28.12.1939
Sameinað þing: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)

1. mál, fjárlög 1940

*Einar Olgeirsson:

Við höfum lagt hér fram nokkrar brtt., sem ég mun fara um fáum orðum, um leið og ég ræði aðrar till., sem fyrir liggja frá fjvn. Við höfum ekki gert að þessu sinni neinar brtt. við tekjuöflunarliði fjárl. Undanfarin þing höfum við lagt fram ýtarlegar till. um tekjuöflun til ríkissjóðs og liggja frv. okkar um það fyrir hjá þeim n., er hafa fengið þau til athugunar, því að þaðan hafa þau aldrei komið aftur. Geta þm. fengið aðgang að þessum plöggum og kynnt sér, að við höfum séð leiðir til að afla tekna á móti þeim útgjöldum, sem við höfum farið fram á. Við höfum, eins og við lýstum yfir á fyrsta þinginu, er við sátum, álitið það skyldu okkar að leggja fram tekjuöflunartill. um leið og farið er fram á útgjöld. En þar sem engar eða fáar af þessum till. okkar hafa ennþá verið samþ., þá standa okkar rök óhögguð hvað varðar tekjuhlið málsins.

Út af till. fjvn. vil ég taka það fram, að hún leggur m. a. til, að lækkað sé tillagið til fiskimálasjóðs, og er ég andvígur því, enda hefir okkar afstöðu til þessa atriðis verið lýst áður.

Kem ég þá að útgjaldatill. okkar, sem ekki eru sérstaklega miklar, heldur höfum við farið þar eins gætilega í sakirnar og frekast var hugsanlegt, með tilliti til þess ástands, sem ríkir hjá þjóðinni.

Í fyrsta lagi höfum við lagt til, að borðfé konungs sé lækkað. Við höfum áður lagt fram till. í þessa átt, sem gekk lengra. Þessi liður var af fjvn. hækkaður úr 60 þús. kr. í 73 þús. kr. Ef þessi greiðsla er borin saman við það, sem Danir greiða sínum konungi, sem mun vera 1 millj. kr. á ári, þá sést, að sú greiðsla samsvarar því, að við Íslendingar greiddum okkar konungi 30 þús. kr. Það er því engin ástæða fyrir okkar fátæku þjóð að streitast við að greiða konunginum, sem er danskur maður, meira en Danir sjálfir telja sæmilega greiðslu. Virðist gæta mjög lítils þjóðarmetnaðar hjá þeim þm., sem annars taka sér þó það orð oft í munn, að þeir skuli vilja ákveða þessa greiðslu í dönskum kr. Af því að þessi greiðsla hefir verið áætluð 60 þús. kr. í fjárl. undanfarið, en íslenzka krónan hinsvegar lækkað í verði miðað við hina dönsku, þá leggur fjvn. til og fékk samþ. við 2. umr., að borðfé konungs hækki sem svarar gengisfallinu. Þessir þjóðhollu Íslendingar, sem þykjast vera, hugsa hersýnilega á dönsku og í dönskum krónum. Við álítum rétt að breyta þessu nú við 3. umr., og viljum gefa hv. þm. tækifæri til að sýna, að þeir hverfi nú frá villu síns danska vegar og ákveði konunginum 60 þús. ísl. kr. — Þá finnst okkur undarlegt, þegar sett eru l., sem banna alla kauphækkun til manna, sem hafa yfir 300 kr. laun, að þá skuli byrjað á því að hækka laun hæstlaunaða starfsmanns ríkisins, manns, sem hefir sexföld ráðherralaun, — en þau vilja þm. nú endilega hækka upp í 7½-föld ráðherralaun. Hinsvegar er Alþ. búið að sitja tvo mánuði án þess að minnzt hafi verið á kaupgjaldsmálin, sem vitanlegt er þó, að almenningur ætlast til, að leyst verði áður en þingi lýkur. Ég veit, að engir menn með nokkurn veginn heilbrigða skynsemi og óblindaðir af pólitískri þröngsýni munu ganga í berhögg við réttlætismeðvitund almennings og þær kröfur, sem þjóðin yfirleitt gerir til Alþ. Ég vænti þess því, að þótt lítið af öðrum till. okkar verði samþ. þá nái þessi fram að ganga, og að það komi í ljós við atkvgr., hverjir eru sannir Íslendingar.

