28.12.1939
Sameinað þing: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

1. mál, fjárlög 1940

Jón Pálmason:

Hv. þm. munu hafa veitt því athygli, að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, mest vegna þess, að ég vildi gera grein fyrir afstöðu minni til þeirrar afgreiðslu fjvn., sem hér er gerð. Ég þarf ekki að svara því, sem hv. frsm. n. hefir hér sagt. Hann talaði af sanngirni og lýsti afstöðu n. til þeirra till., sem hún var sammála um, eins og rétt var. Það er í sambandi við till. n., sem ég vildi segja hér nokkur orð í viðbót við það, sem hann sagði. Þær till., sem n. flytur, eru aðallega þrennskonar. Í fyrsta lagi till., sem eru sprottnar af dýrtíðinni og gengisfallinu síðastl. vor. Þetta er stærsti flokkurinn. Það þýðir ekkert annað fyrir Alþ., og þá fyrst og fremst þessa n., en að horfast í augu við sannleikann, þar sem hann blasir við. Annar flokkur í till. n. er næststærstur. Þetta eru hækkunartill., sem eru sprottnar af samningum og loforðum fyrrv. stjórnar og venjum, sem skapazt hafa hér í þinginu. Sumar till. eru sprottnar af ákvörðunum, sem ríkisstj. hefir gert, eða af ráðstöfunum, sem hún er að gera. Það hefir valdið nokkrum misskilningi hjá einstaka þm. og hjá sumum mönnum utan þings, hvernig till. n. er hagað, sérstaklega hvað snertir fé til byggingar hafna og lendingarbóta. Hluturinn er sá, eins og hv. frsm. gat um, að allar þessar till. eru bundnar við verk, sem annaðhvort er búið að gera og skuld er fyrir, eða þá verk, sem eru í framkvæmd og þurfa fjárframlag. Mest af þessum verkum eru hafnar- og lendingarbætur, ýmist fullgerðar eða í byggingu. og má gera ráð fyrir, að þessi liður verði áfram í okkar fjárl. Það eru sérstaklega 2 hafnar- og lendingarbætur, sem eru ný fyrirtæki. Það er í Þorlákshöfn og Keflavík. N. er sammála um, að nauðsynlegt sé að gera lendingarbætur á þessum stöðum. Í þessum flokki eru till. um framlag til Akureyrarkirkju o. s. frv. Þetta er flest lofað og bundið að nokkru leyti af stj. og nokkru leyti af Alþ. Slíkar till. eru ekkert annað en afleiðingar af ráðstöfunum, sem er verið að gera eða hafa verið gerðar.

Þá kemur 3. flokkur till. n. Þetta eru beinar hækkunartill., og er aðallega um að ræða 290 þús. kr. hækkun til vegaframlaga. Lækkun á þessari sömu gr., þ. e. a. s. 13. gr., er 117 þús. kr. Þannig er hækkunin hér í raun og veru 173 þús. kr., og þetta eru hinar raunverulegu hækkunartill. n. Ég verð að segja, að eftir þá meðferð, sem ýmsar till. n. í sambandi við fjármálin hafa fengið í þinginu, og eftir ástandinu, sem nú er, þá held ég, að hæpið sé að telja það athugavert, þó að þessar till. komi fram, þegar þess er gætt, að í þeim felst heimild fyrir ríkisstj. til að draga 20% úr öllum ólögbundnum framlögum, ef tekjur lækka verulega. Það er ekki vegna þessara vegatill., sem ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, heldur vegna ýmissa smátill., sem n. leggur til, og þó aðallega vegna þess, að fjvn. hefir látið undan siga þeim straumum, sem hafa komið fram á þinginu gegn allri sparnaðarviðleitni. Það má geta þess, að eins og hv. þm. muna, var tilgangurinn með frestun þingsins í vor, eftir að samið hafði verið um myndun þjóðstjórnar, að sá frestur yrði til þess notaður að undirbúa ýmsar breyt., sem gera þyrfti á starfsemi ríkisins, og færa niður gjöldin til mikilla muna með skipulagsbreytingum og niðurfellingu ónauðsynlegra stofnana. Því miður hefir reynslan orðið sú, að þessi undirbúningur hefir ekki farið fram og við stóðum í sömu sporum og í vor, þegar þingið kom saman nú. Það er augljóst, að eins og ástatt var í byrjun þessa þings, vantaði þann raunverulega undirbúning til þess að færa saman ríkisreksturinn og fylgja þeirri venju, sem hér hefir skapazt á þessu sviði. Það er augljóst mál, að eftir því sem gjöld okkar hækka, eftir því þarf að binda fleira í lög, og þess meiri verða erfiðleikarnir. N. hefir rekið sig á í viðleitni sinni til að færa niður gjöldin, að þau eru ýmist loforð, lagaákvæði eða samningar, og sumar þessar greiðslur ná langt fram í tímann. Þær tilraunir. sem fjvn. hefir gert í brtt. til þess að breyta loforðum, sem gilt hafa í þessu sambandi, hafa fengið þá meðferð og viðtökur hjá hv. þm., að ekki er fært fyrir n. að halda lengra á þeirri braut, þar sem ekkert útlit er fyrir, að þær brtt. nái samþykki. Nú er ljóst, að ekki er hægt að færa niður í stórum stíl gjöld ríkisins, án þess að það komi út yfir þær stéttir, sem taka laun hjá ríkinu. Sú viðleitni, sem kom fram í till. n. hvað snerti vinnutíma starfsmanna, aukavinnukaup og allskonar aukagreiðslur, var spor í rétta átt. Það hefir sýnt sig, að þingið hefir ekki tekið þetta mál þeim tökum, sem vera þarf. Ég skal geta þess að því er snertir gjöld í hlutfalli við dýrtíðina, að það hefir verið gengið inn á, að gjöld við sjúkrahús hækkuðu í samræmi við dýrtíðina. Ég er alls ekki ánægður með afgreiðslu n. á þessu máli. Ég tel, að breyta þurfi fullkomlega fyrirkomulagi á yfirstjórn þessara fyrirtækja. Ég skal geta þess, að n. skrifaði ríkisstj. og skoraði á hana að segja upp samningum, sem gerðir hafa verið hér í bænum af hálfu stjórnarn. ríkisspítalanna. Mig langar til að fá upplýsingar um, hvort stjórnin er búin að segja upp þessum samningum. En þar sem hæstv. félmrh. sést hér ekki, þá verð ég að leita þeirra upplýsinga á annan veg.

