23.03.1938
Neðri deild: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í B-deild Alþingistíðinda. (627)
25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
*Bjarni Bjarnason:
Ég skal fyrst víkja að því atriði í ræðu hv. þm. Mýr., að óhagkvæmt sé að orða 7. gr. frv. eins og við flm. brtt. á þskj. 112 leggjum til, því að sumir skólarnir hafi engan búrekstur. Á þessa röksemd hv. þm. get ég alls ekki fallizt, því að alltaf má þó ganga út frá því, að við alla skólana hagi svo til, að þar megi hafa einhverja garðrækt. Um hitt atriðið, húsdýraræktina, er það að segja, að við alla skólana hagar þó svo til, að skýra má þetta atriði fyrir nemendum. Hinsvegar skal ég viðurkenna þá stefnu, sem almennt ríkir, ekki aðeins að því er snertir þessa kennslu, heldur og yfirleitt alla kennslu, að hún sé sem næst raunhæf, en ég býst bara við, að það verði ennþá alllangt í land, þar til hægt verður að koma kennslu ungmenna alstaðar í það horf. Annars býst ég ekki við, að rök þau, sem hv. þm. Mýr. var að reyna að færa fram gegn þessu, breyti neitt skoðunum manna um þessa hluti.
Um brtt. á þskj. 110, frá hv. landbn., við 5. gr. frv., skal ég vera fáorður. Í frv. er tekið fram, að forstöðukonur skólanna geti veitt undanþágu frá aldurstakmarkinu. Skiptir því litlu máli, hvort lágmarksaldur námsmeyjanna verður settur 16 eða 17 ár. Ég tók það fram við 2. umr. þessa máls hér í d., að ég legði áherzlu á, að aldurstakmarkið væri ekki sett fast við 18 ára aldur, og byggði ég þá kröfu mína á þeirri staðreynd, sem fengin er fyrir því, hvað fólk sækir yfirleitt fast að geta haldið námi sínu áfram þegar eftir fermingu, þó að ég geti hinsvegar tekið undir það, að í flestum tilfellum sé það ekki eftirsóknarvert fyrir nemendurna sjálfa eða skólana. Hvort sem aldurstakmarkið verður því sett við 16 eða 17 ár, þá er ég þess fullviss, að fjölda margar undanþágur verða veittar, úr því heimild er á annað borð til þess.
Ég skal ekki fara mikið inn á umr. um það, hvar húsmæðrakennaraskóli skuli settur niður, verði hann stofnaður. En það, sem vakti fyrir mér með því að lögákveða ákveðinn stað, var að útiloka alla togstreitu um staðinn, og um það mun vart verða með rökum deilt, að Laugarvatn sé einhver bezti staðurinn, a. m. k. af héraðsskólasetrunum, fyrir slíkan skóla. Að fram skyldi koma brtt. í þá átt að fella það niður úr frv., að skóli þessi skuli verða að Laugarvatni, bendir ótvírætt í þá átt, hvað fram undan muni vera í máli. Hygg ég því, að bezt sé fyrir alla þá hv. þm., sem fyrirbyggja vilja togstreitu um þetta efni, að tryggja nú ,þegar góðan stað fyrir þennan fyrirhugaða skóla, en það gera þeir bezt með því að greiða atkv. með 13. gr. frv. eins og hún er nú, en á móti brtt. á þskj. 111.
Út af ummælum hv. þm. Ísaf. um frv. og húsmæðrafræðslu bæjanna vil ég endurtaka það, sem ég sagði við 2. umr. þessa máls, að ég tel sjálfsagt, að húsmæðrafræðslu bæjanna verði komið í svipað horf og hér er farið fram á að skipa húsmæðrafræðslu sveitanna, en ég tel réttara, að það verði gert með sérstökum lögum, frekar en setja ákvæði inn í þessi lög um hana beinlínis. Annars þarf enginn að halda það, að húsmæðraskólar sveitanna verði eingöngu fyrir sveitastúlkur, eða kaupstaðarskólarnir fyrir kaupstaðarstúlkur. Skólarnir verða vitanlega sóttir sitt á hvað af stúlkum bæja og sveita. Um annað getur aldrei orðið að ræða, þó að staðhættirnir eðlilega skapi það, að meginþorrinn í hverjum skóla verði úr þeim byggðarlögum, sem skólinn er í.