06.05.1938
Sameinað þing: 27. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

1. mál, fjárlög 1939

*Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég vil fyrst og fremst þakka hv. fjvn. fyrir það, sem hún hefir sinnt þeim málaleitunum er ég beindi til hennar, en þær voru um ábyrgð fyrir láni til Vestmannaeyjahafnar, sem hún hefir sinnt, að fullu, og svo dálítill styrkur til ræktunarvegar í Vestmannaeyjum. Ég hafði farið fram á töluvert meira en n. hefir séð sér fært að veita. Það hefir aldrei verið minna en 6000 kr., sem ræktunarvegurinn hefir fengið, en n. fór niður í 300 kr. Mér er sagt, að þetta standi að nokkru leyti í sambandi við það, að í Ed. var ákveðið, að 3000 kr. af viðauka þeim, sem látinn er ganga til vega af benzínskattinum, fari til Vestmannaeyja, en ég vil benda hv. n. á það, að þegar þessi skattur var fyrst settur á, var ákveðið, að Vestmannaeyjar fengju 5000 kr. af benzínskattsviðaukanum, og er það sízt meira en borgað er þar í aukakostnað, sem mun vera um 6000 kr., svo að mér virðist þetta ekki fullgild ásfæða til þess að lækka framlagið til ræktunarvegarins. Ég hefi því leyft mér að koma fram með brtt. um, að í stað 3000 kr., sem n. hefir veitt til ræktunarvegarins, verði veittar til þessarar nytsömu vegalagningar 6000 kr. eins og áður. Ég vil benda á það í þessu sambandi, að fjárveitingin til ræktunarvegarins er háð því skilyrði, að Vestmannaeyjar láti fé á móti, svo að því hærri sem hv. n. hefir styrkinn, því meira verður hægt að vinna þarna.

Svo hefi ég komið með brtt. á þskj. 444 og 460, sumpart einn og sumpart í sambandi við aðra hv. þm.

Ég skal fyrst minnast á þær brtt., sem eru á þskj. 444. Fyrst er brtt. Vll, um styrk til Trausta Guðjónssonar í Vestmannaeyjum til þess að fullkomna sig í smíð og viðgerð hljóðfæra. Þessi ungi maður, sem er 19 ára, er sjómaður, en sérstakur hagleiksmaður, og þó að hann hafi stundað sjó síðan um fermingu, hefir hann jafnframt gert mikið að því að endurbæta og smíða hljóðfæri, hefir t. d. unnið það afrek á þessu sviði að smíða að fullu mandólín og gítar, sem þykja mjög góð hljóðfæri. Hann hefir í hyggju að fullkomna sig í smiði og viðgerð hljóðfæra, sérstaklega strengjahljóðfæra, í Noregi og komast þar á verkstæði 4–6 mánaða tíma í sumar, og ætlar hann sér að verja til þess vertíðarkaupi sínu, en ég veit að það mun ekki ná langt til þess að gera honum námið mögulegt. Ég hefi þess vegna flutt brtt. við fjárl. um lítilsháttar styrk til þessa manns. sem að mínu áliti er einstakur á sínu sviði.

Þá hefi ég, eins og á síðasta þingi, farið fram á það, undir I1 á sama þskj., að Alþ. veiti 6000 kr., og til vara 5000 kr., til þess að hjálpa Vestmannaeyingum með að afla sér neyzluvatns. Það mál er enn óleyst, og er að allra dómi mjög nauðsynlegt, að gerðar verði ráðstafanir í því efni.

Ennfremur hefi ég, undir XVIIl, farið fram á, að fellt verði niður að innheimta aðflutningsgjald af járni til hafnarvirkja Vestmannaeyjakaupstaðar. Það eru 6428.l4 kr., sem ríkissjóður krefst af því járni, sem flutt var inn til þess að fullkomna stórskipabryggjuna. Öll þessi mannvirki hafa kostað Vestmannaeyjakaupstað ærið fé, og kaupin á dýpkunarskipinu líka, og á því hvílir enn dálítil skuld til útlanda. Með tilliti til þeirra örðugleika, sem Vestmannaeyjakaupstaður annars hefir til þess að standa skil á öllum sínum greiðslum, væri það að minni hyggju sanngjarnt, að aðflutningsgjald til ríkissjóðs af sjálfu járninu til hafnarinnar væri fellt niður. Það þýðir ekki, að aðflutningsgjald af öllu efninu verði undanskilið, því að það er mjög mikið notað af steinlimi, sem ríkissjóður fær gjöld af.

