19.03.1938
Neðri deild: 29. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

12. mál, skemmtanaskattur

*Héðinn Valdimarsson:

Ég þakka hv. þm. V.-Ísf. fyrir bendinguna viðvíkjandi brtt., og það má vel vera, að það sé réttara að orða líka um fyrirsögnina. En viðvíkjandi þeim aths., sem hann og hv. þm. Mýr. komu fram með, að hér væri eingöngu um héraðsmót ungmennafélaganna að ræða, sem ekki væri líkjandi saman við verklýðsfélögin, þá vil ég segja það, að aðalskemmtanir ungmennafélaganna eru héraðsmótin, en verklýðsfélögin hafa engan slíkar skemmtanir. Þeirra aðalskemmtanir eru árshátíð hvers félags, og mér finnst ekki nema sambærilegt, að þau séu undanþegin skemmtanaskatti á svipaðan hátt og ungmennafélögin. Ég hefi lýst því áður, hvaða áhrif það hefir að leggja svona mikinn skemmtanaskatt á félögin eins og gert hefir verið undanfarið. Það hefir þau áhrif að eyðileggja þeirra félagslíf, og getur varla verið í öðrum tilgangi gert.

Hinsvegar er það ekki rétt hjá hv. þm. Mýr., að það sé svo mikill munur á verklýðsfélögunum og starfsemi ungmennafélaganna, verklýðsfélögin séu pólítísk, en ungmennafélögin ekki.

Ungmennafélögin hafa tekið pólitísk mál á stefnuskrá sína, en í verklýðsfélögunum eru menn úr öllum flokkum, og ég hygg, að menn úr öllum flokkum ættu að geta verið sammála um það, hvað sem kaupgjaldsmálum verklýðsfélaganna líður, að það borgi sig illa að eyðileggja með skattálagningu þá menningarstarfsemi, sem þau halda uppi.