23.03.1938
Neðri deild: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (641)

25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

*Eiríkur Einarsson:

Það gladdi mig, þegar ég heyrði, að hv. 1. þm. Rang. vildi draga úr því, er hann sagði í fyrri ræðu sinni. Auðvitað þekki ég þar hezt til, sem ég er kunnugastur, og get því bezt borið um afstöðu manna í Árnessýslu um þetta mál.

Ég tel það ekki alveg rétt hjá hv. þm., að það hafi orðið 10 ára töf, er hlauzt af þessari togstreitu um skólamálin. Mig minnir, að það væri á Alþ. 1921 eða '22, sem ég og fleiri bárum fram þáltill. um stofnun héraðsskóla, og það mál hlaut frá því fyrsta hinar beztu undirtektir frá löggjafarvaldinu. Held ég svo, að Laugarvatnsskóli hafi verið reistur árið 1928, svo hv. þm. sér, að ekki var um neina áratugatöf að ræða; það hefir hann aðeins sagt til að gefa orðum sínum meira áhrifamagn í augnablikinu. Ég veit ekki betur en að þeir bændur, sem á annað borð ætla að láta börn sín í héraðsskóla, sendi þau nú að Laugarvatni og erfi þannig alls ekki þessa gömlu misklíð.

Einnig tel ég það ekki rétt hjá hv. þm., að 50 ár séu liðin frá því að farið var að tala um skóla á Eyrarbakka og að þar hafi verið átt við héraðskólann. Nei, það var annar þáttur í menningarmálum okkar. En það hefir verið með þennan ágreining sem annan, að því fyrr, sem menn geta sætzt, því betra. Hvað viðvíkur Laugarvatnsskóla, þá er það mál nú komið á þann slétta sjó, og mun það ekki sízt vera því að þakka, hve þangað hefir valizt ágætur skólastjóri. Auðvitað hefir sá skóli eins og aðrir sína kosti og galla, en þá tel ég ekki að eigi að telja skólastjóranum til lasts. Það er ekki hægt að synda fyrir öll sker í þeim málum, og þau þurfa alltaf að standa til bóta. Fyrir þinginu liggur nú till. um að auka verklegt nám við skólana, og hygg ég, að það mál sé að öðrum þætti borið fram af skólastjóra Laugarvatnsskólans, og er það gott og réttmætt.