06.05.1938
Sameinað þing: 27. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
1. mál, fjárlög 1939
*Fjrmh. (Eysteinn Jónsson):
Það eru nokkur orð um brtt. á þskj. 425,XXXlll, sem ég flyt. Í fyrsta lagi er þar heimild fyrir ríkisstj. að innheimta skemmtanaskatt af öðru en kvikmyndum með 20% í stað 80%. Þessi till. er þannig til komin, að nú um áramótin settum við upp allrækilegt eftirlit með innheimlu skemmtanaskatts. Áður hafði það tíðkazt, án þess að sjáanleg væri fyrir því nokkur lagaheimild, að reikna skemmtanaskatt af dansskemmtunum og þvílíku eftir klukkustundafjölda, en ekki eftir verði aðgöngumiða. Þegar við fórum að innheimta skattinn stranglegar, kom í ljós, að það í framkvæmdinni hækkaði skattinn á öllum þessum skemmtunum gífurlega, og hafa þau félög, sem hafa slíkar skemmtanir sér til ágóða, sem eru einkanlega íþróttafélög, lostið upp miklu ópi út af þessu. Þetta sé stórkostleg skerðing á tekjum af skemmtunum, af því að það er takmarkað, hvað hægt er að selja aðgöngumiðana fyrir. Nú hefi ég tekið þetta mál til gagngerðar athugunar og komizt að þeirri niðurstöðu, að heppilegt sé að innheimta aðeins með 20% . hefi ég von um, að með því mundu tekjur ríkissjóðs af skattinum reynast ekki minni en þær hafa reynzt með þeirri innheimtuaðferð, sem áður tíðkaðist.
Þá á ég till. á sama þskj., XXXVII, a, um það, að endurgreiða megi á árinu 1938 og 1939 viðskiptagjald af efni í niðursuðudósir undir íslenzkar afurðir að nokkru eða öllu leyti. Er þetta gert til þess, að framleiðendur þessara dósa geti orðið samkeppnisfærir um verð. Aðallega eru þetta rækjudósir og mjólkurdósir. Mér þykir betra að setja þetta í fjárlög heldur en farið sé að breyta frv. til l. um tekjuöflun ríkissjóðs. Þess vegna hefi ég flutt þessar till., líka með tilliti til þess, að fyrir liggur gagngerð endurskoðun á öllum tollalögum.
Á síðasta þingi voru samþ. l. um toll af hálfunnu kassaefni. Það kom í ljós, að þessi l. voru mjög vond fyrir þá, sem flytja vildu út ísvarinn fisk, og ber mikla nauðsyn til, að frá þeim sé hægt að víkja, enda áttu þau l. að vernda iðnaðinn. Til þess nú að gera þetta einfaldara í framkvæmdinni, flyt ég brtt. á sama þskj., XXXVlI, b, um það, að ríkisstj. sé heimilt að innheimta á árunum 1938 og 1939 aðflutningsgjald af efni í kassa um fisk til útflutnings sem um almennan trjávið sé að ræða.
Ég læt þetta nægja um mínar till. og mun ekki fara út í till. einstakra hv. þm.