04.04.1938
Efri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

46. mál, samvinnufélög

*Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti! Ég get upplýst hv. 2. þm. Eyf. um það, að ég get ekki fallizt á þetta frv. hans eins og það er, einmitt vegna þess, að ég er heldur fylgjandi frjálslyndri pólitík, eins og hann orðaði það sjálfur. Hv. þm. segir, eins og rétt er, að það hafi komið ósk frá stjórn SÍS um það, að l. yrði breytt í þessa átt, og hann litur svo á, að úr því að sú ósk hefir komið fram frá samvinnumönnum í landinu, þá beri Alþ. líka að verða við þessari ósk. Ég er hv. þm. sammála um það, að Alþ. beri að láta samvinnufélagsskapinn í landinu hafa yfirleitt sem frjálsastar hendur og gera sér far um að verða við slíkum óskum, svo framarlega sem þær eru heilbrigðar og geta ekki orðið þjóðarheildinni til skaða. En hvað er hér um að ræða? Þessi ósk hefir komið frá SÍS, en aftur á móti er fullvíst, að samvinnuhreyfingin í bænum er andvíg þessu og óskar ekki, að Alþ. geri þetta að 1. Er nú ekki, þegar á þetta er litið, dálítið varhugavert að samþ. l., sem vitað er, að mikill hluti samvinnuhreyfingarinnar í landinu er á móti? Ég get upplýst hv. þm. um það, að á aðalfundi stærsta kaupfélagsins hér í Reykjavík, Kron, sem að vísu er ungt og hv. þm. ber ekki eins mikla virðingu fyrir og öðrum samvinnufélögum, eftir því sem mér virtist orð hans falla, var algerð eining um þetta mál; sumir vildu að vísu fara lengra en gert var, en það var samkomulag um málið, og það líka hjá þeim framsóknarmönnum, sem þar voru, og það var engum andmælum hreyft gegn þessu hjá þm. Framsfl., sem þarna voru, enda kom fram hjá einum framsóknarmanni, sem talað hefir hér, hv. 1. þm. N.-M., nákvæmlega sama skoðun á þessu máli eins og á þessum fundi og ég hefi á málinu.

Hitt er augljóst mál, að samkvæmt þessu frv. er hægt að takmarka rétt félaganna nærri ótakmarkað. Það er hægt að takmarka hann svo, að félag eins og Kron hafi t. d. aðeins 3 fulltrúa, en önnur félög, sem eru miklu minni, hafi miklu fleiri fulltrúa. Um þetta eru gefnar frjálsar hendur í þessu frv. Nú kemur hv. þm. með þau rök á móti þessu, að eins og l. eru nú, geti aðalfundur stórlega takmarkað fulltrúarétt félaga eins og Kron, og það er alveg rétt. Aðalfundur getur t.d. takmarkað fulltrúarétt Kron, eins og hann sagði sjálfur, niður í 3 fulltrúa, en með þessu frv., ef að l. verður, eru sambandsfundum gefnar enn frjálsari hendur, vegna þess að það er ekki nóg með það, að þeir geti takmarkað fulltrúatölu félags eins og Kron niður í t. d. 3, heldur geta þeir gefið öllum félögum, sem eru miklu minni, fleiri fulltrúa, svo framarlega sem félagið hefir sama sem engin viðskipti við SÍS, en annað félag, sem er mikið minna, hefði mikil viðskipti við það, í krafti þess, að SÍS geti takmarkað viðskiptin, eins og því sjálfu sýnist. Það má segja sem svo, að það sé undir aðalfundi SÍS komið, hvernig þetta verður framkvæmt, eins og hv. þm. hefir margsinnis verið að taka fram. En ég þykist vita, og þarf ekki að fara í grafgötur með það, að þetta frv. er borið fram af stjórn SÍS í alveg ákveðnum tilgangi, og það er tilgangurinn að framfylgja þessu á sama hátt og SÍS hefir hugsað sér, og það mjög án tillits til þess, hverju önnur félög óska eftir í þessu efni. Það er ekki á valdi þessara félaga að hafa áhrif á þetta, vegna þess að þau eru í miklum minni hluta í SÍS, og það eru mjög miklar líkur til þess, eins og högum er nú háttað í SÍS, að stjórn þess geti mjög svo ráðið því, hvernig l. verða framkvæmd.

Afstaða mín til þessa frv. fer, alveg eins og ég tók fram við l. umr. málsins, eftir því, af hvaða rótum þetta frv-. er sprottið, eins og hv. 1. þm. N.-M. tók fram. Þar er ég honum alveg sammála. (EÁrna: Af hvaða rót er þetta sprottið í Englandi, Noregi og Svíþjóð?). Það fer eftir framkvæmdinni. Í Svíþjóð t. d. virðist þetta sprottið af þeirri rót, sem ég og hv. 1. þm. N.-M. getum fellt okkur við. (EÁrna: Þetta er alstaðar sprottið af sömu rótinni). Ef meiningin er sú, að takmarka fullrúatöluna við viðskiptin, þannig að það verði ekki meðlimirnir og fjöldi þeirra í sambandsfélögunum, sem eiga að ráða og kjósa fulltrúa, heldur fjármagnið, þá er ég andvigur frv. Og af hverju? Vegna þess að það brýtur í bága við allt lýðræði, og eins og hv. 1. þm. N: M. tók það fram, stefnir það í þá átt að gera samvinnuhreyfinguna skylda hlutafélögunum, og vegna þess að það er vel hugsanlegur möguleiki, að í þessu frv. felist einmitt sá tilgangur, og ég hefi meira að segja talsverða ástæðu til að ætla, að það sé tilgangurinn með frv., af því að sá möguleiki felst í því, álit ég, að Alþ. eigi ekki að samþ. svona frv., einmitt vegna þess að það er á móti þjóðarheildinni. Það tel ég tvímælalaust á móti þjóðarheildinni, að SÍS sé heimilað að set ja þær reglur um fulltrúavalið innan sinna vébanda, sem gersamlega eru á móti lýðræðinu, og stefnir frá grundvallarreglum samvinnuhreyfingarinnar. Sé þetta frv. hinsvegar sprottið af þeirri rót, að sambandsstjórn óski eftir heimild til þess að takmarka rétt félaga, sem eru meðlimir aðeins að nafninu til, þá er ég samþykkur frv., en þá þarf að koma fram brtt., sem tryggir þetta, en útilokar jafnframt, að hægt sé að framkvæma þetta á hinn veginn.

Afstaðan til þessarar brtt., sem ég og fleiri munu bera fram við 3. umr., sannprófar, hver meiningin er hjá stjórn SÍS í þessu máli. Það kemur ekki fram í þessu frv., en þegar brtt. kemur fram, vænti ég þess, að málið upplýsist betur.