Þá berum við fram brtt. um, að framlagið til landhelgisgæzlu verði hækkað. Það hefir undanfarið verið 500 þús. kr., en var lækkað við 2. umr. í 400 þús. kr. Við leggjum til, að það verði færi upp í 600 þús. kr. Ég vil sérstaklega minna á það í þessu sambandi, að það virðist undarleg ráðstöfun, að láta þann af skipstjórum varðskipanna, sem atorkumestur hefir verið við landhelgisgæzluna, ganga iðjulausan, en á fullum launum í landi, í stað þess að nota starfskrafta hans á sjónum og láta hann vinna fyrir sínu kaupi, — og tímabært að yfirleitt verði nú farið aftur að gæta landhelginnar, en það virðist ekki hafa verið gert sérstaklega vel undanfarið. Það virðast vera næg hlunnindi, sem íslenzku togaraútgerðinni eru veitt með skattfrelsi og gengislækkun, þótt landhelgin sé henni lokuð um stund.

Þá höfum við farið fram á nokkurn aukinn kostnað vegna vitamála. Laun vitavarða eiga samkv. okkar till. að hækka úr 34 þús. kr. í 40 þús. kr., rekstrarkostnaður vitanna hækki úr 165 þús. í 200 þús. kr. og viðhald og endurbætur hækki úr 20 þús. í 30 þús. kr. Við álítum þetta mjög nauðsynleg atriði. Hvað snertir launahækkunina, þá verður það að álítast mjög undarlegt af fjvn., að gera ekki ráð fyrir neinni launahækkun hjá starfsmönnum ríkisins á næsta ári. Það var þó nýlega lesin upp hér í þinginu og barst öllum þm. áskorun frá félögum þessara manna, þ. e. tollvarða, símamanna, kennara og skrifstofumanna, um launahækkanir. Í till. fjvn. er hinsvegar ekkert ráð gert fyrir slíkum hækkunum. Það er þó vitanlegt, að ekki verður komizt hjá því að hækka launin á einhvern hátt. Fyrir liggja kröfur frá starfsmönnum hins opinbera, verkamönnum og yfirleitt öllum, um launahækkanir, og vitað er, að stýrimenn munu gera verkfall, ef ekki nást samningar um launahækkanir hjá þeim nú um áramótin. Við höfum aðeins lagt fram þessa litlu till. um laun vitavarða, þar sem við getum ekki álitið okkar verk að endurskoða framlög til skólanna, t. d. í sambandi við kennaralaunin, enda heyrir slíkt til starfi fjvn. Þetta litla atriði, launahækkun vitavarðanna, er prófsteinn á vilja þingsins á þessum málum yfirleitt. — Þá höfum við borið fram till. viðvíkjandi brúargerðum. Leggjum við til, að brú verði byggð á Jökulsá á Brú. Annars miðast okkar till. yfirleitt ekki mikið við það, að erlent efni þurfi til framkvæmdanna.

Fjvn. leggur til, að lögreglukostnaðurinn í Reykjavík hækki úr 50 þús. kr. í 80 þús. kr. Þessi útgjaldaaukning mun standa í sambandi við ríkislögreglufrv., sem nýlega var samþ. hér á Alþ. Það sýnir sig því, að ekki stendur á peningunum, þegar lögreglumálin eru annarsvegar. Samtímis liggur fyrir till. frá fjvn. um að lækka raunverulega framlagið til atvinnubóta í landinu. Það má þó segja, að fjvn. hugsi rökrétt, þar sem hún eykur lögregluvaldið um leið og atvinnumöguleikar fólksins eru skertir. Um leið og mönnum er neitað um að bjarga sér, þá á að sjá fyrir kylfum í hausinn á þeim. Við höfum ekki lagt fram sérstaka till. til lækkunar á lögreglukostn. í Reykjavík, vegna þess að till. fjvn. sýna það glögglega, að aðalatriðið verður að reyna að halda í það, sem verið hefir, og hindra, að ástandið verði gert ennþá verra og bölvaðra. Það er nú svo, að við sósíalistarnir hér á þingi erum eiginlega orðnir einu íhaldsmennirnir, af því að hitt er orðin ein afturhaldsfylking, Framsfl., Sjálfstfl. og Alþfl. Við reynum því að halda í það, sem er, því að hinir reyna sífellt að gera ástandið bölvaðra en nokkru sinni fyrr. Við munum því aðeins reyna að hindra, að lögreglukostnaðurinn verði aukinn, en ekki bera fram lækkunartillögur um það efni. Um leið og þessi hækkunartill. um lögreglukostnaðinn kemur fram, er lagt til annarstaðar að bæta inn nýjum tölul. um byggingu fangahúsa. Þetta er gert samtímis því, sem dregið er úr byggingum til sveita eins og frekast er unnt. Bændur geta ekki byggt yfir sig, en það á að hafa nóg rúm fyrir menn í fangahúsum!

