25.04.1938
Neðri deild: 53. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (787)
63. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Eins og nál. ber með sér, þá hefir fjhn. eða þeir af nm., sem voru á fundi, fallizt á, að frv. verði samþ. óbreytt, að fengnum þeim upplýsingum, sem fyrir lágu. Það var vist til þess ætlazt, að þessi l. væru ekki lengur í gildi en þangað til I. um jöfnunarsjóð bæjar- og sveitarfélaga kæmu til framkvæmda. En við fyrstu úthlutun úr honum hafa Vestmannaeyjar ekki fengið neitt eða svo að segja ekki neitt, og þess vegna hefir fjhn. fallizt á, að þessi l. væru framlengd enn um 2 ár og Vestmannaeyjar hefðu leyfi til að hafa þetta vörugjald sem tekjustofn fyrir bæjarfélagið.
2 nm., hv. þm. G.-K. og hv. þm. Ísaf., voru ekki á fundi, svo að ég veit ekki um afstöðu þeirra til málsins, en þeir munu gera grein fyrir því, ef þeir eru meiri hl. ósammála um þetta.