Viðvíkjandi skólunum er það að segja, að menn hafa tekið eftir því, að fjvn. hefir ekki gert till. um að hækka útgjöld skólanna, í sambandi við það, sem ætla má að verði, miðað við dýrtíðina. Hér er um að ræða mjög stóra upphæð, sem myndi sparast, ef skólatíminn væri styttur, og nefndin ætlast til þess. Mun koma til kasta hæstv. ríkisstj. að skera úr um það efni.

Þá ætla ég næst að tala um heimildartill., og ég vil taka það fram, að ég er á móti ýmsum þessum till., sérstaklega 3. Í fyrsta lagi er ég mótfallinn því, að ríkið ábyrgist fyrir Búnaðarfél. Ísl. 25 þús. kr. til að kaupa og starfrækja rafmagnsverkstæði. Ég tel vafasamt að stofna til slíkra fyrirtækja og erfitt að fá mann, sem gæti veitt því forstöðu á viðunandi hátt. Í öðru lagi er ég á móti till., sem fer fram á, að 45 þús. kr. verði veittar til þess að gera við þjóðleikhúsið og færa þangað forngripasafnið. Í þriðja lagi er ég á móti því að heimila stjórn síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði að kaupa síldarbræðslu á Húsavík, enda sést, þegar þessi fyrirtæki trénast upp, að þau lenda oftast á ríkinu.

Ég vil ekki grípa fram fyrir hendurnar á hv. frsm. fjvn. að því er snertir till. um lán til að reisa síldarbræðsluverksmiðju á Raufarhöfn. Ég ætla aðeins að mótmæla þeirri yfirlýsingu frá hv. þm. Ísaf., að þessi till. sé ákveðin stefnubreyting fjvn. Þetta er fullkominn misskilningur. N. er ekki að neinu leyti að breyta stefnu sinni. Á skólunum er fjöldi af ungum mönnum og full þörf á því, að þeir hafi atvinnu yfir sumarið, til að geta goldið sína skólagöngu. Verkamenn eru að vísu ekki margir atvinnulausir, en samt hefir n. tekið tillit til atvinnuleysis verkamanna.

Þá skal ég víkja að því, hvernig tekjuáætlunin er á fjárl. og geta þess, að ég er mjög ósamþykkur sumum till., sem n. hefir gert á þessu sviði. Í frv. eins og það er lagt fyrir voru tekjurnar áætlaðar 14,3 millj. kr., en eftir þeim upplýsingum, sem við fengum um tekjurnar í byrjun þings, var þessi áætlun 10,8 millj. kr. Að fengnum þessum upplýsingum er því ekki óeðlilegt, þó að n. reyndi á ýmsa vegu að færa niður gjöldin. Ég og hv. 2. þm. Rang. fórum í gegnum þessa tekjuáætlun í samráði við þá menn, sem þar koma helzt til greina sem stjórnendur stofnana og starfsgreina ríkisins. Það varð að samkomulagi, að áætlunin yrði 12,6 millj. kr., en nú hefir n., í samráði við hæstv. fjmrh., fært hana upp í 14,7. Ég tel, að sú áætlun sé mjög óvarlega gerð, þar sem við verðum að minnka mjög viðskipti okkar vegna styrjaldarinnar. Í tekjur samkv. 3. gr. fjárl. er gert ráð fyrir meira fé en nokkur trygging er fyrir, að muni fást, og er ég einnig ósamþykkur sumu í þeirri áætlun. Nú horfir ekki svo vel, að við getum haft nokkra ákveðna von, hvað þá vissu um, að óhætt sé að áætla, að á þessum hlutum verði breyt. til batnaðar.

Ég skal ekki tefja tímann með lengri ræðu að sinni, en ég vænti, að hv. þm. hafi séð af því, sem ég hefi þegar sagt, að það er ekki að neinu leyti undarlegt, þótt ég hafi ekki getað fallizt á þá afgreiðslu, sem hér blasir við, og gefst mér e. t. v. tækifæri til þess síðar að gera nánari grein fyrir sumum þeim atriðum, sem ég hefi hér aðeins drepið lauslega á. Reynslan mun sýna, að afgreiðsla þessara fjárlaga stenzt ekki vel, frekar en verið hefir, og þó eru til viðbótar horfur á allverulegum gjöldum samkv. þeim lögum, sem út lítur fyrir, að nái fram að ganga.