03.01.1940
Neðri deild: 99. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í B-deild Alþingistíðinda. (1211)
95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Við höfum, þm. Sósíalistafl. og hv. 3. þm. Reykv., flutt brtt. á þskj. 288 við frv. þetta, og þótt þær væru nokkurn veginn sjálfstætt frv. og bornar fram snemma þings, hafa þær ekki fengizt ræddar fyrr. Aðalatriðið, sem í þeim brtt. fólst, var, að verkalýðsfélögin skyldu aftur fá þann rétt, sem af þeim var tekinn með gengislögunum frá 4. apríl í vor, réttinn til að mega semja á frjálsum grundvelli við atvinnurekendur, að svo miklu leyti sem hægt er að tala um frjálsan grundvöll, þegar annarsvegar eru ríkir atvinnurekendur, eða a. m. k. menn, sem hafa ráð yfir miklu lánsfé og ítökum á hærri stöðum, en hinsvegar fátækir verkamenn, sem ekkert hafa að lifa af nema það, sem þeir fá fyrir að selja vinnuafl sitt. Þessi frjálsi grundvöllur er því ekkert sérlega glæsilegur fyrir verkamenn. Aðeins með því að beita til hins ýtrasta samtökum sinum og samheldni, samúð og hjálpsemi innbyrðis, geta þeir knúið rétt sinn fram og bætt kjörin til muna. Þessi frjálsi grundvöllur var hinsvegar numinn úr gildi um stundarsakir með l. frá 4. apríl 1939 og verkamönnum bannað að beita samtökum sínum til að semja um kaup og kjör; ríkisvaldið gerði ákvörðun um þetta. En út frá hverju? Af því að ein sterkasta atvinnurekendastéttin í landinu, togaraeigendur, sem auk ýmissa fríðinda og umráða yfir lánsfé landsmanna hafði hlotið fullt skattfrelsi sér til handa, þurfti ofan á allt annað að fá gengið lækkað og fá sér þannig gefnar milljónir króna á kostnað alþýðunnar í landinu, til þess að tryggja sér nógan gróða. Þessar milljónir voru þó kannske ekki það mesta, sem af verkalýðnum var tekið með þeim l. og gefið skuldakóngunum, því að hann hefði getað sótt þær aftur í hendur þeirra með sama krafti sem hann hafði beitt til að sækja þær í skaut Ægis eða jarðarinnar. Frelsið til að beita krafti samtaka sinna var meira virði en milljónirnar. En það var einmitt það, sem skuldakóngarnir vildu koma í veg fyrir, og úrræði þeirra var að svipta verkalýðinn frelsinu. Við fulltrúar Sósíalistafl. vildum lofa sjómannastéttinni að nota þann grundvöll, sem hún hafði haft til þess að vernda rétt sinn, en frá nokkrum hluta atvinnurekenda kom krafan um að eyðileggja samtök hans. Því hefir ekki verið mótmælt, að sá væri tilgangurinn, enda ekki hægt. Við sýndum fram á, að ef undan væri látið í þetta sinn, mundu erindrekar atvinnurekenda aðeins færa sig upp á skaftið; þegar 1. apríl 1940 færi að nálgast, mundi yfirstéttin á Íslandi gera þær tillögur til þjóna sinna, að ákvæðin um kauphækkunarbannið yrðu framlengd. Veigamestu atriðin í brtt. fjhn. eru nú einmitt framlenging þessa ófrelsis. Hinsvegar eru aðalatriðin í brtt. okkar að afnema þetta ófrelsi og gefa verklýðsfélögunum rétt sinn á ný til þess að ákveða, hvort þau vildu berjast fyrir varðveizlu og umbótum kjara sinna með þeim kröftum, sem þau eiga á að skipa, eða ef hvorki þau né vinnuveitendur á einhverjum stað kærðu sig um baráttu, þá kæmu til framkvæmda ákvæði um, að kaupið hækkaði mánaðarlega í sama hlutfalli og vísitala framfærslukostnaðar hækkar, þannig að reiknað yrði mánaðarlega, hvað dýrtíðin hefði hækkað, og þá strax um næstu mánaðamót hækkað kaup sem því svarar.
Fyrsta og mesta atriðið í brtt. okkar var að gefa verkamönnum og sjómönnum aftur réttinn, sem af þeim var tekinn. En annað meginatriði var að tryggja kauphækkun í samræmi við dýrtíðina á þeim stöðum, þar sem aðilum þætti æskilegast að leggja ekki í baráttu, heldur láta haldast það samræmi, sem verið hefir milli kaupgjalds og verðlags. Verkalýðssamtökin, sem menn vita, að sköpuð hafa verið á grundvelli frjálsrar baráttu fyrir hagsmunum sínum og staðið á honum í 20–30–40 ár hér á landi, þola ekki, að eggjar þeirra séu deyfðar á þann hátt að neyða þau til þess að hætta öllum tilraunum til að bæta kjör sín innan ramma hins íslenzka þjóðfélags.