Hér sé ég einnig í till. fjvn„ að lagt er til að veita 30 þús. kr. til kirkjubyggingar á Akureyri. Þeir, sem hafa mestan áhuga fyrir að byggja kirkjur, ættu að kosta slíkar framkvæmdir sjálfir. Hinsvegar er mér vel kunnugt um, að Akureyrarbæ ríður meira á spítala og bókasafni heldur en nokkurn tíma á að fá kirkju. Því að ég veit ekki til, að kirkjan gamla á Akureyri hafi verið svo full, nema á einstöku stórhátíðum, að hún hafi ekki rúmað þá, sem þangað vildu fara. Hér er till. um 15 þús. kr. styrk til spítalans á Akureyri, en til bókasafns, sem á að vera til minningar um Matthías Jochumsson, er ekkert áætlað. Þessi styrkur til spítalans er líka of lágur. Ég er á móti till. um styrkinn til kirkjunnar á Akureyri. Ég vil heldur, að sú fjárupphæð, sem henni er ætluð, fari til spítalans og bókasafnsins þar.

Þá höfum við sósíalistar lagt til með brtt. 619,XV, í sambandi við háskólann og fjárveitingu til hans, að liður sé felldur niður í 14. gr. fjárlagafrv., B,III, sem er 20 þús. kr. fjárveiting til viðskiptaháskóla. Hv. þm. er kunnugt, að þessi viðskiptaháskóli er einkennileg stofnun, sem sett er fyrir duttlunga eins hv. þm. Og það er vitanlegt, enda hefir tilboð um það legið fyrir frá háskólaráði, sem sent hefir verið þingmönnum, að Háskóli Íslands gengur út frá því, að svo framarlega sem hann fengi það fé, sem viðskiptaháskólanum er ætlað, 20 þús. kr., að það mætti verja því til að bæta kennslukrafta háskólans, og þá mundi það nægja til þess að auka starf Háskóla Íslands með því að bæta þar við nokkrum greinum, sem nauðsynlegt er að kenna, og gera hann betur úr garði heldur en verið hefir undanfarið. Till. okkar sósíalista er, að þessi liður, 20 þús. kr., gangi ekki til viðskiptaháskóla, en að því fé sé bætt við fjárveitingu til háskólans, sem hækki þá úr 99 þús. upp í 120 þús. kr. Og ég þykist vita, eftir till., sem bárust til hv. þingmanna í byrjun þessa þings, að þetta muni vera í samræmi við það, sem háskólaráðið sjálft álítur fært og álítur heppilegast. En ég skal nú engu spá um afdrif þessarar till. Það hefir nú sýnt sig hér á hæstv. Alþ., meira og minna, og einnig um till. annara hv. þm. en þm. sósíalista, sem bornar hafa verið fram, að þær hafa ekki fundið náð fyrir augum þingmanna, sem virðast vera bundnir undarlegum handjárnum við hv. þm. S.-Þ.

Þá höfum við þm. sósíalista lagt hér framtill. á þskj. 619, um að í 15. gr. fjárlfrv. sé felldur niður styrkur til félags „Vökumanna“, sem þar er gert ráð fyrir, að sé 2 þús. kr., og er það sérstök sparnaðarráðstöfun út af fyrir sig. Það eru svo margir fleiri bitlingar, sem þarf að skera niður, ef út í það væri farið. En hér finnst okkur óviðkunnanlegt, að eitt sérstakt pólitískt félag fái styrk frá ríkinu, ekki sízt þegar ekki er kunnugt, hvaða starf þetta pólitíska félag hefir, og ekki víst, hvort það hefir haldið nokkurn fund; a. m. k. hefir það nú verið vefengt í Tímanum. Við álítum mögulegt fyrir þetta pólitíska félag, eins og önnur slík félög, að komast af án opinbers styrks. og álítum ekki eðlilegt, að þingið veiti slíkan styrk.

Þá vildi ég ennfremur í sambandi við 15. gr. ræða nokkuð till. nr. 39 á þeirri gr. fjárl., sem er styrkur til skálda, rithöfunda, vísindamanna og listamanna, sem er 80 þús. kr. Eins og allir hv. þm. muna, var við 2. umr. fjárl. borin fram till. um það, að þeir rithöfundar, skáld, vísindamenn og listamenn, sem voru í 18. gr., væru þar ekki áfram, en að þessi styrkur, sem ætlaður er til menntamálaráðs til að úthluta meðal þeirra, væri lækkaður úr þeim 80 þús. kr., sem hann nú er i. Ég vildi í sambandi við þetta gera nokkrar aths. um þessa fjárveitingu til menntamálaráðs, ekki vegna þess, að við sósíalistar höfum sérstaklega hugsað okkur að bera fram brtt. viðvíkjandi þessu máli. En af því að ég tók ekki til máls við 2. umr. og greiddi atkv. með þeim till., sem þar komu fram um að halda skáldum og listamönnum í 18. gr., þá vil ég nú fara um það nokkrum orðum.

