17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

6. mál, lax- og silungsveiði

*Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti! Ég skal ekki lengja mikið umr. um þetta frv., en mér finnst hér vera mál á ferðinni, sem ástæða sé til að gera sér gleggri grein fyrir en hér hefir enn komið fram, einkum þar sem talsvert ber á milli meiri hl. landbn., sem hefir haft með það mál að gera, og minni hl. þeirrar n. Mér skildist á hv. 1. þm. Skagf., sem mun vera veiðimálastjóri — (PHann: Það er ekki rétt.) Hann mun einna mest vita um veiðiskap, og hann hefir líka meira til brunns að bera en flestir aðrir í þessum efnum, þar sem hann er dýrafræðingur, og mér féll vel að heyra, að hann er þeirrar skoðunar, að 2. brtt. á þskj. 141 sé hættuleg, þar sem ákveðið er, að veiða megi í lagnet eða króknet, sem fest eru við girðingu út frá landi, þó ekki utan netlaga. Í þessari till. felst það, að þessi net megi leggja við árósa, þar sem von er til, að lax gangi upp eftir ánum, og er þetta því hættulegra, sem búast má við, að það verði gert að staðaldri. Netin eru ekki lögð í sjóinn stundarkorn, heldur látin liggja alllengi og beðið eftir því, að fiskur festist í þeim. Um ádrátt er dálítið öðru máli að gegna, því að hann er ekki lengi í senn, og venjulega aðeins einu sinni eða tvisvar, en netin eru oftast látin liggja alllengi. Króknet eru enn verri heldur en önnur net, því að þau eru bönnuð hér um bil alstaðar í öðrum löndum, og við veiðar inni á fjörðum er víðast hvar hætt við þau, því að menn hafa séð sér skaða í að nota þau. Ég held, að mesta hættan liggi í því, að þetta skuli vera leyft, því að ég tel, að báðar þessar veiðiaðferðir verði til þess að hindra laxagöngur upp í árnar. Þar liggur hættan, sem við verðum hér að horfast í augu við.

Það er dálítið annað, þótt stangarveiði sé leyfð í sjó eða að veiða lax á færi, enda eru þesskonar veiðar líka leyfðar í ám, því að það er svo lítið, sem veiðist þannig. Ádráttur er líka viðast hvar bannaður í ám.

Ég álít, að það sé mjög hættulegt fyrir laxveiði í ánum og hindri náttúrlega laxagöngu að miklum mun, ef lagnet eða króknet væru lögð rétt við mynni ánna, sem lax gengur í. Laxakisturnar í ánum eru að vísu samskonar gildra, en þær eru þó aðeins við árbakkana, en loka ekki alveg leiðinni upp eftir ánum og hindra því ekki laxinn algerlega í að geta gengið lengra upp eftir, og er því ekki eins skaðlegt eins og ef net væru lögð við árósana, því að ef það verður gert og reynist fengsælt, mun laxveiðin minnka til muna í fiskisælustu ám landsins, því að þetta mun hindra mjög laxagöngur upp eftir ánum, eins og hv. 1. þm. Skagf. hefir réttilega tekið fram. Ég álít því, að brtt. á þskj. 141 sé stórhættuleg.