29.12.1939
Sameinað þing: 23. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)
1. mál, fjárlög 1940
*Pétur Halldórsson:
Herra forseti! Ég er ásamt 2 öðrum hv. þm. flm. að till. á þskj. 619. Till. er nr. 13, og er þar farið fram, á, að við 14. gr. fjárl., þar sem talin eru útgjöld til háskólans, komi nýr stafl., til kennaraíbúða 20 þús. kr.
Það leikur ekki á tveim tungum, að eitt af því, sem má telja til mestrar vanvirðu í þessu þjóðfélagi, eru laun prófessoranna við háskólann. Ég held, að enginn hv. þm. myndi vilja standa upp til að mótmæla þessu. Það hefir verið hin mesta smám að því, hvernig þessum starfsmönnum þjóðfélagsins hefir verið launað, og hefir það í raun og veru bæði verið til skammar fyrir þann, sem launin geldur, og til vanvirðu fyrir þá, sem þessi laun taka. Ég veit ekki. hvort öllum hv. þm. er kunnugt um það, að árslaunin eru 4500 kr. Þar frá dregst svo lífeyrissjóðsgjald, sem er 350 kr. á ári. Byrjunarlaunin eru því 340 kr. á mánuði á mann. Það er því gersamlega óhugsandi fyrir þingið og þá stofnun, sem þessir menn vinna við, að það megi dragast stundinni lengur að gera á þessu einhverja bót. Eftir 9 ára þjónustu eru laun þessara manna þó komin upp í 470 kr. á mánuði. Laun prófessoranna eru því svipuð og laun röskra afgreiðslumanna í verzlunum í Rvík.
Ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í að lýsa því frekar, hvað mikil smán þetta er og hversu nauðsynlegt er að kippa þessu í lag, og það nú þegar. Þetta gildir ekki suma af prófessorunum, því prófessorarnir í læknadeild hafa með höndum önnur störf fyrir hið opinbera, svo sem yfirlæknisstöður við landsspítalann og einn við rannsóknarstofu háskólans, sem þeir fá sérstök laun fyrir úr ríkissjóði. Þetta, sem ég hefi sagt, á því sérstaklega við prófessorana í hinum 3 deildum háskólans. Það eru 10 menn, sem þetta gildir um, að laun þeirra eru svo smánarlega lítil, að það er óhugsandi annað en hv. Alþ. fallist á að bæta þetta strax á einhvern hátt.
Nú er það í ráði, að háskólinn styðji að því, að komið verði upp kennaraíbúðum á háskólalóðinni, en sennilega verður að fresta því fyrst um sinn vegna þess, að útlit er fyrir, að ekki verði fært að ráðast í að byggja þær á næstunni vegna kostnaðar. Það mun þess vegna dragast um sinn, að þessar íbúðir verði reistar. En verði það, þá er létt dálítið undir með þessum starfsmönnum hvað húsaleiguna snertir. Þar sem nú verður að fresta þessu um sinn, þá þykir mér rétt og eins þeim, sem flytja till. með mér. að ætlast til, að þessum 10 háskólaprófessorum verði bætt upp laun þeirra með 2000 kr. framlagi á mann, sem kalla mætti húsaleigustyrk. Í þessu skyni er þessi brtt. við fjárl., um 20 þús. kr. til kennaraíbúða.
Ég skal svo ekki tefja umr. með lengra máli um þetta, en ég treysti því, að hv. þm. fallist á þetta og greiði till. atkv.
Svo vil ég leyfa mér að auki að koma með eina litla brtt. við fjárl., þar sem farið er fram á, að til elliheimilisins Grund í Rvík verði veittur styrkur að upphæð 5 þús. kr. Við flytjum þessa brtt., ég og 2 aðrir þm. Reykv., vegna þess að það hefir verið svo um sinn, að nokkuð hærra gjald hefir verið tekið af þeim vistmönnum á Elliheimilinu, sem eiga heima utan Rvíkur. Nú ætlumst við til, að það verði gert að skilyrði fyrir þessari styrkveitingu, að sama daggjald verði fyrir vistmenn, hvort sem þeir eru frá Rvík eða öðrum stöðum.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en ég treysti því, að þessi till. fái fylgi þingsins.