18.03.1938
Neðri deild: 28. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (850)

69. mál, togaraútgerðarnefnd

*Ólafur Thors:

Ég þarf ekki að tala langt mál út af því, sem fram hefir komið, frá því að ég flutti mína fyrri ræðu. Ég ætla þó að víkja nokkrum orðum að ræðu hv. þm. Ísaf. — Hann taldi, að hér þyrfti engrar rannsóknar við, vegna þess að menn vissu um afkomu sjávarútvegsins, og er þetta að vissu leyti það sama sjónarmið og ég setti fram áðan frá mínu eigin brjósti. Ég veit um afkomuna, og veit, að hún er bág, og mér þykir eðlilegt, að þessi hv. þm. telji ekki þurfa að láta rannsaka hjá sér, því að jafnilla sem það fyrirtæki hefir gengið, sem ég er við riðinn, þá hefir hans fyrirtæki, Hávarður Ísfirðingur, gengið verr. Það hefir í raun og veru tvisvar orðið gjaldþrota undir stjórn þessa hv. þm. Það er að vísu í aðalatriðunum ekki honum að kenna, eftir því sem ég veit bezt, því að það gengur náttúrlega það sama yfir hann eins og aðra, að tímarnir eru erfiðir. En það hlýtur að vera af alveg sérstaklega bágri afkomu, að einmitt þetta skip hefir haft stytztan veiðitíma allra togara, sem ég veit um. Ég held, að það hafi ekki farið nema 1–2 ístúra, á meðan margir togarar hafa farið 3–4 og jafnvel 5. Ég segi, að það hljóti að vera af sérstaklega bágri fjárhagsafkomu, en ekki af illvilja gegn verkalýðnum, að þessi togari er bundinn, á meðan aðrir ganga. Ég get vel skilið, að þessi hv. þm. áliti, að vegna hans og mín þurfi ekki neina rannsókn, og ég álít í raun og veru, að málið liggi það opið fyrir, að menn ættu almennt að geta gert sér grein fyrir því, en náttúrlega er það ekki á mínu færi að skipa mönnum að hafa þekkingu í þessum efnum. Ef þeir telja þörf á frekari rannsókn, þá verð ég að heygja mig undir það sem eðlilegt sjónarmið frá þeirra hálfu, sem ekki hafa sama kunnugleikann á þessum málum eins og ég og hv. þm. Ísaf.