En það er fleira, sem þarf að gæta að í þessu sambandi. Við tókum fram í brtt., að slysa- og dánarbætur, ellilaun og örorkubætur yrðu að hækka að sama skapi og launagreiðslur, eða í samræmi við hækkun framfærslukostnaðar. Þetta er ákaflega nauðsynlegt löggjafaratriði, sérstaklega þar sem flestir, er slíkra bóta eða ellilauna njóta, styðjast ekki við nein samtök, sem gætu knúið á um úrlausn, og því meira mannúðarmál er hér um að ræða. Sama gildir um hækkun barnsmeðlaga (meðalmeðlög) af hálfu barnsfeðra. Því hefir ekki verið mótmælt með rökum, að allt, sem svo stendur á um, verði að hækka með framfærslukostnaðinum.
Í brtt. fjhn. er ekkert um slíkt. Valdhöfunum fannst ekki ástæða til hækkunar nema hjá þeim aðilum, sem þeir óttast vegna samtakamáttarins; mannúðin kemur ekki sérstaklega fram í því sambandi. Um þær brtt. er ekki ástæða til að orðlengja. En hjá því verður ekki komizt að minna á kröfurnar, sem allur landslýður hefir gert um breytingar á gengislögunum, og athuga, að hve miklu leyti brtt. fjhn. fullnægja þeim kröfum.
Ég býst við, að ekkert mál, sem fyrir þetta þing hefir komið, þótt mörg séu þau stór, láti almenningur í landinu sig eins miklu varða og kaupgjaldsmálin. Flestöll samtök launþega, bæði verkalýðs og annara stétta, hafa rætt þau og gert sínar kröfur í því sambandi. Ég vil leyfa mér að minna þingið á sumt af þessum kröfum. Þó að nokkuð af þeim hafi verið lesið hér upp áður, býst ég við, að hv. þm. þeirra flokka, sem kenna sig við lýðræði, sé kærkomið að heyra raddir almennings í málinu, standa þar í sem nánastri snertingu við hann og breyta að einhverju leyti eftir óskum hans. Um ýmis önnur mál, sem almenning varða miklu, hefir það verið haft þannig, að þau hafa verið knúin fram í skyndi, án þess að hann fengi nokkurt tækifæri til að átta sig á þeim. Mönnum er sérstaklega kunnugt, hvernig farið var að við samþykkt gengisl. frá 4. apríl síðastl.; sama dag og frv. var flutt og um nóttina er það knúið. gegnum allar 6 umr. í báðum deildum með afbrigðum frá þingsköpum, án þess að almenningur fengi að vita, hvað um var að vera. Ég býst við, þótt seint sé, að þm. lýðræðisflokkanna hafi gaman af að heyra álit almennings einmitt um lög, sem þannig voru sett, og skal nú telja upp nokkrar samþykktir og áskoranir frá samtökum ýmissa launþega í landinu, en þeir eru eins og sjá má af hagskýrslum heldur meira en 50% af þjóðinni.
Stjórnir Félags ísl. símamanna, Sambands ísl. barnakennara, Póstmannafélags Íslands, Tollvarðafélags Íslands og Starfsmannafélags ríkisstofnana hafa sent Alþingi sameiginlegt álit um breytingar á gengisskráningarl., þar sem þeir fara fram á fyrir hönd allra þessara starfsmanna ríkisins, að kaupgjald sé hækkað, að þessi óviðunandi lög séu afnumin, og sérstaklega óskað eftir, að framfærslukostnaður sé reiknaður mánaðarlega og kaupuppbót ákveðin og framkvæmd mánaðarlega.
Frá prentarafélaginu, sem er, eins og kunnugt er, elzta stéttarfélag í Reykjavík, hefir Alþingi borizt yfirlýsing um misrétti það, er gengislögin valda, og rökstudd mótmæli gegn þeim.
Frá verkamannafélaginu Dagsbrún hefir borizt áskorun um að nema úr gildi 2. og 3. gr. gengisskráningarlaganna, en það eru þau ákvæði l., sem svipta verkamenn réttinum til að semja við atvinnurekendur. Frá prentarafélaginu barst síðan ný áskorun í sömu átt.
Bakarasveinafélag Íslands skorar á Alþingi að breyta l. og veita verklýðsfélögunum sjálfsákvörðunarrétt til kaupgjaldssamninga.
Sveinafélag húsgagnasmiða skorar á Alþingi að breyta ákvæðum l. svo, að kaupgjald geti hækkað í samræmi við verð nauðsynja og að verkalýðsfélögum sé gefið fullt samningafrelsi.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur skorar ar á Alþingi að nema úr gildi bann við kauphækkunum, og við ítrekun þeirrar áskorunar mánuði síðar að hlutast m. a. til um, að sjómönnum verði greidd uppbót í samræmi við hækkað verð síldarafurða, og að samþ. brtt. Sósíalistafl. við l. um gengisskráningu.
Verklýðs- og sjómannafélag Keflavíkur skorar á Alþingi að breyta l. svo, að kaupgjald hækki í samræmi við aukna dýrtíð.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur skorar á Alþingi að fella úr gildi 2. og 3. gr. l. og ráðstafanir í því sambandi.
Sjómannafélag Reykjavíkur skorar á Alþingi að breyta l. þannig, að kaupgjald hækki ársfjórðungslega miðað við dýrtíðaraukningu, og hlutast til um, að sjómenn fái uppbót á síldarverðið í réttu hlutfalli við þá verðhækkun, sem orðið hefir á síldarafurðum.
