sjálfar til að auka mjólkina, eða að öðrum kosti, hvernig þær eiga að næra barníð. Ég get trúað, að mönnum þyki þessar umr. ekki vera orðnar sérlega þinglegar, en það er mér ekkert hryggðarefni.

Ég vil endurtaka það, að ég trúi því ekki, að ekki sé hægt að leiðbeina ungum stúlkum svo um þetta efni, að gagn sé að, án þess að börn séu höfð. Vér þekkjum víst flestir tvær hliðar á því, hvernig farið er með ungbörn eftir að þau eru komin í heiminn. Við vitum, að heilbrigt og vel með farið barn er rólegt, en barn, sem býr við vanliðan, er órólegt. Þessu gera margar mæður sér ekki grein fyrir.

Þá vil ég minnast á uppeldisfræðina, og vil ég benda á, að uppeldísfræði og sálfræði er ekki það sama í sjálfu sér. Annað er um það meðfædda, en hitt um það, hvernig skuli með það farið, og það er, eins og allir vita, tvær fræðigreinar. Hinsvegar er hægt að láta sér nægja að tiltaka aðra þeirra og kenna þær saman.

Vegna þess að tækifæri gafst til að segja nokkur orð um þessi atriði, vildi ég ekki láta hjá líða að segja nokkur orð til að undirstrika það, að það, sem ég hefi sagt, er mér mikið alvörumál, og ég tel, að það ætti öllum að vera.

Ég ætla að fara framhjá því að mestu, hvort skólagjald eigi að greiðast eða ekki. Ég rökstuddi andmæli mín gegn skólagjaldinu með því, að stúlkurnar væru yfirleitt efnaminni og því siður ástæða til að leggja á þær skólagjald en piltana í bændaskólunum, en þeir eru alveg lausir við þessi gjöld. Ég skal ekki fara að endurtaka það, sem mælt hefir verið með þessu eða móti; það er alveg þýðingarlaust.

Þá vil ég minnast á eitt atriði, sem kom fram hjá hv. þm. V.-Ísf. viðvíkjandi 2. kafla frv., um það, að viðkoman yrði of mikil af kennslukonum, ef við hefðum okkar eigin skóla. Ég vil aðeins benda á það, hve gagnlegt það væri fyrir okkur að hafa góðan kennslukonuskóla, svo að þær, sem þar læra, geti aftur kennt út frá sér með tilliti til íslenzkra staðhátta fyrst og fremst, því við vitum, að þær stúlkur, sem fara út í heim til að læra eitthvað, verða eðlilega hrifnar af því, sem þær sjá, en hafa ekki að sama skapi hugsun á að samræma það þeim staðháttum, sem þær eiga síðar við að búa. Viðkoman mun varla verða of mikil. Þessar ungu stúlkur fara í allar áttir, þótt þær læri eitthvað sérstakt, og það gengur jafnóðum úr þeim hóp, þær giftast og fara að sinna sínum húsmóðurstörfum, en nú þegar er þörf á allmörgum kennurum í viðbót. Þá má og minna á það, að heimavistir í skólum fara mjög í vöxt og stúlkur með slíka menntun mundu vera mjög heppilegar sem forstöðukonur í þeim heimavistum. Þeim ætti ekki að verða þetta nám svo dýrt, að þær gætu ekki tekið að sér slíkar stöður, þótt þær væru ekki sérlega hátt launaðar.

Ég álít, að þessi kennaraskóli húsmæðra, húsmæðraskólarnir og námskeiðin ættu að geta orðið mikil lyftistöng til bættrar aðstöðu kvenna í lífsbaráttunni.