Í fyrsta lagi vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. ríkisstj., hvort fyrirmælum l. frá 1928 um menntamálaráð hafi nokkurn tíma verið fullnægt, eða a. m. k. á síðari árum, nefnilega því ákvæði, að menntamálaráð eigi að skila reikningum og leggja fram reikninga ráðsmennsku sinnar um það, hvernig það hefir varið þeim styrk, sem það hefir í hendur fengið til úthlutunar. Ég veit, að til Alþ. hafa aldrei borizt slíkar skýrslur eða reikningar. Mér er ekki heldur kunnugt um, að þetta hafi borizt stjórnarráðinu. Og ef ég fer með rangt mál, er ég segi, að þetta hafi ekki þangað komið, skora ég á hæstv. ríkisstj. að leiðrétta það. En meðan það er ekki gert, þá held ég því fram, að a. m. k. síðustu árin hafi menntamálaráð farið bak við þau l., sem það átti að starfa eftir í þessu efni, að gera grein fyrir því, hvernig það hefir varið þeim fjármunum, sem því hafa verið fengnir til yfirráða af Alþ. Ég álít það alveg sérstaka nauðsyn, að í sambandi við umr. um fjárl. komi það fram, þegar verið er að leggja til að hækka stórlega fjárframlög til menntamálaráðs og taka úr höndum Alþ. ákvörðunarréttinn um styrk til skálda, rithöfunda, vísindamanna og listamanna, að þá sé a. m. k. séð fyrir því, að menntamálaráð starfi l. samkv. og að það geri sér ekki leik að því að brjóta l., eða það út frá geðþótta einhvers manns dirfist að setja sig út fyrir öll l. í landinu og fara ekki eftir þeim landsl., sem um starfsemi þess eru sett af hæstv. Alþ. Meðan svo er, þá virðist mér ófært að veita slíkri stofnun frekari réttindi, auk þess sem Alþ. ætti ekki að láta það liðast, að slík stofnun haldi áfram að hafa nein fjárráð. Ber hæstv. Alþ. einnig að taka tillit til þess, að þarna er meira í húfi heldur en aðeins peningarnir frá því opinbera, sem kynni að verða varið meira og minna illa eða lögum andstætt. Það er miklu meira í húfi þarna, vegna þess að þetta er einn af þeim fáu styrkjum fjárl., sem sérstaklega er ætlaður til þess að viðhalda listum, vísindum og skáldskap í þessu landi. Við Íslendingar vitum allir, hvaða kröfur við gerum til þess. að litið sé á okkur sem bókmenntaþjóð. Og með tilliti til þess sérstaklega hefir það verið borið fram hér á Alþ., hvað eftir annað, að nauðsyn sé að veita ýmsum af okkar beztu listamönnum og skáldum styrk frá þinginu, sem viðurkenningu til þeirra og sem styrk til þeirra, til þess að þeir geti haldið áfram sínum starfa og unnið þar fyrir þjóðina. En hinsvegar er stefnt að því með þeirri breyt., sem gerð hefir verið, fyrst af hæstv. fjmrh. og síðan af fjvn., og með því, að sú brtt., sem borin var fram við 2. umr. fjárl., var felld, að svipta Alþ. yfirráðum yfir þessum styrkjum og setja þau í hendur menntamálaráðs. Við vitum allir, hv. þm., hvaða hætta þarna er á ferð, jafnvel þó að fæstir hv. þm. fáist til að segja það hreinskilnislega. Það er vitanlegt, að sú hætta er þarna á ferðum, að það fé, sem menntamálaráð fær til að ráða yfir, sé notað til starfsemi, sem getur orðið svona allt að því mútustarfsemi hér á landi, þannig að það sé meiningin að láta þessi skáld og þessa listamenn því aðeins fá styrki, að skoðanir þeirra finni náð fyrir augum menntamálaráðs, og þá sérstaklega þess mannsins, sem er einvaldur í því að heita má, hv. þm. S.-Þ. Það er þess vegna þarna um það að ræða, hvort hæstv. Alþ. ætlar að afsala dýrmætum réttindum úr sínum höndum og meira eða minna í hendur eins manns.

Ég vil í sambandi við þetta mál lesa upp skjal, sem barst til Alþ. í dag, með leyfi hæstv. forseta. (Forseti: Það hefir verið lesið upp áður í forsetastóli). Ekki nema það, sem framan á kápu þess stendur. Þetta skjal hafa 14 þjóðkunnir menntamenn sent Alþ., og hljóðar það svo: .

„Alþingi virðist stefna meira og meira að því að sleppa úr sínum höndum beinum umráðum yfir fé því, sem það veitir til styrktar hverskonar andlegri starfsemi í landinu, svo að nú mun jafnvel vera í ráði, að það afsali sér í hendur menntamálaráði úthlutun styrktarfjár þess, sem veitt hefir verið rithöfundum, skáldum og öðrum listamönnum á 15. og 18. gr. fjárlaga.