Verklýðsfélag Akureyrar skorar á Alþingi að lögleiða kaupuppbót, er svari til dýrtíðarinnar, eða þá nema úr gildi þau ákvæði l., er óheimila verklýðsfélögunum að setja sér kauptaxta í samræmi við dýrtíðina.
Félag bifvélavirkja í Rvík skorar á Alþingi að breyta l. á þá leið, að kaupgjald hækki í samræmi við breytingar á verði nauðsynja, og að gefa verklýðsfélögunum fullt samningafrelsi.
Víða hafa almennir fundir tekið málið til umr. og sent Alþingi áskoranir. Ein slík áskorun hefir borizt frá almennum umræðufundi, er haldinn var í samkomuhúsi Akureyrar 8. nóv. s. l. að tilhlutun Sósíalistafélags Akureyrar, um að afnema þau ákvæði, er hefta samningafrelsi og réttindi verkalýðsfélaga og banna kauphækkun.
Verklýðsfélag Akraness skorar á Alþingi að breyta ákvæðum l. á þá leið, að miða útreikning kaupgjalds við hækkaðan framfærslukostnað, eða veita ella verklýðsfélögunum sjálfákvörðunarrétt til kaupgjaldssamninga.
Stjórn Bílstjórafélags Akureyrar skorar á Alþingi að nema úr gildi 2. og 3. gr. l. og ráðstafanir í því sambandi, en breyta að öðrum kosti ákvæðum 2. gr. þannig, að framfærslukostnaður verði reiknaður út ársfjórðungslega og kaupgjald hækki samkvæmt honum.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar skorar á Alþingi að breyta ákvæðum l. á þá leið, að kaup sjómanna og verkafólks hækki í fullu samræmi við aukna dýrtíð, og samþ. brtt. 6. landsk. (EmJ) í þessu máli.
Rafvirkjafélag Reykjavíkur skorar á Alþingi að fella úr gildi 2. og 3. gr. l. eða breyta þeim á þá leið, að kaupgjald hækki í hlutfalli við dýrtíðina.
Almennur fundur haldinn í Vestmannaeyjum 26. okt. síðastl. að tilhlutun verkamannafélagsins Drífanda skorar á Alþingi að nema l. úr gildi og ráðstafanir í því sambandi.
Verkamannafélagið Fram á Sauðárkróki skorar á Alþingi að breyta l. á þá leið, að kaup hækki ársfjórðungslega í hlutfalli við verð lífsnauðsynja.
Verklýðsfélag Norðfjarðar skorar á Alþingi að afnema bann l. við kauphækkunum og taka upp í vinnulöggjöf skýrt ákvæði um það, að einungis eitt stéttarfélag í atvinnugrein skuli viðurkennt á hverjum stað.
Klæðskerasveinafélagið Skjaldborg í Reykjavík skorar á Alþingi að breyta l. þannig, að kaupgjald hækki í samræmi við hækkandi verðlag og verklýðsfélög fái fullt samningafrelsi.
Stofnþing Landssambands ísl. stéttarfélaga mótmælir vinnulöggjöfinni og skorar á Alþingi að breyta henni og sömuleiðis að nema úr gildi allar hömlur á því, að verklýðsfélög geti nú þegar hækkað kaup meðlima sinna vegna dýrtíðarinnar.
Verkamannafélag Hafnarfjarðar mótmælir breytingum á vinnulöggjöfinni og tekur upp áskorun Sjómannafélags Hafnarfjarðar um kauphækkun í fullu samræmi við aukna dýrtíð.
Verklýðsfélag Borgarness skorar á Alþingi að breyta vinnulöggjöfinni í grundvallaratriðum og veita verklýðsfélögunum óskert frelsi til að bæta kjör meðlima sinna. Áskorun sína ítrekaði félagið mánuði síðar, rétt fyrir jólin, í sambandi við ríkislögreglufrv.
Verklýðsfélagið Baldur á Ísafirði sendir Alþingi ályktun sína, þar sem það lýsir yfir því, að það muni sætta sig við lögbundnar kaupgjaldsbreytingar, meðan stríðið stendur, ef þær eru reiknaðar eftir þeirri reglu; að kaupið hækki í sama hlutfalli og dýrtíðin. — Þarna geta menn séð, hvernig eitt af þeim verklýðsfélögum, sem í lengstu lög vilja sætta sig við forsjón yfirvaldanna og Alþýðusamb., setur þó það skilyrði fyrir hlýðni sinni, að kaupið hækki ekki eins og St. Jóh. Stefánsson, hæstv. ráðh., leggur til, heldur í fullu samræmi við vaxandi dýrtíð.
Verkamannafélagið Dagsbrún skorar á Alþingi að samþ. brtt. okkar sósíalista, sem ég gat áðan, breyta vinnulöggjöfinni svo, að einungis eitt stéttarfélag sé viðurkennt á hverjum stað og allir meðlimir verklýðsfélaganna hafi þar rétt til trúnaðarstarfa, og loks mótmælir félagið ríkislögreglufrv:
Málarasveinafélag Reykjavíkur skorar á Alþingi að breyta l. á þá leið, að verklýðs- og iðnfélög hafi óskert frelsi til að bæta kjör meðlima sinna í samræmi við vaxandi dýrtíð.