Þá vil ég geta þess í sambandi við brtt. XX, að hingað hefir borizt erindi frá Búnaðarfélagi Vestmannaeyja, áritað af ýmsum öðrum félögum í Eyjum, þar á meðal útvegsbændafélaginu og íþróttafélaginu, og meðmælum frá bæjarstjórninni, í þá átt, að gerðar verði ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir uppblástur og landbrot í Eyjum. Eins og kunnugt er, á ríkissjóður þarna allt land, og við Eyjamenn erum allir landsetar ríkissjóðs, og fara umboðsgjöldin af Eyjum sívaxandi. Gengur till. í þá átt, að ráðh. sé heimilað að gera ráðstafanir til þess að verjast landbroti og hefta uppblástur og kosta til þess einhverjum parti af umboðstekjunum, eftir því sem Búnaðarfélag Íslands og ráðh. kunna að álíta nauðsynlegt. Ég nefni hér Búnaðarfélag Íslands í þessu sambandi vegna þess, að ég geng út frá því, að það, sem gert yrði til þess að verjast landbroti og uppblæstri, yrði allt gert í samráði við búnaðarfélagið. — Það er orðið mikið alvörumál, hvað sjórinn brýtur niður mikið af góðu landi, sérstaklega austan til á Eyjunum. Þetta hefir gengið svona í marga áratugi, og einhverntíma þarf að hefjast handa til þess að hefta þennan skaða á landinu, sem af þessu hlýzt.

Í fyrra voru, að tilhlutun Alþ., gerðar ráðstafanir til þess að varðveita Eiðið svokallaða fyrir sjávargangi, sem ég tel vel farið, og vona ég, að þær framkvæmdir, sem þar voru gerðar, komi bæði íbúum Eyjanna og eins eiganda landsins, ríkinu, að miklu gagni. Ekki yrði það síður þakklátt verk, ef hægt yrði að hefta landbrotið austan á Eyjunum, sem gerir þar árlega stór strandhögg og nemur burt part af sjálfum túnunum, svo að ég veit, að allir, sem til þekkja, telja þetta hið mesta nauðsynjamál.

Á þskj. 460 hefi ég leyft mér að flytja till. um, að ríkisstj. verði heimilað að endurgreiða á árunum 1938 og 1939 helming aðflutningsgjalda og álagningar grænmetisverzlunar ríkisins á útsæðiskartöflum, og fari endurgreiðslan fram fyrir milligöngu bæjar- og sveitarstjórna undir eftirliti Búnaðarfélags Íslands. Það er vitað, að Alþ. gerði á sínum tíma ráðstafanir til þess að hlynna að kartöfluræktinni í landinu, og er það náttúrlega þörf ráðstöfun, að svo miklu leyti sem hún kemur að fullu gagni, en það er sá ljóður á þessum ráðstöfunum, að útsæðiskartöflur verða óhæfilega dýrar eins og nú hagar til. Ég hefi borið mig saman við forstjóra grænmetisverzlunar ríkisins, Árna Eylands, um þetta atriði og hefi fengið hjá honum upplýsingar bæði um álagningu á kartöflum yfir höfuð og eins um þá tolla, sem nú eru af þeim greiddir í ríkissjóð. Ég skal t. d. geta þess eftir heimildum frá Árna Eylands, að af 399 sekkjum af kartöflum, sem kostuðu í innkaupi 3113,08 kr., var greitt í ríkissjóð: Leyfisgjald til gjaldeyris- og innflutn.-nefndar, 7 kr., vörugjald 132,85 kr., verðtollur 656,55 kr., viðskiptagjald 276,45 kr. samtals 1072,85 kr. Hér við bætist svo álagning grænmetisverzlunar ríkisins, sem nemur undir venjulegum kringumstæðum um 20%. T. d. sagði hann mér, að ein tegundin, sem er mikið notuð til útsæðis og heitir Kerrs Pink, kostaði 12,26 kr. hingað komin, en væri seld á 14,50 kr., og er álagningin þar 2,24 kr. á pokann, og á annari tegund, sem kölluð er Arran Consul og kostar hingað komin 11,42 kr. en er seld út á 13,50 kr., er álagningin 2,08 kr. á poka, eða 4–5 kr. á tunnu. Þegar athugað er, hversu gífurlega há aðflutningsgjöldin eru, en þau eru um 331/3%, og þar að auki þessi tiltölulega mjög háa álagning grænmetisverzlunarinnar, þá er það sýnt, að útsæðið verður mjög dýrt, en það er mjög óheppilegt og hlýtur að verða til þess að hindra til verulegra muna, að a. m. k. þeir efnaminni í landinu, og það munu flestir vera, sem þurfa að kaupa þessa vöru, noti sér þau ræktunarskilyrði og möguleika fyrir kartöflurækt, sem þeir ella myndu nota, ef hóflegir tollar og hófleg álagning væri á þessari vöru. Nú vil ég taka það fram, að þó að manni þyki álagning grænmetisverzlunar ríkisins há, þá ber þess að gæta, að hér er um að ræða vöru, sem þarf að liggja með nokkurn tíma, og er mjög hætt við, að skemmist. Það skýrir þá tiltölulega háu álagningu, sem grænmetisverzlunin verður að hafa á þessari vöru. Hinsvegar er það um aðflutningsgjöldin að segja, að þau eru algerlega óverjandi á útsæðiskartöflum.

