28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
19. mál, bókhald
*Ísleifur Högnason:
Ég sé það, að í 6. gr. frv. hefir flm. sett það skilyrði, að sjóðbækur séu innbundnar og tölusettar. Ég geri ráð fyrir, að þetta sé gert til að tryggja það, að ekki sé skipt um blöð. Tölusettar og innbundnar bækur hafa vitanlega það mesta öryggi, sem hægt er að fá fyrir því, að reikningar séu ekki falsaðir, og mér virðist það hafa vakað fyrir flm. frv., að koma í veg fyrir, að bækur væru falsaðar, því að í 14. gr. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Eigi má rita í bækur þær, sem fyrirskipaðar eru með lögum þessum — aðrar en frumbækur — með blýanti. Ennfremur eigi skafa út eða gera á annan hátt með ásetningi ólæsilegt það, sem eitt sinn hefir verið í þær skráð, eða rita ofan á skriftina, svo að ólæsilegt verði það, er áður stóð“ o. s. frv.
Ég álít, að ef bækurnar eru innbundnar og tölusettar, þá sé ekki hægt að koma við fölsunum, og þess vegna sé miklu öruggara fyrir viðskiptamennina, að bækurnar séu ekki lausblaðabækur.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta, enda er ég búinn með minn ræðutíma.