Þvottakvennafélagið Freyja í Reykjavík mótmælir frv. um ríkislögregluna og skorar á Alþingi að breyta gengisskráningarlögunum svo, að verklýðsfélögin hafi óskert frelsi til að bæta kjör meðlima sinna í hlutfalli við dýrtíðina.
Sveinafélag húsgagnabólstrara mótmælir þeim ákvæðum l., sem hindra, að kaup hækki í samræmi við dýrtíðina.
Alþýðusamb. Íslands sendir Alþingi áskorun frá Verkamannafélagi Raufarhafnar um að nema úr gildi þau ákvæði l., sem banna kauphækkun, og gera allt, sem unnt er, til atvinnuaukningar á næsta ári.
Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík skorar á þing , og stjórn að gera þær ráðstafanir, að daglaunamenn fái kaup í réttu hlutfalli við dýrtíð, en láta kaupgjaldsmálin frjáls ella, — auk áskorana félagsins um mörg önnur mál.
Verklýðs- og sjómannafélag Ólafsfjarðar skorar á Alþingi að breyta þeim ákvæðum l., sem fjalla um lögfestingu kaupgjalds, og gefa þar verklýðsfélögum frjálsar hendur.
Alþýðusamb. Ísl. sendir Alþingi ályktanir verklýðsfélagsins Brynju á Þingeyri um að skora á Alþingi að breyta l. þannig, að kaupgjald hækki ársfjórðungslega samkv. vísitölu.
Sama samband sendir Alþingi ályktanir Verklýðsfélags Stykkishólms um að skora á Alþingi að breyta l. þannig, að kaup verkafólks hækki hlutfallslega við aukna dýrtíð.
Sveinafélag skipasmiða í Reykjavík skorar á Alþingi að breyta l. þannig, að kaupgjald hækki í samræmi við verðlag nauðsynjavara og að stéttarfélög hafi fullt samningafrelsi.
Verzlunarmannafélagið á Ísafirði skorar á Alþingi að breyta l. þannig, að stéttarfélögin njóti fulls samningafrelsis um kaupgjald.
Verkamannafélag Húsavíkur skorar á Alþingi að breyta gengisskráningarl. á þá leið, að verklýðsfélögin öðlist aftur rétt til að hækka kaup meðlima sinna, og hlutast til um uppbót á síldarverð fyrir síðustu vertíð.
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði skorar á Alþingi að samþ. till. okkar sósíalista í þessu máli, en fella höggorminn o. fl.
Matsveina- og veitingaþjónafélag Íslands mótmælir ákvæðum höggormsins um fækkun matsveina og þjónustufólks á íslenzkum skipum.
Alþýðusamb. Ísl. sendir Alþingi fundarályktun Verklýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps, þar sem skorað er á þingið að breyta l. á þá leið, að kaup verkafólks hækki í hlutfalli við vaxandi dýrtíð t landinu.
Þannig liggur fyrir Alþ. fjöldi ályktana, ekki aðeins frá verkalýðsfélögunum, heldur og öðrum, svo sem samtökum verzlunarmanna og starfsmönnum hins opinbera. Hefi ég ekki orðið var við eina einustu áskorun frá neinum stéttasamtökum, sem fari fram á, að kaupgjaldið verði lögbundið áfram. — Nei, það er svo sem auðséð, hvernig þessar brtt. hafa orðið til. Lítil klíka manna, sem stjórnar þessu landi, hefir komið sér saman um það á bak við tjöldin, hvernig ráða skuli hag almennings. Það er ekki verið að spyrja þjóðina eða taka tillit til óska hennar, og þó liggja fyrir kröfur frá meiri hluta hennar, samtökum alþýðunnar, en stjórnin hefir ekki tekið tillit til þeirra með einu orði. — Hinsvegar hefir þess orðið vart, að framkvæmdastjóri Vinnuveitendafélags Íslands hefir verið hér tíður gestur og staðið í miklum samningum við ríkisstj., og brtt. fjhn. er útkoman af því makki, sem farið hefir fram á bak við tjöldin allan tímann. Hverjir eru það, sem hafa samið bak við tjöldin? Hefir nokkur verkamaður eða fulltrúi frá samtökum þeirra fengið að segja álit sitt? Nei, samningarnir hafa aðeins farið fram milli ráðherranna og fulltrúa atvinnurekenda. Enginn verkamaður hefir fengið að koma hér nærri, og sá ráðh., sem telur sig sjálfskipaðan talsmann verkalýðssamtakanna, hæstv. félmrh., er ekki í neinu verkalýðsfélagi og virðist enda hafa annara hagsmuna að gæta en hagsmuna verkamanna. Þessar till. hafa ekki verið bornar undir eitt einasta verkalýðsfélag, enda er þess ekki að vænta, því að þær eru í skerandi mótsögn við kröfur allra þeirra félaga, er hafa látið málið til sín taka. Í öllum þeim fjölda ályktana, sem Alþ. hafa borizt, kemur það skýrt fram, að verkalýðssamtökin telja aðalatriðið, að þau hafi frelsi til þess að ráða kaupgjaldinu sjálf, en aðalatriðið í till. fjhn. er að binda kaupgjaldið áfram. — Og þó að það sé látið í veðri vaka, að það sé aðeins út þetta ár, þá vitum við, að ákvæðið um lögbundið kaupgjald verður framlengt á næsta þingi.