Vér leyfum oss hér með að vekja athygli hv. menntmn. neðri deildar á því, hve varhugavert það er að láta ábyrgðina á svo geysilega víðtækum umráðum og mikilsverðri íhlutun um alla bókmennta- og listastarfsemi meðal þjóðarinnar, sem hér virðist vera stefnt að, hvíla á herðum einnar fámennrar nefndar, án tillits til þess, hvernig hún þá og þá kann að skipast. Þótt hér sé ekki um stórfé að ræða, hefir úthlutun þess jafnan þótt með mestu vandaverkum Alþ. og verið fylgt með sérstakri athygli af þjóðinni, enda eru listir og vísindi með svo fámennri þjóð meira háð opinberum stuðningi en annarstaðar og eiga mestan þátt í að gefa Íslendingum tilverurétt sem sjálfstæðri menningarþjóð. Vér treystum því, að verði breyting gerð frá því skipulagi. sem verið hefir, telji háttvirt menntmn. sér skylt að hlutast til um, að þá verði betur, en ekki lakar en áður séð fyrir því, að sem flest sjónarmið komi til greina við úthlutun þessa styrktarfjár, að sem minnst gæti persónulegs geðþótta, en henni megi ráða sem allra mest þekking, frjálslyndi og réttsýni.

Reykjavík, 30. desember 1939.“ Undir þessa áskorun skrifa svo þessir menn: Sigurður Nordal, Jakob Kristinsson, Friðrik Ásmundsson Brekkan, Jónas Þorbergsson, Sigurður Einarsson, Freysteinn Gunnarsson, Sigurður Thorlacius, Alexander Jóhannesson, Símon Jóh. Ágústsson, Ágúst H. Bjarnason, Páll Ísólfsson, Vilhj. Þ. Gíslason, Aðalbjörg Sigurðardóttir, Guðm Thoroddsen.

Ég vildi aðeins leyfa mér í sambandi við þessar umr. að lesa þetta upp, til þess að hv. þm., sem ekki hefir verið þetta kunnugt eða hafa ekki tekið eftir þessu skjali, verði ljóst, hvernig ýmsir mennta- og listamenn þjóðarinnar líta á það, sem hefir verið að ganga fyrir sig hér á Alþ. í sambandi við 2. umr. fjárl. Og vil ég lýsa því yfir, að ég mun verða fylgjandi hverri þeirri till., sem fram kann að koma, sem nokkuð er til bóta, í sambandi við þennan styrk, sem menntamálaráð á að úthluta, eftir því sem fjárl. nú eru orðin.

Ég álít, að þarna sé um það mikilvægt mál að ræða, að það sé alveg óhjákvæmilegt fyrir Alþ. að taka tillit til þessa skjals. Og ég vil bæta því við, að mér er kunnugt um, að á meðan verið var að safna undirskriftum undir þetta skjal þessara menntamanna hér í Reykjavík, þá var af hálfu formanns Framsfl. beitt persónulegum áhrifum til þess að reyna að fá menn til þess að falla frá því að undirskrifa þetta. Virðist þar hafa komið fram, að hann, hv. þm. S.-Þ., vilji ekki láta ráða, eins og sagt er síðast í þessu skjali, „frjálslyndi og réttsýni“.

Þá höfum við þm. sósíalista lagt til, að það yrði allmikið hækkað, sem á að verja til atvinnubóta. Það, sem nú er ætlað til atvinnubóta á 16. gr. 1, er 500000 kr. Og eins og það nú er orðað í fjárl. og hefir verið að undanförnu, þá fylgir því það skilyrði, að þetta sé veitt gegn tvöföldu framlagi frá bæjar- og sveitarfélögum. Það er sem sé ætlazt til þess og það gert að skilyrði, að bæjar- og sveifarfélög, sem verða atvinnubótaframlagsins aðnjótandi, leggi fram tvöfalt framlag á móti því til atvinnubóta. Ef ríkið leggur fram hálfa milljón kr., þá eiga þessi bæjar- og sveitarfélög að leggja fram 1 millj. kr. á móti. Framlög frá ríkinu og bæjum og sveitarfélögum til samans verða þá 1½ millj. kr. Við sósíalistar leggjum til, að þetta verði hækkað, þannig að framlag ríkissjóðs til atvinnubóta verði 750000 kr., en að bæjar- og sveitarfélög leggi fram, eins og verið hefir, tvöfalt framlag á móti. Ég vil geta þess í sambandi við þetta, að ríkisstj. hefir framkvæmt þetta ákvæði um tvöfalda framlagið á móti ríkissjóðsframlaginu þannig, að ef sérstaklega fátækt sveitarfélag hefir átt í hlut, þá hefir hún ekki gengið eins ríkt eftir þessu framlagi á móti ríkissjóðsframlaginu. En þó mun það yfirleitt hafa verið svo, að a. m. k. upp undir tvöfalt framlag hefir komið fram frá viðkomandi bæjar- og sveitarfélögum á móti ríkissjóðsframlaginu. Ef þess vegna till. okkar sósíalista yrði samþ. um 750000 kr. framlag úr ríkissjóði til atvinnubóta, og þetta skilyrði látið haldast, þá þýðir það það, að framlög alls frá ríki og bæjar- og sveitarfélögum mundi verða 2¼ millj. kr.

