29.04.1938
Neðri deild: 57. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (807)

63. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Frsm. (Sveinbjörn Högnason):

Það liggur fyrir, þegar gefnir eru upp stigarnir, eins og jafnan hefir verið siður, frá ríkisskattanefnd á síðasta ári, að það eru hinir raunverulegu stigar, sem farið er eftir, og það myndi fylgja, ef breytt væri til með prósenttölu, og þá, hvernig það væri gert. Nú liggur það fyrir, að á 10 þús. kr. tekjur er lagt í Rvík 1780 kr., en í Vestmannaeyjum 2360 kr. Þetta eru hinir raunverulegu stigar, sem notaðir hafa verið á síðasta ári. Það liggur því fyrir, að það er 700 kr. hærri álagning á þessar tekjur í Vestmannaeyjum en í Rvík.