Ég hefi nú með brtt. minni farið fram á, að þeim, sem á þessu og næsta ári nota útsæðiskartöflur, verði endurgreitt sem svarar helmingi af aðflutningsgjöldum og helmingi af álagningu, og þykir mér sem ríkið sé vel sæmt af því, þótt það taki ekki nema helming af þessum háu gjöldum á útsæðiskartöflum. Einhver kann að segja að þetta sé illframkvæmanlegt, en ég held, að það sé ekki, og hefi gert tilraun til þess að benda á það með því orðalagi, sem er á brtt., að endurgreiðslan skuli fara fram fyrir milligöngu bæjar- og sveitarstjórna, undir eftirliti Búnaðarfélags Íslands, svo að komið sé í veg fyrir, eftir því sem unnt er, að aðstaðan sé misnotuð.

Ég skal taka það fram til skýringar, að ég hafði hugsað mér, að þetta mætti framkvæma þannig, að bæjarstjórnir og hreppsnefndir, hvar sem er á landinu, fengju skýrslur kartöfluræktenda um það, hversu mikið þeir hefðu notað af útsæðiskartöflum á þessu tímabili, og athuguðu svo um leið, hvað stóran matjurtagarð hver skýrslugefandi hefði, til þess að hafa hönd í bagga með því, að skýrslurnar væru sem næst sanni. Þetta ætti síðan að leggja fyrir Búnaðarfélag Íslands. sem síðan gerði sínar till. til ráðh. og úrskurðaði skýrslur þær, sem bærust frá hverjum bæ og hverri hreppsnefnd á landinu.

Það kann að vera ennþá einhver hængur á þessu máli, að því er framkvæmdina snertir, í augum hv. þm., en ég hefi leitazt við að hafa þetta þannig, að þessi mjög svo nauðsynlegi stuðningur til þeirra, sem rækta vilja kartöflur, yrði ekki misnotaður.

Ásamt hv. 3. landsk. hefi ég flutt brtt. við fjárlögin um, að stj. sé heimilt að leyfa skipaútgerð ríkisins að greiða Guðbjarti Guðbjartssyni, vélstjóra á varðskipinu Þór, eftirlaun, er hann lætur af starfi, eftir svipuðum reglum og Eimskipafélag Íslands greiðir vélstjórum sínum, og sé sú upphæð færð á útgjaldalið varðskipanna. — Guðbjartur Guðbjartsson, sem er elzti vélstjóri á landinu, er búinn að vera í þjónustu ríkisins og Björgunarfélags Vestmannaeyja í 19 ár, og verður sennilega, áður en hann fellur fyrir þessu svo kallaða aldurstakmarki, ef honum endist lif, búinn að vera um eða yfir 20 ár í þeirri þjónustu, þegar hann lætur af stjórn. Þar á undan var hann vélstjóri á togara, og mun hafa verið á fyrsta togaranum, sem var hér við land. Hann er, ef svo mætti segja, aldursforseti íslenzkra vélstjóra.

Við þetta tækifæri vil ég láta það í ljós, að meðan þessi maður starfaði við Björgunarfélag Vestmannaeyja, stóð hann prýðilega í sinni stöðu, og ég efa ekki, að hann hafi gert það seinna, eftir að hann komst í ríkisins þjónustu, en hvað alla yfirmenn á skipi björgunarfélagsins snertir, þá var samkomulag um þá alla, þegar ríkið yfirtók Þór, að þeir nytu aldurslauna sinna, hvað ríkið áhrærir, frá þeim tíma, er þeir höfðu gengið í þjónustu björgunarfélagsins.

Það er fordæmi fyrir því, og má finna í fjárlögum, að ekkjum stýrimanna á skipum ríkisins hafa verið úrskurðuð eftirlaun af Alþ. eftir þeirri reglu, sem gildir í þessu efni, að því er snertir skip Eimskipafélags Íslands, og okkur flm. þótti réttast að benda á þá reglu til fyrirmyndar í sambandi við þann vélstjóra, sem hér um ræðir.