Nú vil ég geta þess í sambandi við atvinnubæturnar, vegna þess að það hefir komizt svo slæmt orð á orðið „atvinnubætur“, að fjvn. leggur til, að breytt verði því heiti, sem þetta hefir. Þá vil ég geta þess, að það er engin ástæða til þess og hefir aldrei verið til þess ætlazt af hálfu Alþ., að þessu fé, sem veitt er til atvinnubóta, megi ekki verja til skynsamlegra og arðbærra framkvæmda, sem séu beinlínis í þágu framleiðslunnar. Það er alger misskilningur, að fé, sem veitt er til atvinnubóta, eigi eingöngu að verja til vegagerða og annars slíks, þó að mikill hluti þess fari jafnan til þess. Við sósíalistar leggjum alveg sérstaka áherzlu á, að atvinnubótafé sé varið sem hagnýtast og til þess að leggja með því grundvöll að sem mestum atvinnubótum í framtíðinni. Það er þess vegna ekkert í þessari gr. um atvinnubæturnar og framlagið til þeirra, sem hindrar ríkisstj. í því að láta verja þessu fé sem allra skynsamlegast, þannig að það hjálpi sem allra bezt til þess að auka almenna framleiðslu í landinu, og á það vil ég leggja alveg sérstaka áherzlu. Við sósíalistar höfum á undanförnum þingum borið fram till. í þessa sömu átt og álíka háar. Ég býst við, að þessar till. ættu, svona að öllu eðlilegu, að eiga von á góðum undirtektum frá núverandi ríkisstj., þar sem sá maður, sem nú er fjmrh., hefir á undanförnum þingum greitt atkv. með þessum till. okkar um hækkun á atvinnubótafénu úr 500000 kr. og upp í 700000 eða 750000 kr. Og ég vil vonast til þess, að þessi hæstv. fjmrh. reynist nú ekki lakari, þegar hann er kominn í ráðherrasessinn, heldur en hann var, meðan hann var bara þm. Sjálfstfl. hér á Alþ., og ekkert meira. Ég ætla að leyfa mér að álíta það sem sérstaka prófun á því, hversu mjög þessi hæstv. ráðh., og þar með Sjálfstfl. sem slíkur, sem sett hefir hann í fjármálaráðherrastólinn, standa við þau loforð og þær atkvgr. og þær skoðanir, sem þeir hafa látið í ljós, meðan þeir voru stjórnarandstæðingar. Ég vil skoða það sem nokkurskonar eldrann fyrir hæstv. fjmrh., sem sýnir, hvort hann þorir nú að framfylgja því sama, nú þegar hann er orðinn fjmrh., sem hann fylgdi áður sem þm. aðeins. Hinsvegar býst ég við, að það fari svo með þennan hv. þm. Sjálfstfl., sem er núv. fjmrh. hans, eins og farið hefir stundum með suma hv. þm. Framsfl. eftir að þeir urðu ráðherrar. Þeim hætti til að gleyma kannske nokkuð mörgu af því, sem þeir lofuðu áður en þeir urðu ráðherrar.

Fjvn. hefir lagt til í sambandi við þetta framlag til atvinnubóta, að þar sé nú breytt um þannig, að í staðinn fyrir, að í fjárlfrv. er gert ráð fyrir 500000 kr. framlagi til atvinnubóta með þessu skilyrði um tvöfalt framlag frá viðkomandi bæjar- og sveitarfélögum, þá komi: Til framleiðslubóta og atvinnuaukningar 500000 kr. þar af kr. 100000 til Suðurlandsbrautar, til atvinnuaukningar fyrir Hafnfirðinga og Reykvíkinga. — Hér verða því eftir 400000 kr. til atvinnubóta, en ekkert skilyrði sett fyrir framlagi á móti frá viðkomandi bæjar- og sveitarfélögum. Það þýðir, að það er á valdi bæjar- og sveitarfélaga og þeirrar n., sem með það hefir að gera, hvernig fer um framlög frá bæjar- og sveitarfélögum til atvinnubóta. Það er því víst, ef Alþ. samþ. þessa brtt. fjvn., þá sleppir það úr sínum höndum réttinum til þess að skuldbinda bæjar- og sveitarfélög til að leggja tvöfalt framlag á móti framlagi ríkissjóðs í þessu skyni. Ef Alþ. þess vegna samþ. þessa brtt. fjvn., þá er beinlínis teflt í hættu í þessu efni, þannig að það getur farið svo, að atvinnubótaféð verði ekki meira heldur en þessar 400000 kr., eða þá kannske eitthvað ofurlítið meira en þetta. Það þýðir m. ö. o., að atvinnubótaféð á alveg stórkostlega að skerast niður, eða það a. m. k. að verða háð vilja stjórna bæjar- og sveitarfélaga og þessarar n., sem á að fjalla um atvinnubæturnar, hvort það verður meira heldur en þessar 400000 kr.

