04.03.1938
Neðri deild: 14. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (895)

40. mál, hafnargerð á Raufarhöfn

*Flm. (Gísli Guðmundsson):

Þetta frv. á þskj. 43 er flutt eftir beiðni hreppsn. Presthólahrepps og að mestu leyti samið af henni.

Samkv. frv., er samþ. var hér á síðastl. ári, fór fram nokkur athugun á skilyrðum til hafnargerðar á Raufarhöfn. Átti sú athugun að leiða í ljós, hverskonar hafnarbætur væru mest aðkallandi. Auk þess átti að gera kostnaðaráætlun. En þörfin á þessu er orðin brýn vegna aukins síldariðnaðar á þessum stað. Þessi rannsókn, sem fór fram síðastl. sumar undir stjórn vitamálaskrifstofunnar, leiddi í ljós, að það, sem þarf að gera, er að framkvæma dýpkun hafnarinnar, sem um leið myndi stækka það pláss, þar sem skip gætu legið. Auk þess þarf að gera önnur mannvirki, bryggjur o. fl.

Vitamálaskrifstofan mun í áætlun sinni hafa gert ráð fyrir, að fyrst yrði unninn aðeins nokkur hluti verksins og að það mætti gera án mikils tilkostnaðar. En fyrir liggur líka áætlun um frekari framkvæmdir. Þó er það, sem mest nauðsyn er á, dýpkun á nokkrum hluta hafnarinnar.

Upphæðir þær, sem nefndar eru í frv., eru miðaðar við, að allt verkið verði framkvæmt. Áætlar vitamálaskrifstofan, að það myndi kosta 450 þús. kr. En þó má gera ráð fyrir, að framkvæma megi mjög gagnlegar umbætur fyrir um 200 þús. kr.

Um þetta frv. má segja, að það sé í aðalatriðum samið í samræmi við hafnarl., er samþ. voru hér á undanförnum árum.

Legg ég svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.