23.03.1938
Neðri deild: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (623)
25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
*Bjarni Bjarnason:
Ég hafði búizt við, að hv. frsm. landbn. talaði fyrir þeim till., sem hér liggja fyrir frá n., en þar sem hann er ekki viðstaddur, vil ég segja fáein orð um þá till., sem ég er 1. flm. að á þskj. 112. Er hún viðvíkjandi 7. gr. frv. og felur í sér mjög litla breyt. Gr. sjálf tekur beint fram, hverjar af námsgreinunum skuli vera verklegar og hverjar bóklegar. Til þessa virðist ekki ástæða, og kom það fram í umr., að nokkur ágreiningur varð um, hvort viss námsgrein tilheyrði bóklegu eða verklegu námi. En með því að telja upp námsgr. án þess að tilgreint sé, hverjar séu bóklegar og hverjar verklegar, er hægt að komast fyrir allan ágreining í þessu efni.
Það, sem aðallega var ágreiningur um síðast þegar málið var hér til umr., voru vissir hlutir verklega námsins, sem sé að hve miklu leyti skyldi kenna námsmeyjum við húsmæðraskóla húsdýrarækt. Í brtt. landbn. var nefnd í þessu sambandi aðeins alifuglarækt, en mér fannst, að kennsla um önnur húsdýr ætti eins mikinn rétt á sér. Þess vegna batt ég þetta allt í orðinu húsdýrarækt. Og þar sem vitað er, að ekki er hægt að kenna neitt verklegt í þessari grein, og sama má segja um garðrækt, að þetta getur ekki urðið nema dálítil vakning í þessu sambandi, þá hefi ég orðað þetta eins og brtt. ber með sér. og vil ég mælast til. að hv. d. vilji fallast .! að orða gr. þannig. Mér finnst það miður, ef ekki er gert ráð fyrir í þessu frv., ef að l. verður, að hægt sé að hafa með höndum, að svo miklu leyti sem hægt er, kennslu í húsdýrarækt og garðrækt. Um garðræktina er sama að segja, að hún getur aldrei orðið nema takmörkuð á svona skóla, þar sem garðrækt í þess orðs fyllstu merkingu er mikið og erfitt nám.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um brtt. á þskj. 112, en vil aðeins endurtaka þá ósk mína, að hv. d. vilji fallast á hana. Ég kann verr við að tala um hinar till. strax, og vil a. m. k. sjá, hvort ekki vilja einhverjir hv. þm. mæla fyrir þeim fyrst.