02.04.1938
Neðri deild: 37. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

86. mál, mór og móvörur

*Gísli Guðmundsson:

Frv. það, er hér liggur fyrir frá hv. landbn., er um það, að veita einkaleyfi til að flytja út mó og vörur unnar úr mó og selja á erlendum markaði. Bæði á síðasta þingi og þessu hafa verið til meðferðar mál svipuð þessu, um að veita einkaleyfi til sérstakrar framleiðslu, sem ekki hefir verið reynd áður, og selja á á erlendum markaði. Þessi hv. d. hafði fyrir nokkrum dögum til meðferðar frv, um að veita slíkt einkaleyfi til fóðurmjölsframleiðslu. Ég er þeirrar skoðunar, að sú stefna, að velta einkaleyfi, þegar verið er með tilraunir um að vinna ný efni, sé réttmæt, og sjálfsagt sé að greiða fyrir þeim. Annars gætu fleiri fyrirtæki snúið sér að sömu framleiðslu, og gæti það eyðilagt möguleikana, ef fleiri færu að fást við það sama og e. t. v. keppa um verðlag o. fl.

En það er eitt í þessu sambandi, sem ég vildi vekja athygli á. Það er, að vel sé athugað, þegar slík einkaleyfi eru veitt, að þau brjóti ekki í bága við áður veitt leyfi, þannig að ekki sé veitt tveim aðiljum samskonar einkaleyfi. Ég hefi veitt því athygli, að í þessu frv. er heimilað að veita einkaleyfi til þess að flytja út mó og vörur unnar úr mó. Ég vildi spyrja hv. frsm. landbn., hvort það liggja fyrir upplýsingar um, hvaða vörur það eru úr mó, sem hann hugsar sér að vinna, ef hann fengi leyfið. Æskilegt væri að veita upplýsingar um það, ef þær væru fyrir hendi. Þingið verður að gæta þess viðvíkjandi þessum einkaleyfum, að þar geti ekki neitt atriði rekizt á annað. En svo gæti farið, ef heimilað væri að vinna úr mó með almennu orðalagi, eins og mér skilst jafnvel, að þetta muni vera.

Það er líka annað í þessu máli, sem ég vil benda á. Ég hygg, að það væri heppilegra, að þessi frv., sem fram koma um einkaleyfi til iðnaðar, færu öll gegnum sömu nefnd þingsins. Það myndi tryggja það, að málin séu rannsökuð hvert í sambandi við annað, og gæti orðið til að afstýra því, að ósamræmi eða árekstrar kæmu upp í sambandi við veitingu þessara einkaleyfa. Þetta frv. er flutt af landbn., en eðlilegra væri, að það væri flutt af iðnn. Ég tel ekkert á móti því, að málinu væri vísað til iðn. milli umr. Sú nefnd hefir haft önnur slík mál til meðferðar í d. En það var þetta,sem ég vildi benda á, að þess sé rækilega gætt við afgreiðslu þessa máls, að engir árekstrar verði milli þessara einkaleyfa.