06.05.1938
Sameinað þing: 27. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (68)

1. mál, fjárlög 1939

*Bjarni Snæbjörnsson:

Ég ber fram tvær örsmáar brtt. Önnur er á þskj. 425, XVlI, um styrk til efnilegs manns, Friðgeirs Grímssonar í Hafnarfirði, til að nema útreikning og tilbúning véla. Hann ætlar sér að stunda nám í Þýzkalandi, er vélstjóri að iðn og hefir ágæt meðmæli kennara sinna og eins frá þeim mönnum, sem hann hefir unnið hjá síðar. En þar sem hann er fjölskyldumaður, sér hann sér ekki fært að sigla, nema fá ofurlítinn styrk, og hefi ég farið fram á 1000 kr., og til vara 500. Það má segja það sama um þennan lið og sagt hefir verið um ýmsa aðra, að til þessa þurfi erlendan gjaldeyri, og menn vilji þess vegna skera hann niður. En ég ber það traust til hv. þm., og ekki sízt stjórnarfl., að þeir samþ. þessa fjárveitingu, því að það kom bezt fram í málgagni Framsfl., Nýja-dagblaðinu, um daginn, að þeir litu með fullri sanngirni á þetta mál. Ég get ekki stillt mig um að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta, kafla úr grein, sem stóð í þessu blaði 4. maí og er á þessa leið: „Þær raddir hafa heyrzt, að rétt myndi að takmarka sem mest námsferðir meðan gjaldeyrisörðugleikarnir haldast. Slíkt tal virðist ekkí hafa við rök að styðjast. Það, sem þjóðina vantar, er aukin verkleg menning, og margir þessara manna stunda einmitt þessháttar nám. Væri það fullkomið óráð að varna ungum mönnum að leita sér slíkrar þekkingar og ber frekar að styrkja þá til þess.

Þjóðin getur áreiðanlega sparað margt, sem hún ver til erlendum gjaldeyri nú. en ekki þau framlög, sem renna til þess að veita efnilegum æskumönnum viðtækari þekkingu en fáanleg er hér. Slíkur sparnaður myndi reynast henni dýrkeyptur í framtíðinni.“

Þegar slík ummæli og þessi koma fram í aðalmálgagni stj., vonast ég eftir því, að hennar flokksmenn líti á þetta með sanngirni og samþ. till. Ég vonast til þess, að stjórnarflokkarnir líti með velvilja á þessa litlu brtt. og hún verði samþ.

Önnur brtt., sem ég vildi mæla fyrir, er á þskj. 460, IV. Eins og hv. þm. er kunnugt, hefir hv. fjvn. tekið upp styrki til einstakra íþróttafélaga á þskj. 400. Og ég býst víð, að það hafi verið af einskærri vangá, að Hafnfirðingum er þar sleppt. Því að vitanlega á Hafnarfjörður ekki síður rétt á styrk, en aðrir kaupstaðir, eins og Vestmannaeyjar, Ísafjörður, Seyðisfjörður og ýmsir fleiri bæir. Þar eru, eins og kunnugt er, ýmis félög, sem stunda íþróttir, s. s. leikfimisfélög, sundfélög og knattspyrnufélög. Það, sem ég fer fram á, er, að þau fái jafna fjárveiting og hinir kaupstaðirnir fá í þessu skyni. En til þess að ákveða, hve mikið falli í hlut hvers félags, tek ég upp það úrræði, að íþróttaráð Hafnarfjarðar ákveði skiptinguna. — Ég vonast til þess, að hv. fjvn. og allt þingið verði sammála um að láta þessa till. mína verða fyrir sömu afgreiðslu og hinar aðrar till., sem ég minntist á, því að það er fullkomin sanngirni, að þær gangi fram.

Þó að mig hefði langað til að minnast á ýmsar aðrar brtt., sem ég vildi leggja lið, ætla ég að láta staðar numið vegna þess, hve framorðið er, og ég býst við, að hæstv. forseti vilji fara að slita fundi.