29.12.1939
Sameinað þing: 23. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)

1. mál, fjárlög 1940

*Eiríkur Einarsson:

Ég á brtt. á þskj. 637 um að veitt verði nokkurt fé til lendingarbóta á Stokkseyri og Eyrarbakka, 2500 kr. til hvors staðar. Það er alveg lágmarksupphæð, miðað við þörfina. En ég þarf ekki að skýra frá ástæðum til þess, að ég ber ekki fram hærri till. Ég álít, að öllum fjárkröfum þurfi nú að stilla í hóf eins og kostur er á. — Það hefir lengi verið hlaupið undir bagga með Stokkseyringum með því að brjóta mola úr brimgarðinum, og hefir það bætt mikið, þótt betur megi, ef duga skal. Frá þessum stöðum ganga töluvert margir bátar til veiða árlega og með furðanlegri heppni, til mikils bjargræðis fyrir kauptúnið, enda á það aðalafkomu sína undir því, að aflist úr sjó. Það þarf vitanlega ekki að skýra frá því, að mikið vantar á, að fullnægt sé nauðsynlegum fjárþörfum til lendingarbóta á þessum slóðum.

Sama máli gegnir um Eyrarbakka. Þar hafa verið gerðar mælingar, sem leiða í ljós, að til þess að bæta innsiglinguna — en þarna er mikil brimsigling — þarf mikið fé til umbóta, og ærin ástæða til að hlaupa undir bagga. Ég vil geta þess, að athuganir þessar hafa farið fram undir umsjá vitamálastjóra, og sýna útreikningarnir, að allt aðrar og meiri fjárhæðir þarf í þessu skyni en hér er farið fram á. En ég ber þetta fram til þess að sýna, að Alþ. hafi vilja til vað ráða bót á þessu máli, og þótt ekki sé mikið lagt af mörkum í hvert sinn, þá holar dropinn steininn um síðir. Ég tel ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar, en mun að þessu sinni létta þeim umsvifum af Alþ. að þurfa að greiða atkv. um málið og tek till. aftur. Geri ég það vegna þess, að ég hefi ástæðu til að ætla, að á næsta Alþ. muni verða gengið í það af fleiri þm. en mér að koma fram verulegum fjárhæðum til þessara nauðsynjamála.

Þá vil ég minnast hér á brtt., sem ég á ásamt hv. þm. Mýr., um að heimila ríkisstj. (ég heyri, að það er ekki vinsælt orðalag nú) að greiða nokkurt fé til að styrkja búendur til að kaupa útlendan áburð, þar sem fyrirsjáanlegt er, að verðlag muni verða allhátt. Það var eins og hv. þingdm. muna frv. hér á ferðinni um breyt. á jarðræktarlögunum. Ekki er að efa, að hv. þingdm. muni skilja nauðsyn þessarar breytingar. Það er líka vitanlegt, að með komandi vori munu margir bændur standa eins og þvörur víðsvegar um land vegna þeirrar miklu verðhækkunar, sem orðið hefir á erlendum áburði. Miklu fé hefir á síðari árum verið varið til túnræktar, og ég tel það ekki eftir, þótt slíkar umbætur kosti ríkissjóð töluverð útlát. En þessi miklu fjárútlát, sem lögð hafa verið í aukna túnrækt, koma alls ekki að fullum notum nema því aðeins, að tryggður sé nægilegur tilbúinn áburður. Það er þess vegna, að ég og hv. meðflm. minn, þm. Mýr., höfum borið fram till. við 22. gr. V., að greiða áburðarsölu ríkisins allt að 100000 kr. styrk til þess að létta undir með bændum til áburðarkaupa; til vara höfum við lagt til, að 70000 kr. verði veittar.

Ég hefi heyrt því fleygt, að þegar rætt er um fjárl., sé tími til að þegja og tala, og ég mun því velja hentugra hlutskiptið og teygja ekki lopann. Þó vil ég vekja athygli á því, að mér þykir það mjög viðsjárvert, þegar till. kemur um að veita ríkisstj. heimild til lántöku til að fullgera veginn yfir Siglufjarðarskarð. Það er auðvitað, að akfær braut frá Siglufirði inn í Fljót myndi bæta samgöngur milli sjávar og sveita, en mér þykir viðsjárvert, ef heitt er slíkum aðferðum til fjárveitingarinnar, í stað þess að veita féð í fjárl. til þessa vegar eins og siður er til annara vega.