06.11.1939
Neðri deild: 53. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (1195)
95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi
*Héðinn Valdimarsson:
Aðalatriðið í þeim l. um breyt. á gengisskráningu, sem samþ. voru 4. apríl 1939, var fyrst og fremst lækkun krónunnar, í öðru lagi ákveðið fast hlutfall gagnvart sterlingspundi og í þriðja lagi raunveruleg lækkun kaupgjalds, með því að leyfa verkalýðsfélögunum ekki að semja um kaupið. Því var spáð þá, að þessu myndi verða tjaldað til einnar nætur. Það vissu flestir þá, að það var eins vel hægt að búast við stríði eins og ekki. Það er líka kunnugt mörgum þeim, sem stóðu að samþykkt l., að þau voru sett ekki sízt vegna þess, að stríðið var yfirvofandi. Þess vegna er yfirlýsing hv. þm. Ísaf. alleinkennileg. Hvers vegna voru ekki sett ákvæði í l., sem væru varnagli við því, ef stríð skylli á? En hvað hefir ríkisstj. svo gert eftir að stríðið skall á? Hún hefir lækkað krónuna enn um 11%. Í öðru lagi hefir hún haldið áfram föstu hlutfalli milli krónunnar og erlends gjaldeyris, aðeins farið frá pundinu yfir í dollar, sem að sjálfsögðu getur verið jafnvarasamt eins og að binda hana við pundið. Í þriðja lagi hefir að vísu verið raskað við kaupgjaldsákvæðinu, þar sem hafa verið teknir undan áhættupeningar sjómanna og stríðstryggingar, en að öðru leyti hefir ekki verið átt neitt við meginþráð l., sem heldur kaupgjaldinu niðri. Hinsvegar er það auðsjáanlegt, að með þeim miklu verðbreytingum, sem daglega verða, er ekki hægt að halda þessu ákvæði lengur.
Sósíalistafl. hefir þess vegna ákveðið að bera fram annað frv. um þetta mál, þar sem þessu er breytt. Mun ég á sínum tíma reifa það mál, þegar frv. kemur fram. Ég skal geta þess, að við teljum ljósara að bera fram um þetta sérstakt frv. heldur en að koma með brtt. við þetta frv., sem hér liggur fyrir til umr. Vænti ég þess, að því frv. verði á sínum tíma visað til sömu n. og þessu.
Ég vil að lokum taka það fram, að við álítum, að það sé verið að niðast á einni stærstu stétt þjóðfélagsins, ef ekki verður gerð breyting á þeim ákvæðum l., sem um hennar kjör fjalla.