27.04.1938
Neðri deild: 55. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (752)

82. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

*Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þetta frv. felur í sér minni háttar brtt. á skipulagsl. frá 1921, svo sem um það, hvernig kostnaður við skipulagsuppdrætti skuli greiddur, hvernig skipulagsn. skuli skipuð o. fl. Einnig er kveðið fastar á um það en í gildandi l., að n. hafi tök á því, að skipulaginu sé hlýtt. Ég hygg ekki að frv. þurfi frekari skýringar við. Það hefir verið samþ. í Ed. af öllum flokkum í náinni samvinnu við skipulagsn. og ágreiningslaust.