Hitt var náttúrlega ekkert óvenjulegt, að rétt um það bil, sem hv. þm. Ísaf. var að ljúka við þá staðhæfingu sína, að hér þyrfti engrar rannsóknar við, þá féllu þau orð hjá honum, að rannsaka þyrfti aftur í fortíðina, hvernig rekstur togaranna hefði verið, og hvort ekki mætti leiða í ljós, að bágur fjárhagur togarafélaganna stafaði að einhverju leyti af því, að fé hefði verið dregið út úr útgerðinni og varið til einhvers annars. Þetta kemur mér ekkert á óvart, hvorki þessi árekstur í hugsun, sem þarna kemur fram, né heldur hitt, að þessi hv. þm. getur illa um þessi mál talað, þannig að innræti hans ráði ekki öllum hans málflutningi. Og það er sannarlega tæplega samboðið öðrum en allra auðvirðilegustu mannskepnu að vera á Alþ. að bera fram árásir á eitt útgerðarfélag fyrir það að hafa ekki selt sína framleiðsluvöru, þegar það var hann sjálfur, sem einna mest var því valdandi, að þetta félag gat ekki selt sína vöru á þeim tíma, sem aðrir seldu sína. Það er öllum vitanlegt, að í febr.— marz ríkti hátt verð á heimsmarkaðinum fyrir lýsi, þannig að það var hægt að selja fyrirfram fyrir £ 21 og jafnvel £ 22, eins og h.f. Alliance fékk. Ég veit ekki fyrir hvað ríkisverksmiðjurnar seldu, en ég veit, að þær fengu £ 21 þennan sama dag og Alliance fékk £ 22. Hvar þetta eina pund, sem á milli ber, er, veit ég ekki. En h.f. Kveldúlfur gat ekki notað þennan markað, því að um þetta leyti hafði fyrrv. atvmrh. neitað að standa við gefið fyrirheit um það, að Kveldúlfur mætti byggja verksmiðju á Hjalteyri, enda þótt þá væri vitanlegt, að félagið væri búið að útvega lán til þess. Ef Kveldúlfur undir þessum kringumstæðum, jafnframt því að fyrir þinginu lá frv. um að gera félagið gjaldþrota, hefði selt fyrirfram við þessu aðgengilega verði, og ef svo frv. hefði orðið að lögum og „vinir alþýðunnar“ yannig skaðað landið um 2–3 millj. í gjaldeyri og verkalýðinn um 1–2 millj. vinnukaup, þá hefði ekkert annað basað við forstjórum félagsins heldur en fangelsi. Það var vitanlega hegningarvert athæfi, ef við forstjórarnir hefðum á þessu stigi málsins selt lýsi úr verksmiðju, sem ekki lá fyrir leyfi til þess að byggja, heldur þvert á móti neitun, og jafnframt lá fyrir þinginu frv. um að gera fyrirtækið gjaldþrota. Þegar svo þessi maður, ásamt hv. 3. þm. Reykv., ásakar Kveldúlf fyrir að hafa með spekulationstilhneigingu sinni látið undir höfuð leggjast að selja, þá kemur það sannarlega úr hörðustu átt. Nú veit hv. þm. það, að rétt á eftir féll verðið, og aldrei, eftir að Kveldúlfur fékk leyfi til þess að hyggja verksmiðjuna, fékkst £ 22, aldrei £ 21, og aldrei hærra en £ 19, og þegar það var hægt, gat heldur ekki hv. þm. Ísaf. náð því verði, hann gat aðeins náð £ 18. Mér er kunnugt um þetta vegna þess, að þegar ég átti tal við fyrrv. atvmrh. og bað um leyfi til þess að selja til Þýzkalands, þá sagði hann, að ekki gæti verið, að ég gæti fengið £ 19, vegna þess, að sér væri persónlega kunnugt um það, að hæsta verðið væri £ 18, og hafði hann það eftir hv. þm. Ísaf. Það er alltaf þetta eina pund, sem á milli ber; þessi hv. þm. fær alltaf einu pundi lægra heldur en allir aðrir. Þegar svo Kveldúlfur seldi fyrir £ 19 þriðjunginn af sinni framleiðslu, þá var spekulationstilhneigingin hjá þessum hv. þm. svo sterk, að atvmrh. tjáði mér að enginn annar en Kveldúlfur vildi sæta þessu verði. Hverjum dettur í hug, að fyrrv. atvmrh. hefði afhent Kveldúlfi einum réttinn til þess að selja til Þýzkalands, ef hv. þm. Ísaf. f. h. ríkisverksmiðjanna hefði að einhverju leyti viljað sæta þessum kjörum. Nei, spekulationstilhneigingin hjá okkur var ekki sterkari en svo, að strax og við fengum viðunandi tilboð, seldum við, þó að engir aðrir hér á landi fengjust til þess að sinna því, og sízt af öllu það fyrirtæki, sem hv. þm. Ísaf. stjórnar. Eftir þetta fór svo verðið fallandi. Ég viðurkenni, að Kveldúlfur hefði getað selt a. m. k. 1500–2000 tonn einu sinni á £ 15, en það er vonandi ekki hægt að kalla það óheyrilega spekulationstilhneigingu, þó að menn séu ekki ákaflega ginnkeyptir til að selja fyrir £ 15, þegar aðrir hafa fengið £ 21–£ 22, enda þótt verðið sé fallandi. Það er eðlilegt, að menn reyni að bíða og sjá, hvort það haldi áfram að falla. Þó að öðrum hv. þm. ef til vill finnist það ekki eðlilegt, þá ætti hv. þm. Ísaf. að geta skilið þetta, því að sjálfur lá hann með talsvert lýsi óselt, meðan við seldum fyrir £ 19 og meðan verðið féll ofan í £ 15, og hann hélt áfram að liggja með vörur ríkisverksmiðjanna, þangað til verðið var komið niður fyrir £ 13, því að hann seldi fyrir í 12–15–0, eftir því sem ég bezt veit. En nú segir þessi hv. þm., að forstjórar Kveldúlfs hafi gerzt sekir um það glæpsamlega athæfi, að bíða með sölu sinnar vöru, í þeirri von, að heimsstyrjöld brytist út. Var það þess vegna, að hv. þm. lá með lýsi ríkisverksmiðjanna, þangað til það var komið niður í £ 12-15-0, að hann var að vonast eftir heimsstyrjöld? Hv. þm. verður að svara þessu annaðhvort játandi eða neitandi. Ég mundi svara því neitandi og viðurkenna, að hann, eins og fleiri, hefðu gert sér vonir um, að vara, sem í febr.-marz var £ 22 virði, héldi ekki endilega áfram að falla, þangað til hún væri komin niður í £ 12-£ 13, einkum þar sem það liggur fyrir, að sú vara, sem aðallega keppir við þessa vöru, hvallýsið, kostar framleiðendurna það mikið, að þeir a. m. k. standa sig illa við að selja hana á £ 13.