Þá flyt ég ásamt hv. þm. Borgf. brtt. við fjárl. á þskj. 444, XVlI, um heimild handa ríkisstj. til þess að verja allt að 52000 kr. til dýpkunar á höfninni á Raufarhöfn og taka lán í því skyni, ef með þarf.

Fyrir hv. fjvn. lá erindi frá stjórn síldarverksmiðja ríkisins, sem fór í þessa átt, og brtt. er hér flutt vegna þess, að hv. fjvn. hafði ekki, svo að vitað væri, þegar við sendum brtt. í prent, tekið upp þær till., sem stjórn síldarverksmiðja ríkisins hafði gert um dýpkunarframkvæmdir á Raufarhöfn, en öllum hv. þm. er kunnugt um, að á síðasta þingi var samþ. að heimila ríkisstj. að byggja síldarverksmiðju á þessum stað.

Ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp lítinn kafla úr erindi stjórnar síldarverkssmiðja ríkisins til hv. fjvn. um sjálfa dýpkunina á Raufarhöfn. Þar segir svo:

„Frumvarp um hafnargerð á Raufarhöfn liggur nú fyrir Alþingi, og eru allar líkur til þess, að það verði samþ. Í frv. er gert ráð fyrir allt að kr. 180000 kostnaði við hafnargerð á Raufarhöfn, og ríkissjóður greiði 2/5 hluta kostnaðar, eftir því sem fé sé veitt til þess á fjárlögum. Af umræddum kr. 180000 eru kr. 130000 ætlaður til dýpkunar hafnarinnar, en kr. 50000 til bryggjugerða. Það framlag, sem verksmiðjustjórnin fer fram á, er miðað við dýpkunina eina, því að vér teljum, að nægilegt sé, til að byrja með að dýpka höfnina, þar eð síldarverksmiðjur ríkisins muni sjálfar byggja á sinn kostnað nægilegar bryggjur fyrir starfrækslu sína þar, og jafnvel geta veitt öðrum afnot af hryggjum sínum, þegar það kemur ekki að sök fyrir rekstur verksmiðjanna.

Síðasta Alþingi samþ. lög um heimild handa ríkisstjórninni til þess að láta reisa nýja síldarverksmiðju á Raufarhöfn, er ynni úr 2500 málum síldar á sólarhring, og byggingu skyldi eftir föngum hagað þannig. að auðvelt væri að stækka verksmiðjuna. Sigling til Raufarhafnar hlýtur að aukast mjög, er hin nýja verksmiðja tekur til starfa, sem vænta má, að verði sumarið 1939. Væri þá til mikils hagnaðar og hægðar auka fyrir alla aðilja, að fullkomin dýpkun hafnarsvæðisins hefði þá farið fram.

Að áliti vitamálaskrifstofunnar bendir allt til þess, að nota mætti sanddælu þá, sem til er í Vestmannaeyjum, til þess að framkvæma þetta verk. Nú vill svo vel til, að hægt er að fá sanddælu þessa leigða á sumri komanda og fram á vetur, til þess að framkvæma dýpkunina. Þótt fjárveiting sé ekki fyrir hendi í ár, telur verksmiðjustjórnin mjög líklegt, að takast megi að framkvæma dýpkunina á þessu ári, ef framangreind fjárveiting verður tekin upp á fjárlögin fyrir árið 1939“.

Ég skal svo ekki þreyta hv. Alþm, með því að lesa meira upp úr þessu erindi, en bæta því við frá eigin brjósti, að þar sem lagfæring hafnarinnar á Raufarhöfn er aðallega í því fólgin að dýpka hana, og þar sem alveg víst má telja, að síldarverksmiðja sú, sem hér um ræðir, verður byggð á Raufarhöfn, væri mjög hagkvæmt og mikið búvit í því fyrir ríkisstj. að nota einmitt sumarið í sumar til þess að dýpka höfnina á Raufarhöfn, svo að því verki væri lokið um það bil, sem verksmiðjan kemst upp, Þarf þá ekki á því að standa, að hvert og eitt skip, sem vill leggja síld á land, geti notað höfnina.

Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að Vestmannaeyingar mundu vera fúsir til að leigja stj. í sumar dýpkunarskip sitt til þessa verks, og ennfremur, að hægt mundi verða að komast að hagkvæmum samningum við þá um greiðslu á leigu skipsins, þannig að það þyrfti ekki að borgast út í reiðufé samstundis annað en það, sem beinlínis færi í mannakaup — 5 manna áhöfn —, olíu og annað slíkt. Ég teldi mjög heppilegt, að það yrði einmitt að ráði að nota skipið nú í sumar til þessa verks, eins og sú háttv. stj. síldarverksmiðja ríkisins hefir lagt til.

