08.12.1939
Sameinað þing: 17. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)

1. mál, fjárlög 1940

*Jónas Jónsson:

Það er held ég nokkuð afsakanlegt, þótt sú brtt., sem hv. 11. landsk. kallar litla brtt., taki dálítinn tíma við umr., af því að þetta er eins og prufumál hér á þingi. Og eins og hæstv. fjmrh. hefir lýst ástandinu, er það æskilegt fyrir þing og stj., úr því að þing er nú haldið á þessum tíma, að það sé tekin lokaákvörðun um það, hvað menn treysti sér til að áætla tekjurnar; og mun næsta vika ganga í þá vinnu í samráði við ríkisstj., og sýna þá þm., hver blærinn er á þeirri áætlun, og það kemur greinilega fram við lokaafgreiðslu fjárl.

Ég álít, að sá þáttur í ræðu hv. 11. landsk., sem laut að því að sýna fram á, að það hefði verið heldur slælega unnið í fjvn., sé óþarfur, því að ég er ekki viss um, hve réttlátur sá dómur er. Ég skal annars ekkert fara út í það. En ef hv. þm. hefir þessa sannfæringu, þá vildi ég sízt mæla móti því, ef hann vildi koma fram með rök í því máli.

Ég tel rétt að segja frá því hér, að þegar við komum saman fjvnm. eftir sumarfríið, sem tekið var sérstaklega með tilliti til þess, að geta betur áttað sig á fjármálunum, — þegar við þá byrjuðum að vinna, höfðum við engan staf frá þessum starfsmanni stjórnarráðsins okkur til leiðbeiningar nema það, að það mætti búast við, að tekjur af tollum og sköttum yrðu á þriðju millj. lægri heldur en áætlað hefði verið. Ég ætla að segja það strax, að ég er ekki eins bölsýnn á þetta eins og hv. 11. landsk., en þetta var sú leiðarstjarna, sem við fengum frá þessum manni.

Við skrifuðum þá fjmrn. á þá leið, að ef ætti að byrja á svo stórfelldum niðurskurði eins og gert væri ráð fyrir, þá álitum við tilgangslaust að byrja á því, ef stj. stæði ekki á bak við og gæfi aðalstefnuna og sýndi viðleitni í þessu máli. Þetta bréf sendum við síðustu dagana í okt. Svo leið, ef ég man rétt, fram til 17. nóv., þangað til við höfðum fengið þetta svar frá þessum starfsmanni stjórnarráðsins, sem hafði að þessu unnið, þannig að ég verð að játa, að við vonuðumst til þess, að hann kæmi betur til móts við okkur í þessu efni, en verkið hefir reynzt honum erfitt, og þá vildi ég biðja hann að reikna okkur frá syndareikningnum tímann til 17. nóv., þegar við loksins fengum svar hans.

Mér fannst það óheppilegt í ræðu hv. 11. landsk., þegar hann sagðist vera hissa á því, að umr. um þessa litlu till., sem hann er flm. að, skyldu verða svo miklar. En það er þessi litla till., sem liggur fyrir frá þessum starfsmanni fjmrn., sem er þm. líka, sem er önnur bendingin til þingsins í viðbót við það bréf, þar sem hann segir, að búast megi við á þriðju millj. kr. halla á fjárl.

Þegar þessi hv. þm. ber þetta saman, þá þarf hann ekki að vera hissa á þessum umr., sem fram hafa farið um hans till. Hv. þm. sagði, að þessi breyt., sem hann erfir frá fyrrv. fjmrh., væri stór nýbreytni. En í sjálfu sér gerði hann ekki ráð fyrir þeim erfiða möguleika, að dregið yrði stórkostlega úr verzluninni við útlönd. Þá verð ég að segja það, að hann sem þm. og við þm. og hæstv. ríkisstj. verðum áreiðanlega að taka upp ýmiskonar nýbreytni, ef vantar á þriðju millj. kr., miðað við það, sem verið hefir, á tekjur ríkissjóðs, sem fæst með tollum og sköttum, og það miklu meiri nýbreytni heldur en lækkunin, sem er á þessum eina lið, sem er að vísu nokkur, en ekki neitt í samræmi við þessa skoðun hv. þm. um tekjuhrun ríkissjóðs. Ég álít það þess vegna ekkert einkennilegt, þótt nokkur tími hafi gengið í að svara hv. þm. út af till. hans og ræðu.