Þjóðstjórnarflokkarnir, sem leggja til, að verkalýðurinn verði sviptur þeim mikilsverða rétti, að ráða sjálfur kaupgjaldinu, færa það fram sem afsökun fyrir till. sínum, að nú séu svo erfiðir tímar, að þetta sé nauðsynlegt fyrir þjóðfélagið, — en auðvitað meina þeir yfirstéttina. Og hæstvirtir ráðherrar skæla framan í alþýðuna og segja, að þeir sjái enga aðra möguleika, því miður, — en þessir normaltímar, sem þessir herrar eru að tala um, koma að öllum líkindum ekki aftur fyrst um sinn, — fyrir því hafa valdhafarnir séð. Þess vegna er um að gera að samþykkja þvingunarlög, sem hneppa almenning í þrældómsfjötra og velta kreppunni yfir á herðar verkalýðsins.
Það er ekki til neins fyrir valdhafa að afsaka sig með ónormölum tímum; þeir eiga sök á þeim, en ef ekki verður við þá ráðið, er það fyrsta krafa almennings, að dýrtíðin verði látin skella fyrst á þeim hæstlaunuðu, en ekki á þeim, sem hafa versta aðstöðu.
Það hefir komið fram hvað eftir annað á þessu þingi, að það er ekki viðlit að fá tekið fyrir mál, sem snertir hálaunamennina. Ég skal ekki segja, hvort það stendur í sambandi við það, sem hv. þm. A.-Húnv. (JPálm) upplýsti um daginn, að 30 þm. hefðu 10 þús. kr. árslaun og þar yfir, en það liggur nærri að álykta eitthvað í þá átt. Það hefir ekki fengizt tekið fyrir, að dýrtíðin væri fyrst og fremst látin bitna á hálaunamönnunum, — það er ekki við það komandi, að þeir, sem hafa 20–30 þús. kr. í árslaun, fái laun sín lækkuð. Hinsvegar er hver einasti stuðningsmaður stj. handjárnaður eftir því sem unnt er, svo að hægt sé að kúga þá, sem verst eru settir, til þess að taka afleiðingum dýrtíðarinnar.
Þessar till. fjhn., sem samdar eru á bak við tjöldin, á nú að keyra í gegnum þingið í kvöld og nótt með afbrigðum frá þingsköpum, án þess að þjóðin fái að segja eitt einasta orð um þær. En það vill svo til, að verkalýðssamtökin hafa þegar sagt sitt álit, eins og ég hefi þegar skýrt frá, og liggja þannig fyrir kröfur mikils hluta kjósenda um, hvað á að gera í máll þessu, og þær eru samhljóða kröfum okkar þm. Sósíalistafl. Þetta vita valdhafarnir. Hæstv. ráðherrar hafa játazt undir, að æskilegast væri, að sú regla væri í gildi, að verkalýðssamtökin fengju að semja um kaup meðlima sinna. Hvenær er verkalýðnum mest þörf á, að þessi regla sé í gildi? Er það ekki einmilt nú í dýrtíð og atvinnuleysi? — En hvað gerir auðvaldið? — Það þurrkar út þessi mannréttindi; verkalýðurinn má hafa þennan rétt á þeim tímum, þegar allt er tiltölulega rólegt, en þegar árásir auðvaldsins eru hvað svæsnastar og erfiðleikar alþýðu manna mestir, á að þurrka hann út. — Þetta er í samræmi við allt annað, sem þetta þing er að gera. Það er í samræmi við það, að nú á að svipta verkalýðinn þeim tökum, sem hann hafði á atvinnubótavinnu ríkissjóðs. Það er í samræmi við það, að nú á að vera hægt að flytja atvinnulausa verkamenn hvert á land sem er, láta þá vinna hvað sem er og fyrir það kaup, sem þeim er úthlutað. Þetta er í samræmi við breytingarnar á framfærslulögunum. Í stuttu máli, þetta er einn liðurinn að innleiða það þrælahald fyrir íslenzka verkamenn, sem yfirstéttin er að koma á. Það er vitanlegt, að yfirstéttin álftur þörf á að koma þessu þrælahaldi á nú, vegna þess, að óstjórn hennar hefir verið svo gífurleg, að hún treystist ekki að halda völdum að öðrum kosti.
Ofsóknarherferðirnar gegn Sósíalistafl. eru líka í samræmi við þessa stefnu, því að nú er um að gera að berja niður alla mótspyrnu verkalýðsins, hindra samtök hans og svipta lagalegum rétti. Af sama toga er spunnið að hindra, að eldhúsumræðunum væri útvarpað. Skoðanir okkar máttu ekki ná út til fólksins. Þannig framkvæma hinir svokölluðu lýðræðisflokkar lýðræðið. Verkamenn mega vera frjálsir menn — mikil ósköp —, þeir mega vera í samtökum, en þeir mega bara ekki beita þeim. Mig skyldi ekki undra, þótt næsta skrefið yrði að gera ráðstafanir til þess að hindra, að blöð verkalýðsins komi út.