Hér liggur því málið þannig fyrir, að sá maður, sem öðrum fremur veldur því, að Kveldúlfur gat ekki selt sitt lýsi, ræðst á félagið fyrir að hafa ekki gert það og kallar það óleyfilega spekulation. Og í þessari óbilgirni gengur hann það langt, að hann gerir félaginu þær getsakir, að það hafi legið með vöruna í von um heimsstyrjöld, sem að hans dómi var það eina, sem gat bjargað við verðinu. En jafnframt er þessi maður staðinn að því, að hafa sjálfur legið með vörur ríkisverksmiðjanna, þangað til verðið var komið ofan í £ 12-15-0. Ég veit, að allir aðrir þm. en þessi mundu fyrirverða sig fyrir slíka framkomu, en ég efast um, að hann geri það. — Nú vil ég hinsvegar hryggja hv. þm. Ísaf. með því, að engar líkur eru til, að tap Kveldúlfs verði svona hræðilega mikið eins og hann heldur, ef gert er ráð fyrir, að sæmilegt verð fáist á því, sem félagið á nú óselt. Ég geri ráð fyrir, að það sé nú búið að selja fram undir 2/3 af sínu lýsi, og að meðaltalsverðið á því sé £ 161/2. Þetta er náttúrlega leiðinlegt fyrir hv. þm., en það verður ekki hjá því komizt, að aðrir fái alltaf hærra en hann, hvað sem af mismuninum kann að verða.

Ég álít, að þetta lýsistal allt hafi ekki átt beint erindi inn í þessar umr. En mér fannst rétt að nota þetta tækifæri hér á þingi til þess í eitt skipti fyrir öll að knésetja þennan mann. Það er ekki rétt að láta honum bótalaust haldast uppi þessi endurtekna, rakalausa illkvittni. Það, sem fyrst og fremst þarf að rannsaka, ef mönnum þykir rannsóknar við þurfa, er auðvitað ekki það, sem þessi þm. er að tala um, þ. e. a. s. hvað verið hefir um togaraútgerðina á 15–20 árum, heldur hvernig hag hennar er komið nú í dag og hvaða líkur eru til, að togararnir geti haldið áfram veiðum án taprekstrar.

Það er vegna vankunnáttu hv. þm., að hann heldur fram, að togaraeigendur hafi ekki samtök með sér um sölur. Það er samsala salan á fiskinum, sem veiðist á togurunum. Og togaraeigendur hafa samtök um kaup á veiðarfærum. Útgerðarmenn hafa einnig komið sér upp lýsishreinsunarstöð, þar sem lýsið er kaldhreinsað, og þeir hafa sameign á stöðinni og samsölu á lýsinu.

En það er annað, sem þessi hv. þm. veit, að hans fyrirtæki hefir tapað svo verulega, að það sér sér ekki annað fært en að láta sinn togara vera bundinn í höfn, því hefir verið gefið eftir af skuldum 95%, en það hefir greitt 5% af sínum skuldum. Við erum allir seinheppnir í framkvæmdum okkar, útvegsmennirnir, nú sem stendur. Tímarnir eru á móti okkur. En ég hygg, að þessi hv. þm. sé þó langóheppnastur. Vegna óheppninnar í útvegsmálum má ekki á hann deila. En á hann má deila fyrir annað frekar — það, að öllum öðrum tekst að fá pundi hærra fyrir það, sem þeir selja af lýsi.

Ég get svo staðfest það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að um þetta mál, sem hér liggur fyrir, hafa engir samningar farið fram milli Sjálfstfl. og Framsfl., hvorki fyrir eða eftir að frv. er komið fram.