Þá álit ég nauðsynlegt að athuga, hve mikið við eigum að leggja upp úr réttinum til þess að vera refirnir, sem grenjaskytturnar hér í hliðarherbergjum Alþingis sitja um. Ég legg ekki mikið upp úr þessum rétti, eða að verða fyrir þeim heiðri. Það er kannske af því, að ég hefi fengið töluvert af honum eins og aðrir þm.

Ef einhver af þessum sexmenningum, sem flytja till., kæmi fyrir 3. umr. með till. um þá breyt., að í staðinn fyrir menntamálaráð kæmi fimm manna n., sem kosin væri af þingi, en ekki væri skipuð þm., þá vildi ég það af eigingjörnum ástæðum, því þá gæti ég komizt hjá því að skipta mér af þessu vandasama starfi og þar af leiðandi losnað við grenjaskytturnar. Þá væri líka komið til móts við þá þm., sem halda, að það sé tiltakanlega óheppilegt, að menntamálaráð úthluti þessum styrkjum. Og það er enginn ávinningur fyrir menntamálaráð að fá þennan óvinsæla vanda. En af því að ég álít, að við getum ekki leitt alveg hjá okkur að tala ofurlítið um andlega hluti, þá ætla ég að víkja að ræðu hv. 11. landsk. Ekki um fjármálaskoðanir, ekki um stefnu stj. og samvinnu fjvn., því þar er ég honum sammála. En hann hélt því fram sem staðreynd, að mistök hefðu þar átt sér stað fyrir þinginu, þegar teknir voru út úr fjárl. vissir liðir, eins og sá liður, að fela vegamálastjóra að úthluta nokkrum styrk til gamalla verkstjóra — og ég veit, að ég ætla að róa í hann um einn slíkan styrk til eins gamals verkstjóra, sem ég þekki. Ég býst við, að fleiri þm. geri hið sama. — Ég hygg, að fræðslumálastjóri. hver sem hann er, hafi einnig með höndum nokkra fjárhæð til þess að veita til gamalla kennara. Þessi fjárhæð er að vísu ekki stór, en þingið fól þessum mönnum þessa úthlutun vegna þess, að margir verkstjórar og kennarar voru komnir í grenjaskyttuaðstöðuna. Ég man ekki eftir, að síðan hafi nokkur þessara manna fengið slíkan styrk beint frá Alþ., heldur hafi þeim verið vísað til vegamálastjóra og fræðslumálastjóra.

Þá er það viðkomandi stúdentastyrknum. Ég held, að ef hv. 11. landsk. ber saman fjárl. eins og þau voru og eins og þau eru nú, þegar stúdentarnir voru í grenjaskyttuaðstöðunni, þá muni hann sjá, að munurinn er mikill. Það hafa að vísu ein eða tvær grenjaskyttur komizt inn á fjárl., en það er alveg hverfandi miðað við það, sem var áður.

En menntamálaráð hefir verið í hinum mestu vandræðum, því að fjárstyrkurinn til stúdenta var svo lítill, að hv. 1. þm. Skagf., sem þekkir vel ástæður stúdenta, hefir haft mikla löngun til að fá hærri fjárveitingu til þeirra heldur en fengizt hefir, af því að hann finnur sárt til þess, hve lítið er hægt að gera í þessu efni. En aðalatriðið hefir náðst, eins og hver maður sér með samanburði fjárl.