Þá er ennfremur rétt að vekja athygli á því, að þó aðalatriðið með framlengingu þessara kaupþrælkunarlaga sé að tryggja hagsmuni togaraeigenda — skuldakónganna — og annara slíkra, þá hefir ríkisvaldið einnig mikilla hagsmuna að gæta gagnvart verkalýðnum. Það kemur til af því, að af þeim ca. 40 millj. kr., sem greiddar eru árlega í vinnulaun á Íslandi, greiðir það opinbera um ¼ hl., eða um 10 millj. króna. Nú er ríkisvaldið eins og málum er komið orðið tæki í höndum eins stjórnmálaflokks annarsvegar og helztu skuldakónganna hinsvegar. — Embættismenn Framsfl. og skuldakóngar íhaldsins nota ríkisvaldið til þess að svipta verkalýðinn sjálfsögðum rétti sínum til ágóða fyrir stóratvinnurekendur og „ríkisvald“ þeirra.
Þetta er sérstaklega athyglisvert, einkum þegar þess er gætt, að launþegar eru meira en helmingur landsmanna, og það er stórhættulegt, að Alþingi sem fulltrúi þjóðarinnar skuli svo gersamlega lúta hinni fámennu yfirstéttarklíku, að það skuli leyfa sér að skerða svo rétt meiri hluta landsmanna.
En það er ekki nóg, að Alþingi skerði á þennan hátt rétt verkalýðsins til þess að ráða sjálfur kaupi sínu, heldur skerðir það einnig rétt hans til þess að afla sér möguleika til að vinna fyrir þessu kaupi. Það hafa verið færð fram þau rök fyrir till. fjhn., að það sé ekki tilfinnanlegt fyrir verkamenn, þótt kaupið lækki, ef þeir hafi sæmilega atvinnu. Við vitum, að yfir vofir vaxandi atvinnuleysi. Hvað hefir Alþ. gert til þess að bæta úr því?
Ég vil nefna eitt sláandi dæmi, sem ríkisstjórnin fæst aldrei til að ræða.
Í bæ einum — ég á hér við Siglufjörð — stóð til að reisa síldarverksmiðju, er ynni úr 5000 málum síldar á sólarhring, og hefði þannig skapað stórfellda atvinnuaukningu. Ríkisstj. hindraði, að hægt væri að byggja verksmiðjuna. — Hér þurfti ekkert lán frá ríkinu, ekki einu sinni ríkisábyrgð á láni, aðeins leyfi til þess að flytja þau tæki til landsins, sem nauðsynlega þurfti til þess að koma upp verksmiðjunni. Þannig neitaði ríkisstj. fólkinu um aukna atvinnu. Þessi sama ríkisstjórn ber síðan fram lagaákvæði, sem skuldhinda verkalýðinn til þess að búa við lágt kaupgjald, jafnframt því sem hún stofnar til þess, að hann verði líka að búa við minnkandi atvinnu.
Aðalatriði tillagna fjhn. fyrir utan að lögfesta kaupgjaldið er það, að tryggja, að kaupgjaldið hækki aldrei í samræmi við vaxandi dýrtíð. En það er ekki nóg með það, því að ef kaupgjald 1. jan. á að haldast óbreytt í 3 mánuði, þýðir það, að kaupið lækkar raunverulega, ef dýrtíðin vex á þessum tíma. Hér er því um tvöfalt ranglæti að ræða: Í fyrsta lagi hækkar kaupið aldrei í samræmi við dýrtíðina, og í öðru lagi stendur kaupið í stað í 3 mánuði, jafnvel þótt dýrtíð aukist á þeim tíma.
Þá vil ég minnast með örfáum orðum á það, sem hæstv. viðskmrh. sagði í sambandi við ákvæðið um að fella burt 5. gr. gengisskráningarlaganna, en hún fjallar um það, að verð á kjöti og mjólk megi ekki hækka.
