07.05.1938
Sameinað þing: 28. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

1. mál, fjárlög 1939

*Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég get vel tekið undir það, sem hv. 9. landsk. sagði um þá upphæð, sem hv. fjvn. hefir ákveðið að veita Jóni Sturlaugssyni, sem eigi að vera nokkurskonar heiðurslaun fyrir hans afrek í þágu nauðstaddra manna á sjó. Ég ætla ekki að rekja þau afrek hér, þau eru alþjóð kunn. Og þó vel megi vera, að hann hafi hlotið einhverja viðurkenningu, sem ég geri ráð fyrir — en man ekki í bili —, þá er hún þess eðlis, að hún verður ekki í askana látin. En hitt er vitað, að hann er kominn að fótum fram og er fátækur maður. En úr því að fjvn. hefir skorið þetta svo um of við neglur sér, þá vil ég beina því til hv. þm. Árn., að þeir geri það að metnaðarmáli fyrir sig og sína sýslu, að þessi þjóðfrægi björgunarmaður sé ekki látinn búa við svo skarðan hlut sem fjvn: hefir honum ætlað á móts við marga aðra, sem fá styrk og viðurkenningu á þennan hátt frá Alþingi.

Um brtt., sem 9. landsk. og ég flytja í félagi, um styrk til bátaferða á milli Stokkseyrar og Vestmannaeyja, þarf ég litlu við að bæta. Frsm. tók það flest fram, sem mælir með henni. En þó vil ég aðeins mega bæta við, að þessar ferðir eru einkum vel til þess fallnar að efla viðskipti milli Vestmannaeyja og Stokkseyrar. Og sá maður, sem hreppsnefndin á Stokkseyri mælti með í styrkbeiðni til þingsins, er fæddur og uppalinn á Stokkseyri, þótt hann eigi nú heima í Vestmannaeyjum, og tel ég það mjög mikils vert, að sá maður, sem stjórnaði þessum ferðum, sé þaulkunnugur á Stokkseyri, vegna innsiglingar. Síðustu áratugi hafa Stokkseyringar og Eyrbekkingar flutzt mikið til Eyja og gerzt þar góðir borgarar á ýmsum sviðum, þó aðallega við sjávarútveginn. Þeir eiga skyldfólk sitt í þessum kauptúnum og sveitinni, oft aldrað fólk, og yrði það mikil ánægja og styrkur, ef þeir, sem atvinnuna stunda í Vestmannaeyjum, gætu liðsinnt því með fisksendingum og öðru, ef reglubundnar ferðir væru á milli. Svo er því ekki að neita, að þessar ferðir á sumrin á milli Stokkseyrar og Vestmannaeyja yrðu vel til þess fallnar, að það fólk, sem litlum tíma hefir að fórna, gæti skroppið upp í sveit um helgar. Í Reykjavík er það alkunnugt, að bærinn svo að segja tæmist um helgar, því að fjöldi fólks streymir út úr bænum á ýmsum farartækjum til þess að njóta heilbrigði sveitaloftsins. Vestmannaeyingar eiga að vísu kost á því að koma til Reykjavíkur, en það er dýr ferð, og meginþorri þeirra getur ekki notið þess. En hitt er þeim áskapað, eins og öðrum, að vilja lyfta sér upp frá störfum um helgar. En þó er það ekki aðalatriði, heldur hitt, að á milli lands og Eyja eru viðskipti á vörum nauðsynleg, en það er mjög erfitt við það að eiga nema um reglubundnar ferðir væri að ræða.

Ég vil þakka hv. þm. Mýr. fyrir sína brtt., sem hann gerði við till., sem ég flutti, um að gera mönnum léttara að afla sér. útsæðiskartaflna. Ég hefi áður talað fyrir þeirri till. og skal ekki færa fyrir henni fleiri rök. Ég þykist þess fullviss, eins og hv. þm. Mýr. er mikill áhugamaður í kartöfluræktun og hefir lýst yfir fylgi sínu við hana, þá muni aðrir sannfærast, og tek ég brtt. hans með þökkum. Ég hafði það eitt fyrir augum, þegar ég samdi till., að þm. sæi það, að svo væri um hnútana búið, að ekki gæti nein óreiða átt sér stað í endurgreiðslu fjárins. Hitt skal ég játa, að sú aðferð, sem hv. þm. Mýr. benti á í sinni till., er góð, og get ég fullkomlega fallizt á hana. Að lokum vil ég leyta mér að flytja brtt. á þskj. 485, VI, um það, að Guðmundi Hávarðssyni verði greiddar 500 kr. upp í halla, er hann beið við flutning símastaura í landsþarfir, vegna atvika er hann átti ekki sök á. Þetta er orðið gamalt og Alþingi kunnugt, og má segja, að hann hafi á mörgum þingum — ég veit ekki hvað mörgum — barizt fyrir því að fá réttan þennan skaða, sem hann beið, þegar honum var ekki borgað umsamið verð fyrir þennan flutning símastauranna, þegar landlínan var lögð frá Borgarnesi og norður. Þeir, sem kunnugir eru þessum málum, telja, að hann hafi ekki átt sök á þeirri stórkostlegu töf, sem olli því, að staurarnir komust ekki á réttum tíma. Hann átti ekki að sjá fyrir sjóflutningi stauranna, en það var einmitt sá flutningur, sem tafðist, og vegna þess gat Guðmundur Hávarðsson ekki fullkomlega staðið við þá samninga, sem hann hafði gert við þáverandi yfirvöld, og bar þess vegna allmikinn halla, sem þessi fjárhæð að vísu hvergi nærri vegur upp. En ég hefi ekki dirfzt að fara fram á meira en 500 kr. honum til bóta. Þessi maður er orðinn háaldraður, og mér finnst það óviðkunnanlegt af hv. Alþingi, jafnoft og hann hefir lagt skýr gögn fyrir þingið um þetta mál, að daufheyrast alltaf við beiðni hans. Nú eru komin yfir 30 ár síðan þetta var, og hann hefir alltaf staðið í stimabraki með að fá þessar bætur. Og má af öllum líkindum gera ráð fyrir því, að þessu 30 ára stríði hans við stjórnarvöld landsins fari bráðum að linna. En honum myndi vera nokkur styrkur og huggun í því, ef þessi litla till. væri nú samþ.