Um nauðsynina að öðru leyti fyrir síldarflotann fyrir verksmiðju á Raufarhöfn þarf ég ekki að fjölyrða. Hún hefir verið viðurkennd af Alþingi með þeirri samþykkt, sem gerð var á síðasta þingi, um að heimila ríkisstj. að byggja verksmiðju á þessum stað.

Eg held, að ég hafi þá minnzt á þær brtt., sem ég hefi leyft mér að flytja eða er að öðru leyti við riðinn. Ég hefði gjarnan kosið að þingsalurinn hefði verið betur skipaður, þegar hv. 2. landsk. þm. talaði fyrir sínum till. hér fyrir stundu. Hv. 2. landsk. hefir barizt sí og æ á Alþingi fyrir því að líkna þeim, sem e. t. v. eru bágstaddir í þjóðfélaginu, þeim sem hafa fallið, ef svo mætti segja, fyrir ofurborð vegna áfengisnautnar, og þeim, sem af öðrum ástæðum þurfa sérstakrar aðhlynningar þjóðfélagsins við. Hv. 2. landsk. þm. hefir flutt till. um, að verja hluta af ágóða áfengisverzlunarinnar til þess að koma upp hvíldar- og lækningahæli fyrir drykkjumenn. Hér á landi er enginn staður til, sem sérstaklega er helgaður þessu starfi, en meðal annara þjóða er um marga slíka staði að ræða. Ég tel alveg víst, að hver einn og einasti þm., sem gerir sér ljóst, þótt ekki sé nema brot af því ástandi, sem ríkir í misnotkun áfengis hér á landi, muni vera, í hjarta sínu a. m. k., alveg fylgjandi brtt. hv. 2. landsk. þm. Og hinsvegar tel ég mjög æskilegt, að þessi tilfinning fyrir því nauðungarástandi, sem er á þessu sviði, verði þess valdandi, að hv. þm. greiði brtt. hv. 2. landsk. atkv.

Ég skal játa, að ég var einn af þeim, sem á sínum tíma höfðu þá trú, að það væri þýðingarlaust að berjast gegn áfengisnautninni með banninu svo kallaða, og einn af þeim, sem hafa fagnað yfir því, að breytt var til, í þeirri von, að notkun áfengis yrði skaplegri og færi fram með siðaðri hætti heldur en þegar bannið var í algleymingi. Ég tel engan tíma til kominn að leggja dóm á, hvort sú ráðstöfun hafi verið rétt, að afnema bannið. En það eitt tel ég þó fyllilega komið á daginn, að þjóðfélaginu ber rík skylda til þess um leið og það tekur stórfúlgur af þeim, sem kaupa áfengi og neyta þess, að gera þær ráðstafanir, sem í þess valdi standa, til að draga eitthvað úr því böli, sem af misnotkun áfengis leiðir. Og þetta er einmitt það, sem hv. 2. landsk. leggur til með brtt. sínum, sem eru í alla staði mjög hóflegar.

Hv. 2. landsk. minntist á fleiri atriði, sem ekki snerta þá, sem hafa orðið illa úti vegna áfengisnautnar; hann minntist á starfsemi mæðrastyrksn. í Hveragerði. Þeir hv. þm. Seyðf. og hv. 3. landsk. flytja till. um styrk til þessarar n. Ég skal játa, að ræða hv. 2. landsk. um þetta mjög svo merkilega og mannúðlega starf gaf mér yfirlit yfir þá miklu blessun, sem af slíku starfi hlýtur að leiða, betra yfirlit en ég hefi hingað til átt kost á að fá. Ég er sannfærður um, að hv. 2. landsk. hefir rétt fyrir sér, þegar hann mælir með því, að þessi brtt. verði samþ.

Ég vil að síðustu víkja að því aftur, sem ég byrjaði á ræðu mína að biðja hv. alþm. að ljá lið sitt til þess, — að Trausti Guðjónsson, þessi merkilegi og einkar hagi söngelski sjómaður í Vestmannaeyjum, verði veittur þessi 5–600 kr. styrkur, sem ég fer fram á, svo að honum verði unnt að afla sér framhaldsmenntunar í smiði strengjahljóðfæra og viðgerð á þeim, sem hann hefir lagt svo mikla stund á að afla sér. Ég vil bæta því einu við, að ég þekki piltinn persónulega og tel víst, að hann verði þjóð sinni hvarvetna til sóma og að af honum muni margt gott geta leitt í þessu þjóðfélagi.