25.04.1938
Neðri deild: 53. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (789)

63. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað

*Haraldur Guðmundsson:

Ef þetta frv. verður samþ., þá fá Vestmannaeyjar með því sérstöðu, gerólíka aðstöðu við það, sem aðrir kaupstaðir og sveitarfélög á landinu hafa. Ég fæ ekki séð, að þá sé með sanngirni hægt að neita öðrum kaupstöðum um það, að taka upp þetta vörugjald til viðbótar því, sem þau taka vegna hafna og hafnarmannvirkja. Ég fæ ekki séð, að hægt sé að neita þeim um að nota það til tekjuöflunar fyrir bæjar- og sveitarsjóði, ef þetta frv. verður enn á ný samþ.

Með l. um jöfnunarsjóð bæjar- og sveitarfélaga var svo til ætlazt, að þau sveitar- og bæjarfélög, sem mesta þörf hefðu fyrir það, fengju úr þeim sjóði það, sem þeim hlutfallslega bæri, miðað við þá upphæð, sem sjóðurinn hefði til umráða. Ég tók svo eftir, að hv. frsm. n. gæti þess, að úr þessum jöfnunarsjóði hefði á þessu ári ekkert, eða svo að segja ekkert, komið í hlut Vestmannaeyja, og því teldi hann eðlilegt að samþ. þetta frv. Ef þetta er svo, þá er það ekki annað en vottur þess, að önnur bæjar- og sveitarfélög hafa ríkari þörf til að fá úr þessum sjóði heldur en Vestmannaeyjar, miðað við þær reglur, sem nú gilda um það, hvernig skipt skuli fé sjóðsins. Auk þessa skal ég geta þess, að fyrir árið 1938 eru í gildi l. um vörugjald fyrir, Vestmannaeyjar. En það, sem vitað er um úthlutun úr sjóðnum, er eingöngu það fé. sem kemur til úthlutunar á árinu 1938, og ég hygg þó, að það sé ekki nema helmingur þess fjár. Ég hygg, að hagstofan sé ekki búin að reikna lengra en fyrir árið 1936, en ekki fyrir 1937, sem einnig á að koma til álita á þessu ári. Ég hygg því, að það sé ekki útilokað, að Vestmannaeyjar komi til greina, þegar miðað er við fátækraframfærið árið 1937.

Hingað til hefir verið fylgt þeirri meginreglu með þessari undantekningu snertandi Vestmannaeyjar, að hinir óbeinu skattar og tollar á innfluttum vörum hafa eingöngu verið notaðir sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð, umfram það sem nauðsynlegt hefir verið til viðhalds og starfrækslu hafnarmannvirkja og beinlínis er lagt á til þess að standa straum af þeim kostnaði. Ég álít, að það sé alveg rangt að vera að hverfa frá þeirri stefnu, enda hefir þingið í heild verið þeirrar skoðunar 2 síðustu þing, þar sem það hefir ekki fallizt á að lögfesta vörugjald umfram lögmætar hafnargreiðslur sem tekjuöflun fyrir bæjar- og sveitarfélög. Það er líka ranglátt gagnvart hinum bæjarfélögunum, að Vestmannaeyjar fái þessa sérstöðu, eftir að l. um jöfnunarsjóð hafa verið samþ. Ég hlýt því að vera á móti þessu frv. og mun greiða atkv. gegn því, að það verði að l.