25.04.1938
Neðri deild: 53. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (791)

63. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað

*Ísleifur Högnason:

Mér þykir fyrir því, að hafa ekki getað talað við n., áður en hún afgr. málið til 2. umr., vegna þess að það gætir mjög mikils misskilnings hjá hv. frsm. því er þá fyrst til að svara, að þótt ekkert hafi runnið til Vestmannaeyja enn, þá er þó á þessa árs fjárhagsáætlun gert ráð fyrir 15 þús. kr. úr jöfnunarsjóði. Það mun nema 20 þús. kr. á árinu, því að það mun vera of lágt reiknað á fjárhagsáætlun bæjarins. Þegar n. hefir fengið upplýsingar um það, að á fjárhagsáætlun bæjarins séu áætlaðar 15 þús. kr. tekjur úr jöfnunarsjóði, og þar sem má gera ráð fyrir, að það fari hækkandi, þá er ekki lengur það tilefni til að leggja á vörugjald, sem hv. frsm. n. gat um.

Annað atriði, sem hann minntist á, var, að Vestmannaeyjar væru einangraðar, svo að þetta gjald kæmi ekki niður á aðra en Vestmannaeyinga sjálfa. Það er rangt, því að á vertíðinni eru þar 1000–1500 aðkomumenn, sem kaupa þar vörur, sem eru seldar við hærra verði, vegna þess að þetta vörugjald er lagt á þær vörur, sem þeir neyta í Vestmannaeyjum.

Ég þakka stuðning þann, sem hv. þm. Seyðf. hefir léð mínum málstað, en ég vil geta þess í sambandi við hans afstöðu, að hún er ekki sú sama og mín að því leyti, að hann álítur þetta réttarbót fyrir alþýðu manna í Vestmannaeyjum. Þetta er réttarskerðing, og það væri vitanlega engin bót að því, að efnamenn í öðrum kaupstöðum fengju að létta af sér útsvörum með því að leggja skatt á nauðsynjavörur fólksins. Hv. þm. hlýtur að skilja það, að það er síður en svo réttarbót fyrir alþýðu manna í Vestmannaeyjum að fá þetta frv. samþ.

Ég mun greiða atkv. gegn frv. við þessa umr., en ég mun flytja brtt. við það, ef það heldur áfram í hv. d., eins og ég lýsti yfir áðan. Það hefir skotizt framhjá hv. frsm. áðan, að ég lýsti því yfir, að það yrði að skoðast sem neyðarvörn gegn því, að lagður væri skattur á nauðsynjavörur fólksins, en hann væri þá lagður á óhófsvöru. En æskilegast væri, að málið væri fellt, og þá kæmi brtt. mín ekki til greina. Það er vitanlega skattur á fólkið, þótt það sé skattur á áfengið. En það virðist gæta misskilnings hjá honum, þar sem hann heldur, að það sé meiningin að taka það af álagi ríkissjóðs á vinið, því að það var ekki meiningin, heldur átti það að koma sem skattur á útsöluverð áfengis. Með því móti væri hægt að ná um 30 þús. kr.