02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)
4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
*Ásgeir Ásgeirsson:
Ég vil aðeins lýsa yfir því f. h. þm. Alþfl., að þeir munu greiða atkv. á móti því að fella niður prentun Alþt. Þessi till. á ekki þann rétt á sér nú eins og fyrst þegar hún kom fram. Í síðasta ófriði, 1914–18, var aldrei gripið til þess að fella niður prentun Alþt., og það þarf vissulega meira hallæri en nú er til þess, að gripið verði til slíkra ráðstafana, og við vonum allir, að til þess komi ekki. Þó að það megi nefna þá breyt., sem orðið hefir síðasta áratug með útvarpinu, þá kemur útvarpið aldrei í staðinn fyrir Alþt. Það hefir reynzt svo á okkar þingi, að það hefir heldur dregið úr notkun útvarps fyrir þingið. Það sama má segja, að orðið hafi á öllum Norðurlöndum, að mjög hefir dregið úr notkun útvarps í sambandi við þinghald. Það gilda sumstaðar, t. d. í Englandi, bönn við því að útvarpa ákveðnum málum frá þinginu. Alþt. eru öruggasta sönnunin, sem samtiðin getur fengið um það, hvað gerist á þinginu. Prentun Alþt. stendur í lifandi sambandi við okkar stjórnskipulag, og það mundi verða því skipulagi hættulegt, að slík prentun félli niður.
Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta, en vildi, að það kæmi í Alþt., sem ég vona, að verði prentuð. Alþfl. stendur á móti því, að þau séu felld niður. Það þarf neyðarástand til þess að grípa til slíkra ráðstafana, og þó að gripið yrði til þess, mundi það vafalaust verða prentað upp síðar, sem niður hefði fallið.