08.12.1939
Sameinað þing: 17. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)

1. mál, fjárlög 1940

*Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti! Það er líkt á komið með mér og hv. síðasta ræðumanni.

Við höfum báðir skrifað undir nál. með fyrirvara við 18. gr. og 15. gr. Ég vil hér gera grein fyrir þessari afstöðu minni til málanna að því er snertir þessa liði. Hv. 2. þm. Rang. hefir sagt margt það, sem ég vildi segja. Mér finnst rétt, að Alþ. hafi vald til þess að úthluta þessum styrk, eins og undanfarið, og láti ekki þá skyldu hvíla á herðum annara að velja og hafna um styrkveitingu til skálda og listamanna. Sú tilhögun, að láta menntamálaráð hafa með höndum úthlutun þessa styrktarfjár, á víst í og með að vera til þess að stemma stigu fyrir fjáraustri, sem átt hefir sér stað. Ég held ekki, að hér sé verið að stemma stigu fyrir óþarfa fjáraustri. Ég hefi þá afstöðu, að vera mjög frjálslyndur hvað bókmenntir og vísindi snertir, og ég held, að þótt Ísland kunni að leggja hlutfallslega meira af mörkum til vísinda og lista, borið saman við stórþjóðirnar, þá álít ég, að það sé margfaldur gróði fyrir okkur að geta hlúð að því. Ef af þessari breytingu verður, þá held ég, að leiði af því þröngsýni og meiri þröngsýni, ef Alþingi ætlar að afsala sér þessu valdi í hendur örfárra manna. Ég vil ekki kasta af mér þeim óþægindum, sem ég kann að losna við með því að leggja þetta í hendur menntamálaráðs. Ég vil ekki kasta af mér ábyrgðinni og óþægindunum af því, að ég tel það skyldu mína. Ég hefði e. t. v. getað gengizt inn á, að það væri eðlileg bráðabirgðaráðstöfun að ákveða til þessara mála ákveðna upphæð á fjárlagatímabilinu og fela menntmr. úthlutun þess. En af „principiellum“ ástæðum er ég á móti því.

Ég þarf ekki frekari grein að gera fyrir andstöðu minni; hún er af þessum ástæðum. Ég vil heldur starfa í þessari „umsetnu borg“ heldur en að varpa af mér ábyrgðinni, sem er samfara þeirri reglu, sem hingað til hefir verið farið eftir.