28.12.1939
Sameinað þing: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)
1. mál, fjárlög 1940
*Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti! Ég mun brjóta þá venjulegu reglu, sem hér hefir verið höfð við umr. fjárl. Það mun vera venjulegt, að till. manna séu um hækkun á fjárl. og að þær séu aðallega miðaðar við kjördæmi þm.; hvorugt þetta kemur fram í mínum till. Ég á hér nokkrar brtt., þar af eru tvær um lækkun, og vil ég leyfa mér að minnast á þær fyrst. Ég hefi borið hér fram brtt. við 11. gr. fjárl., og er hún um tollgæzlu. Þar er eins og allir hv. þm. vita, að tollgæzla hér á landi á síðari tímum hefir verið miðuð við miklar siglingar til landsins. Nú er það vitað, að siglingar til landsins munu minnka mikið; þess vegna er ekki mikil þörf á tollgæzlu utan Reykjavíkur, og mun óhætt að fullyrða það, að þeir, sem sáu fyrir tollgæzlu áður hér á landi (bæjarfógetar og hreppstjórar), munu hafa rækt starf sitt sómasamlega. Ég vil þess vegna, að á þessum tímum, þegar verið er að skera niður útgjöld, sem þó gætu verið og eru að mörgu leyti nauðsynleg, sé ekki verið að halda uppi útgjöldum, sem ekki eru nauðsyn. Þess vegna hefi ég lagt til, að kostnaður við tollgæzlu utan Reykjavíkur verði færður niður um 40 þús. kr., með tilliti til þess, að tollgæzlan verði nú, meðan það ástand helzt, sem nú er, falin, eins og áður var, bæjarfógetum og hreppstjórum. Ég hefi ekki fleiri orð um þetta, en vænti þess, að hæstv. Alþ., sem er að skera niður ýmis mjög nauðsynleg útgjöld, muni fallast á það, að fella niður þau útgjöld, sem sýnilega eru óþörf, þó ekki hafi verið tekið eftir því.
Önnur till. um lækkun á útgjöldum er á sama þskj. (619). Hún er um svokallaða skömmtunarnefnd. Það er kunnugt, að þegar stríðið hófst milli Þjóðverja og Bandamanna, þá var óttazt um það, að vöruskortur yrði í landinu, og einnig að einstakir menn, sem til þess hefðu efni; myndu sölsa til sín þær litlu vörubirgðir, sem voru í landinu, og á þann hátt í skjóli síns efnahags taka brauðið frá munni annara landsins barna. Þessi ráðstöfun var sjálfsögð og réttlát, en nú er það í ljós komið, að enginn vöruskortur er í landinu, vörur eru að sönnu dýrar, en enginn skortur á þeim. Þess vegna eru þessar skömmtunarneindir ekkert annað en afleiðing af þeim ótta, sem var um það, að vöruskortur yrði í landinu, og að efnamenn sölsuðu undir sig þær vörubirgðir, sem til væru. Ég held, að það sæmi illa, að af sama þinginu, sem dregur úr framlagi til nauðsynlegra framkvæmda, skuli vera haldið uppi líkum útgjöldum eins og þessum. — Þetta eru mínar till. til lækkunar á fjárl. Það er ekki mikið undir 100 þús. kr.
Till. mínar til hækkunar eru miklu lægri. Ég vil leyfa mér að minnast á þær í þeirri röð, sem þær eru á þskj. Ég hefi farið fram á það með hv. þm. N.-Ísf., að gerð verði aths. við liðinn um fjárveitingu til unglingaskóla á þann hátt, að af 20 þús. kr., sem þar er heimilað, gangi 15 þús. kr. til Reykjanesskóla. Ég vil þá gera grein fyrir, á hverju þessi till. byggist; hún byggist á því, að ekki er hægt að leggja neitt að ráði í byggingar meðan ófriðurinn stendur. Nú er svo ástatt með flesta unglingaskóla, að þeir hafa fengið sæmileg húsakynni, en tveir skólar eru þar þó undanskildir, Reykjanesskólinn og skólinn í Reykjahlíð í Skagaf. Svo stendur á með Reykjanesskólann, að það hefir verið ákveðið, að skólinn fái rétt til þess að nema rekavið, og hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, að viðurinn verði unninn í sjálfboðaliðsvinnu. Á þennan hátt hefir stjórn skólans hugsað sér að koma upp nokkurri viðbyggingu við skólann, án mikils framlags frá ríkissjóði. Samkv. þessu ástandi litum við svo á, hv. þm. N.-Ísf. og ég, að það muni vera heppilegra, að þessu fé verði varið til skólans á Reykjanesi heldur en að það sé höggvið niður og látið ganga til smávægilegra endurbóta á öðrum skólum, sem kosta innflutning á erlendu efni.