Burtfelling þessarar gr. gefur tilefni til þess að spyrjast fyrir um það, hvað meiningin er að gera í þessu efni. — Sala mjólkur og kjöts heyrir undir sérstakar nefndir, sem ákveða verðlag á þessum vörum. Fyrir allan almenning er hér um hagsmunamál að ræða. Svo framarlega sem það er ætlunin að hækka verð á mjólk og kjöti fram yfir það, sem kaup hækkar, álít ég, að eigi aðeins sé farið mjög óréttlátlega að, heldur einnig óviturlega, bæði frá sjónarmiði neytenda og bænda. Hækkunin myndi fyrir bændur engan veginn þýða, að þeir bæru meira úr býtum en áður, því að neyzlan minnkaði. Skynsamlegast væri og réttast að hækka verð á mjólk og kjöti ekki eins mikið og kaup hækkar, — ég veit enda, að sumir bændur hafa látið þá skoðun í ljós, að réttast væri að halda mjólkinni í sama verði, því að það þýðir aukna neyzlu og gefur meira í aðra hönd en hækkun. Mér þætti æskilegast, að það kæmi fram við umræður, hvað mjólkurverðlagsnefnd ætlaðist fyrir í þessu máli, og finnst mér, að ekki sé hægt að fella þessa gr. burt, nema þm. viti, hvað þessar stofnanir hugsa sér. Það mundu koma fram mjög skörp mótmæli gegn því að fella þessa grein burt án nokkurs í stað hennar, — breytingar gætum við fallizt á — mótmæli, ef sá er tilgangurinn að hækka verulega mjólk og kjöt frá því, sem er. Þetta er því mál, sem þarf að upplýsa, og þó að kannske sé þrotin von um, að hér verði tekið tillit til þess, sem rétt er, má vænta þess, að málið verði ekki látið ganga fram án slíkrar yfirlýsingar. Að þessu vík ég aftur við 3. umr., ei þörf gerist.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. viðskmrh. talaði um framleiðendur og þeirra vandræði af gengisbreytingunni, vil ég minna á það, hvað hv. þm. hættir við að rugla saman hugtökum, telja þá framleiðendur, sem ekki eru það, en gleyma hinum virkilegu framleiðendum. Það gengur seint inn í kollinn á sumum, að verkamenn og sjómenn eru mestu framleiðendur þessa lands og bændur eru næststærsta framleiðendastéttin. En t. d. togaraeigendur, sem snerta ekki sjálfir á framleiðslustörfum, eru alls ekki framleiðendur í þjóðarbúinu. Þeir hafa miklu frekar verið þröskuldur í vegi framleiðslunnar í sambandi við þann barlóm, sem þeir hafa haldið uppi til þess að fá verkamenn og sjómenn til að sætta sig við ófrelsið og lækkað kaup, og halda vitanlega áfram jafnt eftir að afurðir hafa hækkað svo, að gróðinn er tvímælalaust orðinn mikill, þegar síldarverksmiðjur ríkisins hafa samkv. nýfengnum upplýsingum grætt 4.50–5.00 kr. á hverju síldarmáli, sem þær keyptu í sumar, og síldarverksmiðjur togaraeigenda græða ekki minna í skjóli þeirra. Hjá ríkisverksmiðjunum einum, sem keyptu um 300 þús. mál síldar, hlýtur gróðinn þá að hafa orðið upp undir 1½ millj. kr. Þetta er nú bara á síldinni, en vitanlegt er, að fiskur hefir einnig selzt mjög vel, einn togarafarmur fór fyrir milljónarfjórðung. Það er vitanlegt, að hér er um stórgróða að ræða. Við sósíalistar höfum lagt fram frv., þar sem farið er fram á, að sjómenn og verkamenn fái hlutdeild í þeim gróða, en það mál hefir ekki fengizt tekið fyrir. Svo er hæstv. forsrh. að vitna í vandræðin og sárbæna menn um að sætta sig við þetta atvinnuástand, sem fulltrúum skuldavaldsins kemur bezt að geta viðhaldið sem lengst. Einmitt vandræðaástandið á að færa yfirstéttinni mestan gróða, svo að sem minnst beri á. Þess vegna þarf að harðneita öllum umbótum, líka þeim, sem jafnvel gætu orðið flestum atvinnurekendum hagur beint og óbeint. Það ætlaði allt að springa hérna um daginn, þegar það leit út fyrir, að til atkv. þyrfti að koma brtt. við fjárl. um 1,50 kr. uppbót á síldarmál til útvegsmanna og sjómanna. En eftir 2 klst. hörkuátök innan stjórnarfl. á lokuðum flokksfundum fannst ráðið. Það varð að stytta brtt. aldur, hvað sem þingsköpum og rétti og samvizku einstakra þm. leið, og sleppa við atkvgr. Hún var myrt.
Eigendur skuldafyrirtækjanna geta tekið stórgróða. Samtímis er alþýða svipt rétti til að ráða kaupgjaldi sínu. Þegar rætt er um, að yfirstéttin hafi orðið fyrir barðinu á dýrtíðinni, er það ekki rétt nema að litlu leyti. Þeir eru fleiri í þeirri stétt, sem græða á vandræðaástandinu, og nú búa þeir sig undir að lögbinda lækkandi kaup fyrir verkalýðinn og svipta hann öllu frelsi, sem mögulegt er. — Sem lið í hættulegustu kúgunartilraunum, sem ríkisstjórn og auðvald hefir nokkru sinni dreymt um á Íslandi, og sem óverjandi ráðstöfun í heild og flestum einstökum atriðum vil ég mótmæla þessu frv. harðlega.