Alþ. gerir þessar ráðstafanir til þess að minnka stórkostlega atvinnubótaféð. Djúpið á milli till. okkar sósíalista um aukningu á atvinnubótafénu og um að halda skyldunni til tvöfalds framlags frá viðkomandi bæjar- og sveitarfélögum annarsvegar og hinsvegar till. fjvn.,má því segja, að sé nokkuð meira en 1¾ millj. kr., eða a. m. k. aldrei minna en það, ef miðað er við, að hvorum till. fyrir sig væri framfylgt til þess ýtrasta eins og þær liggja fyrir. Ég álít þess vegna alveg sérstaklega þýðingarmikið, að samþ. verði þær till., sem við leggjum hér fram, eða a. m. k. felld till. fjvn., sem hún kemur fram með um þetta efni, en haldið í það ákvæði, sem fyrir var í fjárlagafrv. um atvinnubótaféð.

Ég þarf ekki að eyða orðum um það, hversu mikil nauðsyn er að bæta úr atvinnuleysinu. Það blandast engum hv. þm. hugur um. Hver einasti hv. þm. veit, hvar skórinn kreppir að í þessu efni. Spursmálið er því þarna um viljann á því að framkvæma það, sem er þjóðarvilji í þessu efni og hv. þm. vita, að er rétt og nauðsynlegt.

Þá er í brtt. fjvn. lagt til að skera niður tillagið til verkfærakaupasjóðs úr 60 þús. kr. og niður í 25 þús. kr., eða um 35 þús. kr., og einnig framlagið til byggingar- og landnámssjóðs um 75 þús., eða úr 200 þús. kr. niður í 125 þús. kr. Báðum þessum brtt. erum við á móti. Það virðist líka vera alveg sérstaklega undarlegt, á sama tíma sem hér er sífellt talað um það á Alþ. og í blöðum stjórnarfl., að það þurfi að flytja fólk úr bæjunum og upp til sveitanna, að þá skuli einmitt á því sama þingi, sem ætlar að gera alveg sérstakar ráðstafanir til að skipa sérstakar n. til þess að sjá um flutning fólks úr bæjum upp í sveitirnar, verið að skera niður styrkinn til þess að fólk geti lifað í sveitunum, ef gert er annars ráð fyrir, að þetta fólk eigi að vera í húsum. Ef menn flytja úr bæjum til sveita, hlýtur hver maður að sjá, sem um það vill hugsa, að þetta fólk vantar, þegar í sveitina kemur, fyrst og fremst möguleika til að byggja yfir sig, til þess að þurfa ekki að liggja úti, og einnig þá að fá verkfæri, sem til þess þarf að lifa í sveit. Hvað er það, sem hæstv. Alþ. leggur til fyrir þetta fólk? Það, að skorinn sé niður möguleikinn til þess, að þetta fólk geti byggt yfir sig í sveit og að menn geti fengið verkfæri með sömu kjörum og undanfarin ár. Þetta nær vitanlega ekki nokkurri átt og er í andstöðu við heilbrigða skynsemi, að tala eins og ýmsir hv. þm. hafa gert um þessi mál, að koma með till. um, að fólk, sem er atvinnulaust um hábjargræðistímann, ætti að fara í sveit og vinna að framleiðslu, en um leið koma fram með till., og það frá fjvn., um lækkun á styrkjum til þess að hægt sé að haldast við og vinna í sveitunum. Þó vitum við það, hversu haldið hefir verið uppi barlómi fyrir bændur og sveitafólk og talað um, hvað það væri nauðsynlegt að styrkja sveitirnar. Og vegna þess hafa þessir styrkir upphaflega verið ákveðnir til hjálpar sveitunum.

