23.03.1938
Neðri deild: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
25. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
*Bjarni Bjarnason:
Ástæðan fyrir því, að umr. um þetta mál eru orðnar nokkuð langar, er sú, að einlægt eru að koma fram skrifl. brtt., sem sýna, að hv. landbn. hefir ekki hugsað málið eins og skyldi, og vil ég út frá því minnast á tvö atriði úr ræðu hv. þm. Borgf. Í fyrsta lagi það, að hann sagði, að n. hefði samið frv. alveg um, en eins og allir sjá, eru brtt. hv. n. alls ekki margar né merkilegar og minnst af þeim annað en orðalagsbreyt., enda hefir ekki ein einasta efnisbreyt. frá n. ennþá verið samþ., og að till. n. að því er snertir form hafa því aðeins verið samþ., að menn hafa ekki talið þær neinu máli skipta, og því borgar sig ekki að deila um þær.
Einnig vildi ég leiðrétta það atriði í ræðu hv. þm. viðvíkjandi brtt. á þskj. 111, þar sem hann sagði, að ég hefði tjáð mig persónulega mótfallinn till. Ég sagði aðeins, að ég gæti skilið, að ýmsum öðrum hv. þm. fyndist fleiri staðir á landinu vel fallnir fyrir kvennaskóla. Einnig vildi ég minnast á það atriði, sem minnzt hefir verið á í þessu sambandi, að ég væri að hugsa um kaupstaðina. Ég álít sjálfsagt, að einnig sé tekið á móti stúlkum þaðan á þessa skóla svo lengi sem rúm leyfir, og þar að auki að sjá kaupstöðunum fyrir skólum eftir því, sem þörf þeirra krefur. En ég sagði ekkert um, hvernig því skyldi haga
Eg vil benda á í sambandi við brtt. hv. þm. Ísaf., að hann virðist misskilja, hvað þarna er um að ræða og hverju hann í rauninni vilji halda fram; þ. e. með því að breyta nafni frv. Með því yrði lögfest, að skólarnir væru eingöngu fyrir stúlkur úr sveltum, og stúlkum úr kaupstöðum og kauptúnum þar með bannaður aðgangur að þeim. En það skiptir ekki miklu máli, hvort svona skólar eru í bæ eða sveit. Námsgreinarnar eru að miklu leyti þær sömu, og margar stúlkur frá kaupstöðunum æskja heldur að sækja skóla út til sveita. Ég veit t. d. með námskeið þau, sem við höfum árlega á Laugarvatni, að þau sækir fjöldi stúlkna úr Reykjavík í hvert sinn. Væri nú einhversstaðar lögfest, að þær mættu ekki sækja skólann, þá mætti ég ekki veita þeim viðtöku, þótt nóg rúm væri fyrir þær. Þetta er það, sem hv. þm. Ísaf. hefir ekki hugsað til hlítar.
Ég get látið máli mínu lokið að öðru leyti en því, að til sönnunar því, að mál þetta hafi verið nægilega hugsað af minni hálfu, vil ég geta þess, að ég hélt því fram, að við ættum að láta standa í frv. handavinnu, sem skiptist svo í fleiri greinar, sauma, vefnað o. s. frv., en hv. landbn. vildi heldur nefna þetta vefnað og handavinnu. Þetta sýnir, að hv. n. hefir ekki gagnhugsað þetta atriði, sem og fleiri. Ennfremur að því er snertir húsdýr, vildi n. binda það við alifugla, en ég vildi binda það við húsdýr yfirleitt. Þannig gæti ég tilnefnt ýmis dæmi fleiri um, að þeir hv. landbnm. hafa ekki skilið þetta betur en þeir, sem staðið hafa með mér að málinu.