Þá vil ég vekja sérstaka athygli á því í sambandi við h-lið 3. gr., þar sem ákveðið er, að á árinu 1940 skuli óheimilt að hækka kaupgjald í landinu meira en svarar til þeirrar hækkunar, sem ákveðin er í 2. gr., — en samkv. 2. gr. laganna, 5. lið, eiga eftir brtt. fjhn. á þskj. 673 þeir einir að fá hærra kaup, sem „organiseraðir“ eru í stéttarfélögum verkamanna, sjómanna, verksmiðjufólks og iðnaðarmanna, — að það eru engin ákvæði sett viðvíkjandi t. d. verzlunarfólki, starfsmönnum hins opinbera o. s. frv. Líklega verður að skilja það svo, að þessar stéttir hafi óskert frelsi til að beita samtökum sinum, að svo miklu leyti sem önnur lög leyfa, til að hækka kaup sitt innan þeirra takmarka, sem bliður 3. gr. leyfir. Verzlunarfólk fær þá ekki neitt lágmark, aðeins hámark, það fær ekkert af þessum plástri Alþýðusambandsins fyrir náð St. Jóhanns, hæstv. ráðh., sem fyrirmælin um launahækkun, — að vísu „real“-launalækkun — annara launþega eru, það fær ekkert nema það geti knúið fram hækkunina, og þó aðeins að þessu takmarki. Starfsmenn hins opinbera eru aftur á móti nær réttlausir að lögum, þar sem þeim er bannað að leggja niður störf til að knýja rétt sinn fram. Hinsvegar býst ég ekki við, að það þyki fært nú að neita þeim starfsmönnum um sanngjarna hækkun, og ég vil benda hv. Alþingi á, hvort því virðist ekki rétt að taka einnig tillit til þeirra í frv. þessu.
Eitt af því eftirtektarverðasta í frv. er, að þar er ekkert ákvæði um launahámark, eins og þar var þó upprunalega. Því hefir verið kippt burt. Nú mega sumir embættismenn hafa 10–20 þús. kr. árstekjur, bankastjórar aðalbankanna 20–30 þús. kr., og allir þessir menn mega nú hækka sín laun eins mikið og 6. liður 2. gr. leyfir. Það á sem sé að tryggja, að hálaunamenn geti fengið kaupuppbætur. Þetta er mjög eftirtektarvert og í samræmi við það, þegar rætt var um það hér á þingi nýlega að breyta l. um skattgreiðslu togarafélaga. Þá var í Nd. samþ., að þessi fyrirtæki, skattfrjáls sökum fátæktar, mættu ekki greiða yfir 10 þús. kr. laun nokkrum forstjóra sínum eða starfsmanni. En þá var kippt í múlbandið frá hærri stöðum og hv. þm. stjórnarflokkanna í hinni deildinni látnir nema þetta aftur burt, svo að „fátæku“ félögin mættu greiða vissum mönnum eins mikið og þau vildu. Og nú gerir þetta frv. ráð fyrir hækkun hjá hálaunastéttinni yfirleitt. Það lá að, fyrst hér sitja a. m. k. 30 hv. þm. með yfir 10 þús. kr. árslaun, að hagsmunum hennar yrði ekki alveg gleymt, — auk þess sem séð er í gegnum fingur við hálaunamenn í framkvæmd laganna, gagnstætt framkvæmd þeirra við alla alþýðu. Eitt nýjasta dæmið er það, þegar bæjarstjórn Reykjavíkur samþ. að hækka þóknun til niðurjöfnunarnefndarmanna. Því hefir verið haldið fram af mér og fleiri, að þetta væri brot á l. um gengisskráningu, og engum hefir enn tekizt að mæla móti því. En ef eitthvert verkalýðsfélag ætlaði að hækka taxta sinn og gera verkfall til þess, stæði víst ekki lengi á því, að ríkislögregla yrði send á vettvang til að hindra það. Hér var að ræða um fastlaunaða embættismenn eða menn með 6–7 þús. kr. tekjum fyrir, með bitling upp á 2 þús. kr. í viðbót, og þess vegna þurftu þeir enn í ofanálag dálitla viðbót. Og sjálft Alþingi gerir sig sekt um það að hækka laun hæstlaunaða embættismannsins úr 60 þús. í 75 þús. kr. Þannig er farið misjafnt að, eftir því hvort um hálaunaða embættismenn eða fátæklinga er að ræða. Það hefir auðvitað aldrei verið reiknað sem hækkun heldur, þó að nýir bitlingar væru stofnaðir í viðbót við full laun. — Þá vil ég enn benda á, að í brtt. fjhn. er hvorki gert ráð fyrir hækkun ellilauna, örorkubóta, slysatrygginga eða dánarbóta, eins og lagt er til í brtt. okkar á þskj. 288. Það liggur þó í augum uppi, að þegar það opinbera hefir með tvennum gengisfellingum haft önnur eins áhrif og nú á dýrtíðina í landinu, beri því siðferðileg skylda til að bæta úr því við hina tryggðu og fjölskyldur þeirra.
Ég ætla að láta þetta nægja í svipinn, þótt margt sé enn órætt í sambandi við frv. og brtt. fjhn. Tilgangurinn með því er að binda hendur verkalýðsins, svo að hann geti ekki rétt hluta sinn sjálfur. Það er verið að rífa sjálfan grundvöllinn undan félagsskap hans. Það er verið að gera þau réttindi, sem mesta þýðingu hafa fyrir verkalýðinn í borgaralegu þjóðfélagi, að engu, og það um ófyrirsjáanlegan tíma, eins og nú er krafizt af þeim, sem stjórna valdhöfum Alþingis. — það er hættulegasta atriðið, það er það, sem hefir verið mótmælt í tugum þeirra mótmælaskjala, sem Alþingi hafa verið send og ég hefi talið upp, það er af þessu, sem bæði frv. og brtt. fjhn. mætir nú og ætíð mótmælum gervallrar alþýðu, sem er meiri hl. ísl. þjóðar.