28.12.1939
Sameinað þing: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
1. mál, fjárlög 1940
Forseti (PO):
Ég vil út af því, sem fram hefir komið hér, aðeins benda á það, að í þingsköpum heyra ekki útvarpsumr. um eldhús undir þann málaflokk, sem skylt er að útvarpa. Hinsvegar hefir orðið venja að útvarpa þessum umr. Vil ég þess vegna biðja þá hv. þm., sem samþ., að útvarpsumr. um eldhús falli niður að þessu sinni, að rétta upp hönd.