29.04.1938
Neðri deild: 57. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

40. mál, hafnargerð á Raufarhöfn

*Bergur Jónsson:

Viðvíkjandi niðurfellingu 2. töluliðar 10. gr. vil ég alveg taka undir það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það sé ekki nema eðlilegt, að höfnin og hreppurinn fái að njóta þeirrar hækkunar. sem verður á lóðagjöldum.

Ennfremur vil ég geta þess viðvíkjandi hinum brtt., við f-lið undir 3. tölul., að þetta er algerlega sama ákvæðið og í flestum öðrum hafnarl.

Að lokum vil ég geta þess, að ég býst við, að hv. Ed. vilji halda fast við þessar breyt., sem hún hefir gert. Eftir því, sem ég hefi aflað mér upplýsinga, þá mun hún breyta frv. aftur í það horf, sem nú er, ef því verður breytt hér. Og það setur bara frv. í hættu, ef samþ. verða þessar brtt.