Hin till., sem snertir óbeinlínis þennan skóla, er 2 þús. kr. framlag til að fullgera bryggju við Reykjanes. Ég hefi áður talað um það hér á þinginu, að til Reykjaness er geysimikil umferð, þar er skóli bæði fyrir börn og unglinga, og eru þangað því tíðar heimsóknir. Það er orðinn daglegur viðkomustaður flóabátsins, sem gengur um Ísafjarðárdjúp, og er það mjög bagalegt að geta ekki lent við land, því þangað þarf að senda mikinn flutning. Það er líka mjög hættulegt, þegar börn og unglingar eru að koma þangað, að þurfa að flytja þetta fólk á smákænum til lands. Mikinn dugnað hafa sveitamenn lagt fram til að koma upp byggingunni. Alþingi hefir veitt tvisvar sinnum, að mig minnir, 1 þús. kr. til þessarar bryggjugerðar, og var ætlunin, að henni yrði lokið á þessu ári. Nú var ég á þessum stað síðastl. haust, og þegar ég kom þangað, lá flóabáturinn við landfestar við þessa bryggju, og verður að játa, að það er mikil lendingarbót fyrir ekki meira fé en ríkið hefir lagt til. Þegar ég skyldi fara þaðan, kom flóabáturinn þangað, en hann þorði ekki að leggjast að bryggjunni, því þar er ekki nógu traust til þess að liggja við landfestar, ef veður er illt. Báturinn lá þess vegna langt fram á firði. En ef kominn væri haus á bryggjuna, þá myndi flóabáturinn liggja þar í hvaða veðri sem væri við landfestar.
Það er áætlað, að þessar umbætur kosti 6 þús. kr. Það hafa verið gerðar ráðstafanir til að ná í efnivið í þennan bryggjuhaus og leggja þar fram vinnu endurgjaldslaust. Mér finnst þess vegna og hv. meðflm. mínum, að það sé mjög eðlilegt, að ríkið leggi fram þessa lokagreiðslu, 2 þús. kr., til þess að gera þessa lendingarbót örugga og áhættulausa fyrir þann mikla mannfjölda, sem þarna býr.
Ég vænti hins bezta af hv. þm. um undirtektir undir þetta mál. Ég veit, að fjvn. viðurkennir, að það sé skynsamlega til þessa stofnað, þó hún hafi ekki viljað bindast fyrir því að mæla með þessu, sem kannske stafar af því, að till. um þetta kom ekki til n. fyrr en í fundarhléinu í dag.
Næsta till. mín á sama þskj. er um fiskveiðasjóð Íslands. Hv. þm. er kunnugt um, að ríkissjóður stendur í nærfellt 1 millj. kr. skuld við fiskveiðasjóðinn. Hann hefir brotið þær reglur, sem settar voru um greiðslu þessarar 1 millj. kr. og ekki greitt neitt af henni fyrr en á yfirstandandi ári, að hann hefir greitt 60 þús. kr., en upphæðin öll á að vera greidd árið 1941. Nú hefir mér sýnzt og mörgum fleiri, að skynsamlegra hefði verið fyrir ríkissjóðinn að greiða þetta smám saman, en árið 1941 hlýtur ríkissjóður að greiða þessa 1 millj. kr. að fullu. Á síðastl. ári var horfið að því, að ríkissjóður skyldi greiða í afborgun af þessari skuld 60 þús. kr. Fjmrh. setti sömu upphæð á fjárlfrv., þegar það kom fram á öndverðu ári.
Nú sé ég, að fjvn., sem hefir þó lagt til, að veitt verði mjög mikið fé til ýmiskonar ófriðarhluta, hefir lagt til að lækka þessa afborgun úr 60 þús. kr. niður í 30 þús. kr. Mér þykir þetta næsta undarleg ákvörðun, eftir að þetta sama þing hefir samþ. l. um það, að hámarkslán úr þessum sjóði skuli hækka um 10 þús. kr., sem óhjákvæmilega skapar fiskveiðasjóði hærri útgjöld á næsta ári heldur en þau, sem honum var skylt að greiða eftir þeim l., sem hann starfaði eftir áður en þessi nýju l. voru samþ.
