23.03.1938
Neðri deild: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (624)
25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
*Steingrímur Steinþórsson:
Hv. frsm. landbn., þm. Mýr., er ekki við, svo að ég tel rétt, að einhver úr n. segi örfá orð um þær brtt., sem n. hefir horið hér fram og eru ekki stórvægilegar.
Við 2. umr. málsins voru það einkum 2 atriði, sem deilt var um. Í fyrsta lagi var það ákvæði 5. gr. um aldurstakmark nemenda. Var nokkuð deilt um, hvort það skyldi vera 16 ár, eins og upphaflega var í frv., eða 18 ár, eins og landbn. lagði til. Við tókum till. aftur við 2. umr. og erum nú sammála um að fara meðalveginn og leggja til, að aldurslágmarkið skuli vera 17 ár. Væntum við, að um það geti orðið samkomulag, þar sem þar að auki er gert ráð fyrir, að velta megi undanþágu frá þessu. Ég skal taka fram að ég lít svo á, að ekki sé ástæða til að æskja eftir, að stúlkur fari á húsmæðraskóla yngri en 17 ára; a. m. k. þykist ég hafa þá reynslu um pilta á bændaskólum, að óheppilegt sé, að þeir komi þar yngri en 18 ára, gott ef þeir eru upp að 20 ára að aldri. Ég veit, að stúlkur eru nokkru bráðþroskaðri, en ég hygg, að hér sé stillt í hóf hvað þetta snertir.
Þá er hér brtt. við 9. gr., og það er um styrkinn til þessara húsmæðraskóla. Var nokkuð deilt um það um daginn, hvort rétt væri að neita þessum skólum um styrk, þótt nemendatala væri mjög lág. Komu fram mótmæli gegn þeirri brtt. n., að ekki væri skylt að styrkja skólana, ef nemendatala færi eitt skólaár niður fyrir 10. Nú hefir landbn. reynt að fara meðalveg í þessu líka og leggur til að síðasta málsgr. 9. gr. orðist eins og hér er gert ráð fyrir, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú fer nemendatala skóla niður úr tíu eitt skólaár, og á hann þá ekki kröfu á styrk á næsta skólaári, nema því aðeins, að nemendur verði þá tíu eða fleiri“.
Eins og hv. þdm. sjá, er hugmyndin með þessu sú, að ekki sé skylt að styrkja skóla, sem hafa fleiri ár í röð mjög lága nemendatölu. Sé ég ekki annað en það sé sanngjarnt, að ríkisstj. geti gripið í taumana og neitað um styrk til skóla, ef þar er mjög lág nemendatala fleiri ár í röð.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessar brtt., en nú sé ég, að hv. frsm. n. er hér kominn, og getur hann þá bætt við, þar sem hann telur þörf á. Skal ég svo ekki segja fleira um það atriði.
Ég skal að síðustu taka það fram viðvíkjandi brtt. við 7. gr., frá hv. þm. Árn., að ég held, að n. hafi ekki tekið neina fasta afstöðu til hennar, svo að nm. hafa um hana óbundin atkv., og ég fyrir mitt leyti geri það ekki að neinn kappsmáli, hvort kr. verður samþ. eins og þar er lagt til eða óbreytt eins og hún er í frv.