Þá ætla ég að leyfa mér að halda áfram í andstöðu, ef það er skoðun hæstv. fjmrh., að lífið stöðvist á þennan hátt. Það verður ekki stöðvað. Nú er f. d. búið að veita styrkinn til skálda og listamanna. Þá má segja, að á næsta ári falli niður styrkurinn til Einars Kvarans — ég tek þetta sem dæmi —, en hvaða n., sem með þessi máli færi, myndi setja inn í staðinn Gunnar Gunnarsson með einn slíkan styrk, þannig að það kemur maður í manns stað.

Þá vil ég benda á annað, sem er sorglegt og óheppilegt við grenjaskyttuaðferðina. Ég ætla ekki að segja neitt um það, hver sé mesti listamaðurinn hér á landi, en Jóhannes Kjarval er með þeim mestu listamönnum, sem uppi eru og nokkurn tíma hafa verið á Íslandi. Og hvernig hefir verið forsjón þessara 49 manna, sem á þingi hafa setið, gagnvart þessum listamanni? Þannig, að þessi maður, sem stendur svona ákaflega framarlega í okkar listamennsku, hefir ekki fengið einn eyri veittan í fjárl. Einu sinni gerðum við það í menntamálaráði með samvizkunnar mótmælum að veita honum 500 kr. Við skömmuðumst okkar fyrir að bjóða honum samskonar viðarkenningu og við réttum að algerðum byrjendum. En svona er lífið, að þessi maður, sem áreiðanlega verður falinn meðal allra fremstu, einkennilegustu og merkilegustu manna, sem Ísland hefir átt, er eins og nú er ekki auðmaður. Það er mála sannast, að stundum hefir rafmagnið verið tekið af honum, af því að hann hefir ekki haft efni á að borga það. En við fjörutíu og níu höfum ekki munað eftir þessum manni, — og enginn af þeim sexmenningunum hefir munað eftir honum. Jafnvel það illa kynnta menntamálaráð hefir reynt af lítilli getu að borga vissa hluti, sem komu þessum manni vel, eins og húsaleigu, sem aðrir, sem höfðu miklu betur vit á þessu en við, hafa gleymt. Ég legg hér Kjarval fram fyrir þessa samkomu sem sönnunargagn fyrir því, að þessir hlutir munu ekki standast dóm sögunnar ákaflega vel.

Í grg. fyrir þessum stuttu till. okkar höfum við tekið eitt fram, þessi mjög svo leiðinlega og þunglamalega n., sem ekki á upp á pallborðið hjá hv. þm., þar sem hún stendur að niðurskurði einum enn sem komið er, að það er ekki óeðlilegt, að við tökum þessa leið, að láta einhverja n. veifa styrkinn til listamanna, og. þá fylgi því sú heimild, að taka listaverk upp í styrkinn. Þessir menn mundu fegnir vilja taka þennan kost. Þeir hafa fjölda af listaverkum. T. d. hefir Ásmundur Sveinsson sérstaka kunnáttu í að skreyta hús og hefir skreytt stórt hús í bænum, Austurbæjarskólann, með myndum og auk þess prýtt rafstöð Reykjavíkur við Sogsfossa. Þessi maður fær nú dálitla upphæð, áreiðanlega ekki of mikla til þess að halda honum við í sínu steinhúsi. Honum er mesta gleði að gera þó að ekki sé nema 3–4 andlitsmyndir af merkum mönnum okkar samtíðar, og vildi það heldur en að honum væri réttur styrkur fyrir ekkert. Ég vil segja hæstv. fjmrh. og hans ágætu skoðunarbræðrum, að ég vil leyfa mér að leggja fram þessa uppástungu, hvað snertir framsýni og ráðdeild á móti því, sem þeir geta lagt fram, sérstaklega viðkomandi allri umhyggju fyrir, hvernig við söfnum okkar listaverkum. Þessu fyrirkomulagi má eins koma við, þó að sú leið verði farin, að kosin sé 5 manna n. af Alþingi eingöngu í því skyni að fjalla um þessi mál, en ég vil láta það vera arf frá okkar menntamálaráði að muna eftir Kjarval. Hann má fá styrk, þó að hann hafi gleymzt hingað til.