08.12.1939
Sameinað þing: 17. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (1008)
1. mál, fjárlög 1940
Helgi Jónasson:
Ég læt ekki hjá líða að segja nokkur orð út af þeim till., sem hér liggja fyrir. Allar þær till., sem hér eru bornar fram af fjvn., eru gerðar í góðri samvinnu í n. og allar afgreiddar með shlj. atkv. Það hefir að vísu ekki verið sársaukalaust og ekki veitzt létt fyrir okkur fulltrúa sveitakjördæmanna að samþ. sumar af þessum brtt., t. d. till. um lækkun á framlagi til byggingar- og landnámssjóðs um 75 þús. kr. og lækkun til verkfærakaupasjóðs um 35 þús. kr. Nefndin lítur svo á, að ástandið sé svo alvarlegt, að hjá slíku verði ekki komizt í þetta sinn. Það er aðeins viðvíkjandi brtt. við 18. gr., á þskj. 409, þar sem meiri hluti fjvn. hefir flutt þá brtt., að taka listamenn og skáld út af frv. og láta þá koma undir menntamálaráð. Eins og getið er um í 15. gr., eru veittar 80 þús. kr. sem heildarupphæð til styrktar skáldum og listamönnum í landinu, og ætlazt til, að menntamálaráð úthluti þessum styrk í framtiðinni. Ég get ekki fellt mig við þessa hugmynd, og til þess liggja ýmsar ástæður. Alþingi hefir alltaf haft þessi völd með höndum, og tel ég þetta skerðingu á rétti og skyldum Alþ. Rökin, sem fram hafa verið færð fyrir því, að þetta sé nauðsynlegt og sjálfsagt, hafa verið þau, að leiðinlegt sé að sjá öll þessi mannanöfn í fjárlögum, og það lítur óneitanlega illa út að sjá langar nafnaraðir í fjárl. En það væri samt mikið eftir, þó að þessi viðbót væri tekin út. Enda má nokkuð losna við það með því að semja sérstaka skrá, sem ætti að fylgja fjárl., yfir alla, sem fengju laun eða styrk fyrir listaverk sín eða bókmenntir. Þá er talað um, hversu óþægilegur fyrir þm. væri þessi sífelldi áróður frá mönnum, sem sæktu um styrk til þingsins. Það er nokkuð til í þessu, en ég fullvissa hv. þm. um það, að þó að þessi styrkur sé tekinn út af frv., losni þeir ekki við áróðurinn fyrir því. Ég er sannfærður um, að það þykist einhver verða útundan hjá menntamálaráði. Ég vantreysti því ekki að gera eftir beztu getu, en bæði hefir það ekki mikið fé með höndum, og margir koma til greina við úthlutun þess, einhverjir settir hjá, sem eru óánægðir. Náttúrlega yrði alltaf einhver óánægja, og aldrei komizt hjá því, að einhverjum fyndist hann vera settur hjá, en Alþingi hefir að mínum dómi farið furðulega vel með þessi mál áður. Þá var talað um það, að þm. væru ekki hæfir til þess að dæma um, hverjir ættu að fá styrkinn. Ég verð að segja það, að þm. verða að taka afstöðu til og greiða atkv. um stærri upphæðir til ýmissa hluta, sem hafa meiri þýðingu fyrir fjárhagsafkomu þjóðarinnar heldur en þessar kr., sem hér eru veittar til skálda og listamanna. Það er talað um þetta sem sparnaðarráðstöfun fyrir ríkissjóð. Það er nú ekki stór upphæð á okkar fjárlögum sem veitt er til skálda og listamanna, aðeins 100 þús. kr., og er það ekki mörg prósent, ef miðað er við þær upphæðir, sem eru á fjárl. Ég er sannfærður um, að þó að þessar 80 þús. kr. væru teknar út af fjárlögum, myndi áróðurinn verða jafnsterkur á þm. eftir nokkur ár eins og nú hefir verið. Þingmenn eiga sína skjólstæðinga og aðdáendur meðal þessara andans manna, sem þeim fyndist vera settir hjá af menntamálaráði og vildu því reyna að koma inn á fjárlög. Þannig mundi áróðurinn verða alveg sá sami eftir sem áður, þó að úthlutunin yrði framkvæmd af menntamálaráði, og af þeim ástæðum enginn sparnaður. Alþ. hefir lengi haft þennan rétt, og ég tel, að það hafi farið vel með hann.
Ég legg til, að þingið hafi enn í sinum höndum þennan gamla rétt, hvort sem það skipar til þess sérstaka n. eða ekki. Það hefir komið fram brtt. á þskj. 409, sem ég hefi gerzt meðflm. að og býst við, að hv. aðalflm. lýsi nánar.