08.03.1938
Efri deild: 17. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (977)
46. mál, samvinnufélög
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti! Ég ætla ekki heldur á þessu stigi málsins að lengja umræður. Ef þessar brtt. á að skilja þannig, að með þessu eigi eingöngu að koma í veg fyrir, að félög gangi í Sambandið „pró forma“ og nái þar áhrifum, án þess að hafa viðskipti sín við Sambandið, og ef þessi heimild verður samkv. því þannig notuð, að takmörkuð verði fulltrúatala. þegar viðskiptin ná ekki yfir eðlilegt lágmark, þá er ekki hægt að vera móti þessu frv. Og þennan skilning mun hv. flm. og stjórn Sambandsins vilja leggja í frv. En ef framkvæmdin gæti orðið þannig, að í félögunum yrði alltaf miðað við viðskiptaveltu deildanna eftir einhverjum hlutföllum við tölu meðlima og á hliðstæðan hátt miðað við veitu félaganna við fulltrúakosningar á sambandsfund, þá brýtur þetta í bág við allt lýðræði og eina meginregluna, sem samvinnufélögin eru byggð á. Því að þá eru það ekki lengur menn, heldur krónur, sem ráða innan hvers félags og í Sambandinu.
Af samtölum, sem ég hefi átt við menn í stjórn Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis, er mér kunnugt um, að þeir mundu gefa af félags síns hálfu fallizt á meginatriði þessa frv., ef fyrri skilningurinn, sem ég nefndi, yrði lagður í það, en ekki, ef það yrði hinn síðari, því að þá gæti Sambandið gert hvaða félag sem er áhrifalaust með því að takmarka við það viðskiptin. — Það er í rauninni engin von til að neytendafélög í bæjunum gangi í Sambandið, ef þau geta búizt við að verða gerð þar gersamlega áhrifalaus. Og ef þau geta ekki fengið þar þær vörur, sem þau þurfa, yrði slík „pólitík“ hjá Sambandinu til þess, að þau mundu alveg losna frá því og mynda sitt eigið samband.
Það má segja að þetta séu aðeins heimildarlög. En auðvitað eru þau sett í því skyni að framkvæma þau á einn eða annan hátt. Enda er frv. flutt fyrir tilmæli stjórnar SÍS, og má gera ráð fyrir, að hún sé búin að ákveða með sér, hvernig hún leggur til við Sambandsfund, að þetta verði framkvæmt.
Ég vil, að þessu máli verði ekki hraðað um of, heldur athugað vel í nefnd, og að kaupfélögin fengju að segja sitt álit. Þá treysti ég því, að ekkert verði samþykkt nema það, sem allir aðiljar megi vel við una.