28.12.1939
Sameinað þing: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

1. mál, fjárlög 1940

*Bjarni Snæbjörnsson:

Það er ekki af því, að ég hafi neina brtt. að bera fram, að ég tek til máls, heldur út af ummælum hæstv. viðskmrh. viðvíkjandi till. fjvn. í sambandi við hafnargerð í Hafnarfirði. Mér fannst kenna þar ókunnugleika hæstv. ráðh., bæði á því, til hvers væri ætlazt við þessa hafnargerð, og einnig því, hvernig staðhættir væru í Hafnarfirði til annara framkvæmda.

Eins og allir hv. alþm. vita, hefir Hafnarfjörður þá sérstöðu, að hann verður eingöngu að byggja á fiskframleiðslu, sem þar er. Hann hefir enga verzlun fram yfir það, sem er í bænum sjálfum. Hann hefir ekkert land til ræktunar að neinu leyti. Að vísu hefir hann fengið fyrir nokkrum árum heimild til að kaupa Krísuvíkurland, og var það ætlað til ræktunar, en svo var um hnútana búið af löggjafanum, að það er ekki ennþá komið neitt samkomulag um það, hvað hver fær í sinn hlut, og ekki líkur til, að það verði á næstu tímum. Þess vegna er það svo, að það, sem er lífsspursmál fyrir bæinn, er það, að hann hafi trygga og örugga höfn. Hæstv. viðskmrh. efaðist ekki heldur um það, að þörfin væri brýn þarna, en vildi ekki byrja strax á þessu verki vegna þess, að til þess mundi þurfa svo mikið útlent efni, og það væri ekki rétt að ráðast í slíkar framkvæmdir sem þessa meðan stríðið væri.

Við þessu er því að svara, að það, sem Hafnarfjörður ætlar sér, er að byggja brimbrjót eða hafnargarð í norðanverðum firðinum, til þess að verjast því brimi, sem inn fjörðinn kemur í vestanroki og er mjög títt á vertíðinni, þegar mest er um skipin og þörf á að flýta afgreiðslu þeirra sem unnt er.

Það hefir verið gerð, af hr. Finnboga Rúti Þorvaldssyni hafnarverkfræðingi, áætlun um, hvað slíkur garður mundi kosta, og gerir hann ráð fyrir, að slíkur garður kostaði 650 þús. kr. fullgerður, og er búizt við, að aðkeypt efni og verkfæri ýmiskonar muni verða um 140 þús. kr. M. ö. o., að 140 þús. kr. fara í erlent efni, en 500 þús. kr. færu eingöngu til atvinnu fyrir bæjarbúa. Þar við má bæta því, að bærinn þarf ætíð á hverju ári að verja miklu fé til atvinnubóta innan bæjarins, og hafa það oft verið 80–90 þús. kr., sem veittar hafa verið í því skyni. Nú hagar því þannig til, að þær atvinnubætur sem helzt hefir verið um að gera innanbæjar, hafa verið í því fólgnar að laga götur bæjarins, sérstaklega Strandgötuna, og er það viðhald meira en fyrir Hafnarfjörð einan, því um hana fara allir þeir flutningar, sem á landi fara til Reykjanesskagans. En eins og nú horfir við, álítum við Hafnfirðingar ekki leggjandi í slíkt, þar sem ennþá meira útlit er fyrir þörf á afvinnubótavinnu en nokkurn tíma áður, og einmitt vegna þess, að brimið er að brjóta niður malarkambinn, búumst við ekki við að geta komið þessu í framkvæmd, og þá er ekki nema um þetta eina að ræða fyrir okkur, bæði af því, hve mikil nauðsyn það er fyrir okkur að koma þessu í verk, og eins af hinu, að ekkert verk er heppilegra til þess að vinna á þessum stríðstíma heldur en að leggja út í þetta mannvirki.

Hæstv. viðskmrh. minntist á það, og það réttilega, að það mætti búast við því í kaupstöðunum, sérstaklega Reykjavík og nágrenni, — og þar efast ég ekki um, að hann hefir meint Hafnarfjörð —, að þar væri yfirvofandi atvinnuleysi, og honum fannst ekki nema réttmætt, að það væri meira hugsað fyrir því heldur en var gert nú í fjárl. og till. fjvn. En það er einmitt þetta, sem vakir fyrir okkur Hafnfirðingum, að í slíku árferði eins og þessu og á þeim tímum, sem búast má við, að saltfisksveiðar leggist niður á togurunum, verða bæjarstjórnin og ríkisstj. að leggja fram meira eða minna fé til atvinnubóta einmitt á slíkum stöðum.

Í hafnarlögum Hafnarfjarðar er það ákveðið, að ef Hafnarfjarðarbær leggur í slíkar framkvæmdir sem þessar, er ríkissjóði skylt að leggja fram 1/3 hluta fjárins á móti 2/3 frá Hafnarfjarðarbæ eða hafnarsjóði, og hefðum við raunverulega getað haft það þannig, ef við hefðum samþ. það í bæjarstj. að byrja á verkinu, að koma þá til ríkissjóðs og krefja hann um framlag á móti, en okkur fannst það í alla staði réttlátara að ákveða ekki um það fyrr en víst væri um þann styrk, sem Alþingi vildi veita til þessarar framkvæmdar, ef úr yrði, og þess vegna er það, að fjvn. hefir tekið þetta upp í fjárl. í 22. gr.

Loks vil ég geta þess í sambandi við þetta, að þó svo að í sambandi við áætlun verkfræðingsins sé gert ráð fyrir þessu fjárframlagi fyrir útlent efni og til áhaldakaupa, er það þannig að í fyrstu er það harla lítið, sem þarf til áhaldakaupa, heldur eingöngu til sementskaupa, og er það til þess að búa til pláss við land, til að hægt sé að flytja garðinn fram. Þegar þessu er lokið, er hafnargarðurinn eingöngu vinna, þar til honum er lokið og byrjað er að gera fyrir byggingu hafnarinnar, sem náttúrlega verður að töluverðu leyti líka útlent efni, en það er ætlunin að gera þetta smátt og smátt, dreifa því yfir á fleiri ár, til þess að hafa þarna atvinnu fyrir bæjarbúa og dreifa þeim atvinnuvandræðum, sem hljóta að koma í sambandi við stríðið. Ég býst við, að þegar hæstv. viðskmrh. lítur á þetta og hefir fengið nægilegar upplýsingar — og er ég fús til, ef eitthvað vantar í þessar upplýsingar, að gefa honum þær —, þá muni hann sjá, að Hafnarfjörður hefir algera sérstöðu í þessu etni og þetta er hin eina réttlætanlega atvinnubótavinna, sem hægt er að framkvæma í bænum á þeim tíma, sem nú er framundan.

Ég ætla svo ekki að orðlengja þetta meira, en ég vonast til þess, að allir hv. alþm. taki þetta til athugunar og verði því meðmæltir, að þessi grein fái að standa óhögguð í till. fjvn.