Ég vil bara taka það fram í þessu sambandi, að það er ekki um þær fjárupphæðir að gera, að þær geti spilað neina rullu. Ef það á að fara að spara, því ekki að spara við konunginn? Því ekki að spara við hálaunamennina hér í Reykjavík: Grimsby-lýðinn, sem Framsókn þóttist einu sinni ætla að ganga á milli bols og höfuðs á. Verkalýðnum er svarað því, að hann geti farið upp í sveit og bitið þar gras. Þá á að minnka við sveitafólkið. Ég get skilið, að Alþingi þurfi að bæta við ríkislögregluna og þurfi að sjá um, að dómsmrh. geti sent hana hvert sem er. Ég get þessa í sambandi við niðurskurðinn, að það er ekki nóg, sem ríkið sker niður. Nefndafarganið er svo, að það þarf að fá leyfi nefndar til hvers sem er. Ef maður ætlar að fá leyfi til þess að flytja eitthvað inn, þarf að sækja til einokunarnefndar um það og til annarar um að flytja út. Ofan á það bætist, að þeim viðurkenndu samböndum og bæjarfélögum, sem eitthvað vilja gera til þess að bæta ástandið, er neitað um að bæta möguleika sína. Þegar bæjarstjórn Siglufjarðar kemur sér saman um að byggja nýja verksmiðju, útvegar lán til þess erlendis og þarf ekkert annað en leyfi atvmrh., er öllum hv. þm. kunnugt um, hvernig þetta var eyðilagt. Þegar einstakir menn eða sveitarfélög geta komið upp framleiðslutækjum án þess að ríkið þurfi að leggja fram lánsfé, er bannað að gera nokkuð. Það er auðséð, að með slíku móti, þegar hverjum einstaklingi á Íslandi er bannað að gera nokkuð, og þegar ríkið sker niður þá möguleika, sem bæjarfélögin hafa, þá er það auðséð, að slík stjórn þurfi að veita fé til lögreglu, til konungs og til meira sveitarframfæris.

Við höfum hér, þm. Sósíalistafl., lagt fram till., sem snerta fjárlögin mjög lítið og eru um það, að þegar sé athugað að lækka laun hálaunamanna. Ég býst við, að öll blöð stjórnarflokkanna séu sammála um þetta, a. m. k. skrifa þau öll um það, og allir þm. stjórnarflokkanna virðast í orði kveðnu vera þessu samþykkir, en þeir láta venjulega sitja við orðin tóm. Það kemur aldrei neitt fram, sem sýni, að það eigi að hreyfa við þessu. Einu sinni var það, að ekki þótti annað sýnt fyrir kosningar en að fara að skipa launamálanefnd, og lagði hún fram till. sínar eftir kosningarnar 1934. En stjórnin fann ekki hvöt hjá sér til þess að fara eftir till. þessarar n., sem voru um það, að skera niður bitlingana um 700 þús. kr. Þær voru kæfðar og hafa aldrei sézt síðan. Ég ætla að minna á þessar 700 þús. kr., ef þm. skyldi virðast oftar en við kosningar, að eitthvað mætti skera niður.

Ég held því hér fram, að það, sem ríkið og þær stofnanir, sem ríkið beint og óbeint stjórnar, borgi árlega af launum, muni nema 10 millj. króna. Öll laun, sem greidd eru á Íslandi, munu nema um 40 millj. króna; að vísu eru hagskýrslur svo ónákvæmar, að ekki er hægt að sjá þetta með fullri vissu. Ríkið ræður þá yfir ¼ af öllum þeim launum, sem greidd eru á landinu. Ég þarf ekki að fara út í, hve hættulegt það er, þegar ríkið ræður yfir svona miklum hluta af launagreiðslunum, þegar ¼ launþeganna á allt sitt undir ríkisvaldinu, og þegar ofan á það bætist, að pólitískar skoðanir manna hér á landi eru eins og opin bók, þannig að í sambandi við fátækraframfærið hér í Reykjavík hefir verið gefin út bók um það, hvernig styrkþegarnir kjósi og hve mikill hluti þeirra kjósi Sjálfstfl. Þá geta menn skilið, hvaða þýðingu það hefir að geta notað eða misnotað þær 10 millj. króna, sem veittar eru í laun. Nú veit ég, að fjvn. vinnur að því að rannsaka, hve mikið það sé, sem greitt er í laun á Íslandi. Ég hefi heyrt, að ríkið greiði, skv. upplýsingum, sem n. hefir fengið, yfir 14 millj. króna af því kaupi, sem greitt er á Íslandi. Ég vildi leyfa mér að mega óska eftir því, að fjvn. gefi upplýsingar um það, hve mikið ríkið greiði af launum, og mælast til þess, að það upplýsist á einn eða annan hátt, hverjum þessi laun eru greidd, og að þingmenn og þjóðin hafi aðgang að nákvæmu yfirliti yfir það. Það er fyrst þegar slík skýrsla liggur fyrir, sem mögulegt er að gera ýtarlegar till. um breyt. á fjárl. viðvíkjandi þessum lið.

Ég vil svo að svo komnu máli láta þetta nægja fyrir þeim till., sem við flytjum, þm. Sósíalistafl., um leið og við setjum fram álit okkar á þeim till., sem fjvn. lagði fram.