Mér er kunnugt um, að fiskveiðasjóður hefir gert ráðstafanir til lánveitinga um 20 þús. kr. fram yfir það, sem hann hefir til umráða, að undanskildum vaxtatekjum hans á næsta ári. En með þeim l., sem samþ. hafa verið frá þinginu um aukin hámarkslán, þá hlýtur þörf sjóðsins fyrir útlán að hækka nokkuð. Það er þess vegna ákaflega merkilegur hlutur, að fjvn. skuli hafa leyft sér að lækka framlagið um helming frá því, sem það var í stjfrv. Ég hefi nú ekki farið lengra í minni leiðréttingu en það, að framlag ríkissjóðs til fiskveiðasjóðs sé aukið upp í 75 þús. kr., úr 60 þús. kr., sem það var í stjfrv. Þessar 15 þús. kr., sem ég leggi til, að framlagið hækki um, eiga þá að mæta þeirri hækkun á hámarkslánum, sem sjálft Alþ. hefir samþ.
Ég er meðflm. að einni lítilli brtt. við fjárl., þar sem farið er fram á, að ríkissjóður leggi fram litla upphæð til sjóminjasafns fyrir Ísland. Það er kunnugt, að haldin var sýning á sjóminjum hér í Rvík á þessu ári, og hlaut sú sýning mikið lof og var þá jafnframt af svo að segja öllum blöðum landsins lögð áherzla á það, að ríkið yrði að gera ráðstafanir til að varðveita minjar um sjófarir Íslendinga. Nú hafa forgöngumenn þessarar sýningar snúið sér til ríkisstj. og beðið um, að hún gengist fyrir því, að fé verði veitt til að safna þessum sjóminjum saman í framtíðinni á sérstakt safn, þar sem daglega væri hægt að skoða þessar sjóminjar. Forgöngumennirnir fóru fram á, að ríkið veitti 8 þús. kr. í þessu skyni og væri þar í kostnaður við húsnæði og að halda mann, en fjvn., sem fékk þetta sent frá ríkisstj., hefir ekki séð sér fært að gera till. um þetta. Ég hefi því leyft mér ásamt 2 hv. þm. öðrum, hv. 2. landsk. og hv. þm. Barð., að bera fram þá brtt., að veittar verði 5 þús. kr., og til vara 3500 kr. Við höfum því lækkað upphæðina frá því, sem forgöngumenn sýningarinnar fóru fram á, og ætlumst við til, að húsnæði og umsjón komi þar ekki til útgjalda, heldur muni ríkið á þessu fyrsta ári sjá fyrir því.
Að lokum vil ég minnast á eina till., sem þykja mun dálítið nýstárleg, því það mun mega líta svo á, að Alþ. hafi fyrirfram afsalað sér nokkurri hlutdeild í því, að ákveðnir menn í þjóðfélaginu skyldu metnir þess verðir að fá nokkurn styrk fyrir bókmenntaafrek. Ég er mótfallinn þessari ráðstöfun, að Alþ. afsali sér þessum rétti, þó að ég að sjálfsögðu hafi margt að setja út á dóma þingsins á þessum hlutum á undanförnum árum.
Það er sérstaklega einn maður, sem mér finnst ósæmilegt að sparka út af fjárl., en það er skáldið Guðmundur Friðjónsson á Sandi. Hann er það skáld, sem næst Einari Benediktssyni er tvímælalaust höfuðskáld Íslands, og þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Það er í sjálfu sér merkilegt, að maður, sem barizt hefir í bændastétt allt sitt líf og háð þá baráttu með sæmd, skuli hafa hafið sig upp í það að verða höfuðskáld Íslands.
Það væru merkileg tímamót hjá Alþ. Íslendinga, ef það færðist þau undur í fang að sparka þessum manni burt af fjárl. Ég vil þess vegna. ekki aðeins vegna verðleika skáldsins, heldur líka sem prófstein á sómatilfinningu Alþ., fara fram á, að hann fái að vera áfram í 18. gr. fjárl., þó ekki með hærri upphæð en 2400 kr., og er sú upphæð mjög í samræmi við nægjusemi og hógværð íslenzkra bænda. Ég myndi heldur ekki hafa boðið þessu höfuðskáldi okkar slíka upphæð nema vegna þess, að ég veit, að það er í samræmi við hans skoðun um það, hversu mikils hófs skuli gæta í fjárútlátum á Alþ.